Fimmtudagur, 13. október 2011
Fór í frumsýningarpartí í gær þar sem allt var vaðandi í sjóðheitum og sætum gellum. Í fullkomnum heimi á maður auðvitað ekki að þurfa að reyna við stelpur og leggjast svo lágt að nota „pikköpplínur“ og hingað til hef ég komist hjá því að standa í slíku hallærisstappi. Þær komu bara. Eitthvað er þetta að breytast og í gær gaf mér engin gaum sem var vissulega ákveðið áfall þannig að ég ákvað að reyna nýja „pikköpplínu“ sem gengur út á það að bjóða konum að geta þeim fallegt og gáfað barn. Það virkaði ekki og tilraunadýr gærkvöldsins sagðist ekki vilja fleiri börn.
Ég trúi því tæpast að ég sé búinn að missa mojoið mitt svona skyndilega þannig að ég hraðsauð þá kenningu í gær að fólk sé almennt hætt að kunna að „hössla“ út af þessu helvítis Facebook. Nú er bara „pókað“ og „tjattað“ á Netinu frekar en að gera þetta með stæl upp á gamla mátann. Einhvern veginn þyrfti að flytja rafrænar viðreynslur yfir í kjötheima en ég sé ekki alveg fyrir mér að það komi vel út að pota í konur á opinberum vettvangi. Það er bara ávísum á kæru fyrir áreiti. Þá er gamla, góða „má ég bjóða þér í glas“ öruggara.
Samt pæling hvort ekki sé hægt að koma blikkandi barmmerkjum með neonlýstu orðinu „Single“ á konur sem eru á lausu og vilja láta vita af því. Slíkt myndi spara bæði tíma, fyrirhöfn og óþarfa vandræðagang og einfalda þetta brölt til mikilla muna.
| 11:44 |