»  off record  »  Frjálsa súlukonan frá Frakklandi
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Frjálsa súlukonan frá Frakklandi
Þriðjudagur, 11. október 2011

„I am not Lithuanian, I am not Romanian, I am not Hungarian. I am French and I have rights.“

Missti af þættinum hans Sölva á Skjá einum í gær sem mér þykir miður þar sem hann var að fjalla um súlustaði sem eru alveg sérstakt áhugamál hjá mér. Eins og reyndar allt sem þrífst best í skugganum sem film noir-myndirnar hafa varpað yfir sálarlíf mitt. Efast svosem um að þarna hafi komið eitthvað nýtt fram sem ég veit ekki nú þegar en sjaldan er samt góð klámvísa of oft kveðin.

Þátturinn hratt af stað spjalli um súlustaði yfir kaffibollunum í vinnunni í morgun og þá rifjaðist upp fyrir mér frábær og kjarkmikil stúlka sem kom hingað til að dansa við súlu á kampavínsklúbbi í miðborg Reykjavíkur vorið 2009. Ég var þá á DV og við Diddi ljósmyndari fórum til fundar við dömuna á Íslenska barnum. Diddi tók flottar myndir, enda stelpan fyrirsæta í Frakklandi, og ég átti við hana bráðskemmtilegt viðtal sem fór þó aldrei á prent.

Við Diddi báðum hana um að setjast í rauða stólinn í Laxness-horninu á staðnum en hún tók það ekki í mál. „It will make me look like a cheap prostitude!“ Og þessi klassapía kærði sig ekki neitt slíkt sem var einmitt aðalástæðan fyrir því að henni og eiganda súlustaðarins sinnaðist. Deilunum lauk með því að hún rauk á dyr, fékk sér lögfræðing á Íslandi, gerði launakröfu á staðinn og flaug svo heim. Og síðan hef ég ekkert af henni frétt.

Fannst svolítið leiðinlegt að fá ekki tilefni til þess að skrifa þetta viðtal og birta þannig að ég sagði aðeins frá fundi okkar í litlu bloggi sem ég ætla að dusta rykið af í tilefni dagsins:

Ég eyddi litlu broti úr kvöldstund með fallegri, bráðskemmtilegri og sláandi töff stúlku á kaffihúsi hér í borg nýlega. Þetta var kvöldið áður en hún fór af landi brott í fússi eftir að hafa starfað í tvær vikur við nektardans á súlustað í miðborg Reykjavíkur nota bene. Ekki Kópavogi.

Áður en lengra er haldið er rétt að taka fram að ég var í vinnunni og drakk kaffi og sódavatn. Hún drakk bara sódavatn.

Hún hafði komið hingað í leit að ævintýrum og tilbreytingu og ætlaði að fjármagna Íslandsdvölina með því að sveifla sér fáklædd í kringum súlu. Hún kom hingað á eigin vegum og ekki á þeirri brókinni að láta manselja sig eitt né neitt.

Kannski var það þess vegna sem hugmyndir hennar og súlugreifans í Reykjavík um starfslýsingu nektardansmeyja fóru ekki saman en eftir þessar tvær vikur var henni svo misboðið að hún réði sér lögfræðing og pantaði svo flugfar heim.

Það var ekki vottur af fórnarlambi í þessari dökkhærðu hörkupíu sem var tótallý dressed in black og ég á aldrei eftir að gleyma dead sexí hörkunni í augum hennar þegar hún hvæsti:

„I am not Lithuanian, I am not Romanian, I am not Hungarian. I am French and I have rights.“

Vá! Þetta hefði getað verið í bíómynd.


| 13:05 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff