Laugardagur, 08. október 2011
Ég er að skipuleggja Íslandsmeistaramótið í dvergakasti um næstu helgi þannig að þið ykkar sem fílið að svífa um loftin blá, með hjálm og skíðagleraugu, endilega gefið ykkur fram. Þetta verður massa stuð í anda ársins 2007.
Björgólfur Thor hefur sett saman lið með Sigurjóni Árnasyni og Kjartani Gunnarssyni en Sigurjón Digri getur kastað dvergum af sama krafti og hann hesthúsar súkkulaðisnúða. Sigurður Einarsson er einnig heitur og er að setja saman lið. Jón Ásgeir er hins vegar kominn í einhverja siðferðislega dillemmu og vill ekki vera með. Sem er allt í lagi vegna þess að hann hefur lengi verið slæmur í öxlinni og getur ekki kastað ykkur með þannig tilþrifum að þið fáið eitthvað út úr þessu.
Boxfélag Framsóknarmanna verður líka með en fyrirliðinn Vigdís Hauksdóttir hefur stundað stífar æfingar á dvergakasti úr steinhúsi. Alveg grjóthörð.
Allir lofa að miða beint á dýnuna þannig að þetta verður BARA gaman! Koma soh!
Gullrisotto og Gordon Bleu úr mammútakjöti verður á boðstólnum í lokahófinu ásmt viskíi sem fannst á Norðurpólnum nýlega og er talið vera úr forðabúri Roald Amundsen.
Wíííííííí!
| 20:41 |