»  off record  »  Pass í kynlífinu
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Pass í kynlífinu
Mánudagur, 03. október 2011

Þeir ágætu JPV-feðgar sendu mér um daginn ansi áhugaverðan spilastokk úr smiðju hinnar kynlífs(fr)óðu Tracy Cox. Spilin eru eins og lög gera ráð fyrir 52 talsins en þar eru þó engir tvistar, fimmur eða ásar. Ekki einu sinni Tígulgosi en ég byrjaði auðvitað strax á því að leita að honum.

Spilin eru engu að síður kynósa og luma á alls konar góðum ráðum, stellingum og leikjum til þess að lífga upp á kynlífið. Þessi stokkur er væntanlega fyrst og fremst ætlaður pörum og gagnast mér, einhleypum manninum, því ekki mikið að svo stöddu enda ekki líklegt til árangurs að tæla konu með sér heim og byrja svo á því að spyrja hvort hún vilji ekki taka í spil.

Kynlíf byrjar líka ekki að súrna fyrr en rekkjunautar verða pör eða hjón. Spennan er það sem gerir kynlífið skemmtilegt og það er endurtekningin og rútínan sem gera út af við það. Þess vegna er mannskepnan í eðli sínu ekki einkvænisskepna þótt mannfjandsamleg trúarbrögð hafi troðið því í hausinn á okkur að fólk eigi að njóta kynlífs, helst með eini og sömu manneskjunni, alla ævi. Djöfuls bilun. Því fleiri því betra og með réttu ætti fólk að skipta um rekkjunauta oftar en það skiptir um bíl.

Stress, sjónvarpsgláp, golf og enski boltinn ásamt barnauppeldi og innkaupum í Bónus og Krónunni drepa niður allan sköpunarkraft í kynlífi para þannig að það sem var í upphafi ógeðslega spennandi, skemmtilegt og gott verður að vélrænni rútínu sem snýst um einhverja lágmarks losun eða fjölgun mannkyns. Fyrrverandi tengdapabbi minn var meðvitaður um þetta og áður en ég mætti dóttur hans við altarið gaf hann okkur bókina Is there sex after marriage? Og benti okkur á að taka þetta mjög alvarlega.

Bækur eins og þessi geta reynst fólki, sem trúir því að því beri að hjakkast hvort á öðru til eilífðarnóns, vel rétt eins og bækurnar hennar Tracy vinkonu minnar. JPV-feðgar sinna því göfugu hlutverki með reglulegri útgáfu leiðbeiningarrita um kynlíf og hvernig má krydda það. Og þessi sprellfjörugu spil eru fín innspýting í málaflokkinn og geta gert kraftaverk fyrir fólk sem stundar botnfrosið kynlíf. Spilin eru súpersexí og þegar ég fletti mig í gegnum stokkinn langaði mig í augnablik til þess að eiga konu til þess að geta farið að spila með en ég segi samt pass í bili.


| 12:55 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff