»  off record  »  Rússneskur brandari
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Rússneskur brandari
Föstudagur, 14. október 2011

Krónísk spítalafóbía mín náði nýjum hæðum undir lestri hádegisfrétta þegar upplýst var að starfsfólk Landsspítalans þyrfti stundum að margnota græjur sem almennt ættu að vera einnota og nú óttast ég ekkert meira en að læknir eigi eftir að fara með fingur í notuðum latex-hanska upp í rassinn á mér við ristilsskoðun.

Þessi hörmungafrétt rifjaði upp fyrir mér brandara sem ég las þegar ég var 12 ára en þá var Rússland voða mikið eitthvað svona Rússland og algert eymdarbæli. Þetta er einn af örfáum bröndurum sem ég man enda þoli ég ekki fyrirbærið og leiðist almennt þeir sem segja brandara. En hvað um það:

Vitið þið hversvegna öllum skurðaðgerðum á Landsspítalanum þarf að vera lokið fyrir hádegi?
Þá þarf mötuneytið að fá hnífapörin aftur.


| 13:08 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff