Mánudagur, 03. október 2011
Datt aðeins inn á Mótmælavaktina á Útvarpi Sögu áðan en þar hlakkar ægilega í parinu í stúdíóinu og dagskrárgerðamönnum á vettvangi. Eftirvæntingin er slík að blessað fólkið getur ekki falið þrá sína eftir því að allt sjóði upp úr. Þessi „fréttaflutningur“ á auðvitað ekkert skylt við blaðamennsku sem er merkilegt þar sem útvarpsstýran er sprenglærð blaðakona frá Noregi og treystir sjáfri sér betur en nokkrum öðrum blaðamanni íslenskum fyrir hlutlægri og vandaðri umfjöllun. Margt er undrið!
Tæpast er nú rjóminn af íslensku þjóðinni, hvað andlegt atgervi varðar, samankominn á Austurvelli fyrst mótmælin eru Útvarpi Sögu þóknanleg. Einhvern veginn segir manni hugur að þarna séu fyrst og fremst samankomnir aumingjar og frekjur sem vilja fá allt fyrir ekki neitt og láta samfélagið borga fyrir sig brúsann.
Sá sem ætlar að bíða eftir því til eilífðarnóns að ríkið bjargi sér er bráðfeigur þannig að þessar þúsundir þarna hljóta að vera eintök sem sluppu í gegnum síu náttúruvalsins sem gerir ráð fyrir því að þeir hæfustu lifi af. Það fólk er sennilega bara á fullu í lífróðri og reynir að bjarga sér sjálft enda kannski meðvitað um að þetta blessaða land fór lóðbeint á hausinn fyrir þremur árum og gerir sér því grein fyrir því að einhverjar búsifjar hljóta að verða og að öllum verður ekki bjargað.
Af því sem ég hef heyrt sjónvarpi af vælinu í mótmælendum snýst barlómurinn iðulega um rassgatið á þeim sjálfum. Lánin þeirra hækkuðu, þeir misstu vinnuna, þeir eru að missa húsin sín og horfa á eftir börnum og barnabörnum úr landi. Búhú! Get a grip and deal with it.
Tölur sýna að flestir sem eru að missa ofan af sér voru á leiðinni lóðbeint á hausinn fyrir hrun og enginn mannlegur máttur hefði reddað þeim en nú notar hvert ídjótið á fætur öðru tækifærið og stekkur á samúðarvagninn og vill að skattgreiðendur skeri sig úr snörunni. Ferlegt að sitja uppi með 400 fermetra sem maður hefur ekki efni á, glatað að þurfa að ráðast á húsið sitt með gröfu vegna þess að maður kann ekki fótum sínum fjármálaleg forráð en toppurinn er samt að vera peninga gangster og fá Heimavarnarliðið til þess að passa húsið sitt. Grenjuskjóðurnar láta sko ekki að sér hæða.
Á þessum þremur árum hef ég prufað atvinnuleysi, hef hrökklast úr rúmgóðri leiguíbúð í kjallaraholu, séð á eftir börnum úr landi, sníkt lán hjá ættingjum og vinum fyrir mat í lok mánaðar og neyðist nú til að hætta að reykja. Ég hef lækkað um rúman helming í launum frá 2008 og litla verðtryggða lánið mitt er orðið mér óviðráðanlegt. Áhersla mín á eignaleysi í gegnum árin hefur hins vegar gert mig frjálsan og ég nenni ekki að pæla í þessu.
Ef einhverju ætti að mótmæla þá er það sú ömurlega og grátlega staðreynd að Vinstri græn og Samfylkingin eru jafn spillt og ómerkileg og Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn . Stjórnarflokkarnir hafa ekki sýnt neina alvöru tilburði til þess að auka gagnsæi, kæfa kunningja- og vina pólitík eða gera nokkuð annað til þess að það helsjúka samfélag sem hrundi geti risið upp sem nýtt og betra.
Þetta er það eina sem við þurftum nauðsynlega að fá út úr hruninu en þá er múgurinn að sjálfsögðu uppteknari af rassgatinu á sjálfum sér og að eitthvað verði gert fyrir hann persónulega. Að einhverjir molar af fátæklegu gnægtarborðinu falli honum í skaut. Auðvitað nákvæmlega sami hugsunarháttur og hefur gegnsýrt stjórnmálin frá stofnun lýðveldis og þjóðarsálina alla. Íslendingum er ekki viðbjargandi eins og ástandið sýnir svo glöggt. Darwin verður eiginlega að svara því hvernig afkomendur fólks sem lét þetta ömurlega og óbyggilega land ekki útrýma sér fyrr á öldum skuli hafa getið af sér slíka hjörð ræfla.
Þessu samfélagi verður greinilega ekki bjargað nema með alvöru byltingu en það má enginn vera að pæla í því vegna þess að þeir sem hafa horfst í augu við hrunið og eru að berjast í bökkum á eigin forsendum hafa nóg með sitt og hinir standa gólandi á Austurvelli með sínar prívat og persónulegu kröfur um betra líf í boði samfélagsins án þess að vilja láta nokkuð á móti sér.
Þetta eru tilgangslaus mótmæli vegna þess einfaldlega að ef þessi þjóð fer ekki í einn allsherjar heilauppskurð og siðræna endurhæfingu þá komumst við ekkert lengra en þetta. Og þá er mínum tíma betur varið heima hjá mér að reykja gras en að berja í tunnu, sem er tómari en hausinn á mér, á Austurvelli.
| 20:41 |