»  off record  »  98 oktan af stöðinni: Brátt sáðlát á brúðkaupsnótt
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
98 oktan af stöðinni: Brátt sáðlát á brúðkaupsnótt
Miðvikudagur, 07. desember 2011

Það var sannkallaður hvalreki fyrir okkur á vondu vaktinni þegar guðsmaðurinn ungi fór að vinna á góðu vaktinni. Best var auðvitað þegar hann tók aukavaktir hjá okkur og mætti með vatnsheldu Biblíuna sína sem hann las í á milli þess sem hann stökk út og dældi á bíla. Við þremmenningarnir gátum endalaust hlegið að þessum unga ofsatrúarmanni enda var einlægnin og trúarhitinn auðvitað alger brandari.

Ég var ekki alveg jafn orðljótur í þá daga og ég er nú en samt gat ég varla komið út úr mér setningu án þess að flétta inn í hana orðunum „helvítis“, „djöfulsins“ og „andskotans“.

Stundum öllum saman en í það minnsta alltaf einu. Guðsmanninum unga ofbauð þetta og kom einu sinni grafalvarlegur til mín og bað mig um að gæta tungu minnar og sagði mér að taka mér smá tíma til þess að íhuga HVERJUM ég væri að bjóða í húsið með svona munnsöfnuði.

Ég hafði auðvitað aldrei pælt í því en ég var víst að opna upp á gátt fyrir Satan sjálfum. Sem þó lét aldrei sjá sig. Óli missti andlitið undir þessum lestri sem ég fékk og Halli gamli setti upp sitt kvikindislegasta glott og hláturinn ískraði í honum.

Enginn okkar gat hins vegar haldið niðri í sér hlátrinum þegar krossfarinn kom uppnuminn á stöðina eftir að hafa orðið vitni að ótal kraftaverkum á samkomu hjá Benny Hinn í Laugardalshöllinni. Maðurinn snerti ekki jörðina og lýsti óðamála fyrir okkur áþreifanlegri nærveru Frelsarans í Höllinni.

Ekki virtust þó allir í hjörð trúaðra hafa fundið fyrir því að Jesúm hefði gengið ljósum logum í Laugardalnum vegna þess að mér er minnistæð fréttamynd af Ólafi Skúlasyni, biskup, halda með skelfingarsvip utan um eiginkonu sína, flóttalegur mjög, á hlaupum út úr Höllinni.

Okkar maður var vitaskuld í einhverjum mun trylltari söfnuði en þjóðkirkjunni en þó pollrólegur í kynlífinu eins og við víkjum að síðar. Ég gat auðvitað ekki setið þegjandi undir þessum kraftaverkalýsingum, missti aðeins stjórn á mér og hellti mér yfir manngarminn með formælingum um heimsku og eitthvað í þeim dúr. Með fullt af „helvítis, djöfulsins, andskotans“ til áherslu á réttum stöðum.

Við færðumst auðvitað allir í aukana eftir að hinn smurði Benny Hinn hafði snert sálu þessa heilaga vinnufélaga okkar. Og kannski vilja einhverjir meina að við höfum gert okkur seka um einelti á vinnustað þegar við tókum okkur til og tússuðum 666 og kross á hvolfi á fataskápinn hans. En vantrúarplebbarnir hljóta að vera sammála okkur um að þetta hafi nú verið í góðu lagi. Ef ekki hreinlega bráðnauðsynlegt.

Auðvitað beit ekkert á trúmanninum þótt hann hafi stundum æðrast og ekki fundist skápaskreytingin neitt sérstaklega sniðug. Það var helst að við næðum honum á almennilegt flug þegar við reyndum að búa hann undir skyldur hans í hjónasænginni.

Hann hafði semsagt fundið sér eiginkonuefni í þessum sýrða söfnuði sínum. Tilhugalífið hafði staðið nokkuð lengi og loks kom að því að játa ástina frammi fyrir heilögum anda og Benny Hinn (geri ég ráð fyrir). Þá missti hann það út úr sér að þau hjónaleysin hefðu ekki haft holdlegt samneiti af nokkru tagi og myndu ekki gera það fyrr en Guð væri búinn að blessa sambandið.

Og Óli fríkaði út: „Haaaaaaaaaaaaa?! Ertu ekki búinn að prufukeyra? Ætlarðu að ganga í hjónaband með konu sem þú ert ekki búinn að testa? Sjittt.“

Auðvitað kom það ekki til greina og þar sem hér var laaaaaaaaaaaaaaaaangt skirlífi til umræðu sá Óli strax í hvaða skelfingu stefndi. „Brúðkaupsnóttin verður nú ljóta bullið hjá ykkur. Úfff. Þú alveg yfirspenntur við það að drepast úr greddu. Þú átt eftir að fá það áður en þú kemst hálfa leið inn! Heyrðu í hvaða sumarbústað sagðirðu að þið færuð i brúðkaupsferðina? Við verðum á glugganum. Ekki ætla ég að missa af þegar þú sullar þessu öllu beint á magann á henni!“

Amen.


| 13:43 |
komment

Skemmtilegar færslur en nördinn í mér verður að benda á að Benny Hinn var í Kaplakrika.

Nr. 1 | Logi | 7.12.2011 | 15:51:05 | [+] |

Usss. Ferlegt að klikka á svona grundvallaratriði. Fært til bókar snarlega!

Nr. 2 | Tóti sjálfur | 7.12.2011 | 16:13:45 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff