Sunnudagur, 04. september 2011
Líf mitt tók mjög jákvćđan viđsnúning á fimmtudaginn. Ţá fékk ég útborgađ og eignađist fullan sígarettupakka, sótti fatalagerinn í hreinsun, tómur ísskápur kjaftfylltist af Kóki í dósum, osti, smjöri, bacon smurosti, skinku og baconi. Og frystirinn af úrbeinuđum grísahnökkum og kjúklingabringum. Og síđast en ekki síst fékk Svarta Ljóniđ bensín fyrir 10.000 kall og ţarf ekki lengur ađ ganga á bensíngufunum.
Viđ félagi Jakob fögnuđum ţessum tímamótum međ ţví ađ renna út á gamla Essó (N1) í Borgartúni. Ég ţurfti ađ kaupa bensín og endurgjalda Jakobi sígarettupakka sem hann lánađi mér á endasprettinum á miđvikudeginum. Jakob fékk sér pulsu á bensínstöđinni og hélt langa og innblásna rćđu um hversu honum finnist bensínstövar skemmtilegir stađir. Spurđi mig hvort ég vćri ekki sammála.
Ehhh. Ekki alveg. Fyrir mér eru bensínstöđvar álíka heillandi og skemmtilegar og Víetnam er spennandi sumarleyfisstađur fyrir bandarískan uppgjafarhermann sem barđist í Nam. Semsagt viđbjóđur enda klárađi ég 11 tours of duty í ţessu helvíti og var samt sloppinn áđur en smurolían vék fyrir helvítis pylsunum.
| 20:11 |