»  aðrir  »  Elvis snýr sér í gröfinni
nýlegt

nýleg komment

a long time ago...
Elvis snýr sér í gröfinni
Mánudagur, 26. maí 2003

3000 Miles to Graceland

Elvis, Las Vegas, Kurt Russell og Kevin Costner? Þegar ég sá plakatið þá kom leikaravalið mér á óvart, ég ákvað að gefa Costnernum einn lokaséns og fór vongóður á þessa löngu löngu mynd. Allt kom fyrir ekki. Þetta er versta kvikmynd sem ég hef séð mjög lengi, ótrúlega vont handrit og illa pæld framleiðsla á allan hátt held ég. Kevin Costner klúðrar að sjálfsögðu vondakallshlutverkinu með glæsibrag og er þar með dæmdur endanlega úr leik.

Kurt Russell leikur aðalsöguhetju myndarinnar, góða glæponinn. Nýsloppinn úr fangelsi hittir hann sætu skvísuna Courteney Cox sem stekkur náttúrulega strax í rúmið með honum. Það næsta sem góði vondi kallinn gerir er að hitta Kevin Costner sem er sko vondi vondi kallinn. Þeir ætla ásamt 3 aðstoðarmönnum að ræna spilavíti í miðri Elvishátíð í Las Vegas. Aðstoðarmennirnir þrír eru leiknir af Christian Slater sem er fínn í sínu hlutverki, Bokeem Woodbine (góður í The Big Hit) og David Arquette. Woodbine er ekkert að virka neitt sérlega vel og eina ástæðan sem ég sé fyrir því að David Arquette er í þessari mynd er sú að hann er eiginmaður Courteney Cox. Arquette og Woodbine eru drepnir blessunarlega snemma í myndinni en Slater hefði mátt lifa aðeins lengur enda einn af fáum í þessari mynd sem nær einhvernveginn að skila sannfærandi leik. Hann og Jon Lovitz eru ljósu punktarnir leikaralega séð.

Gengið mætir síðan í spilavítið ofursvalt í Elvisgöllunum með byssurnar í gítartöskunum og svo byrjar ballið. Til að byrja með fer Kurt Russell (ég nenni ekki að nota nöfn karakteranna í myndinni, það þjónar engum tilgangi) ekki með hinum til að ræna peningageymsluna. Hann fer og tengir framhjá einhverri lyftu til að hinir geti sloppið upp á þak þegar allt er komið í háaloft. Það skal tekið fram að fram að þessu er myndin búin að vera bara fín og engin ástæða til að óttast neitt mikið. Á leiðinni úr peningaherberginu í lyftuna fer síðan náttúrulega allt í háaloft og meira að segja sjálfur kasínómanagerinn kominn með AK-47. Costnerinn og hinir þrír eru síðan búnir að drita niður óteljandi öryggisverði í óskiljanlegum hasarskotum a la MTV með hratt/hægt effektum og techno sándtrakki þegar þeir komast loksins inn í lyftuna. Einhver hrópar þá á Russell að hann þurfi að sjá um nokkra öryggisverði. Það sem hann gerir þá er fyrsta alvöru merkið um að þetta sé vond mynd. Í stað þess að plaffa verðina niður þá miðar hann upp í loft og skýtur eitthvað glerdót í tætlur svo það dettur niður í þúsund milljón molum. Hann er nefninlega góði glæponinn.


Restin af myndinni er martröð. Courteney Cox, sem er orðin smá skotin í Russell, á nefninlega son sem er frekar pirrandi karakter og stelsjúkur í þokkabót. Honum tekst að stela peningatöskunni frá Russell og í kjölfarið heimtar Cox að fá að fara með Russell, sem hún veit að er verið að leita að því hann var í genginu sem drap tugi manns í ráninu mikla. Ástin er náttúrulega blind og allt það en þetta er samt ekki neitt. Þau halda semsagt af stað eitthvað norðureftir á leið til Jon Lovitz sem ætlar að þvo peningana því þeir eru merktir. Eftir að hafa verið í smástund á ferðinni þá stingur hún af með peningana og skilur son sinn eftir hjá síbrotamanninum Kurt Russell. Og þá hefst martröðin semsagt af fullri alvöru. Myndin breytist í einhverslags John Hughes föður/sonar ævintýri þar sem þeir bindast einhverjum böndum, stela trukk og bla bla bla.

Eitt atriði sem mér finnst þurfa að nefna því mér finnst það einhvernveginn lýsa þessum hluta myndarinnar, sem er n.b. allt of langur. Myndin er reyndar svo löng að vinir mínir tveir sem sáu myndina með mér sofnuðu báðir. Atriðið sem um ræðir er eitt stutt skot inni á klósetti bensínstöðvar þar sem sonurinn ætlar að kasta vatni. Við sjáum þrjár pissuskálar. Við þá sem er lengst til vinstri er stór, feitur og skítugur hillbilly. Drengurinn gengur að skálinni í miðjunni og hvað gerist? Stóri feiti kallinn prumpar! Strákurinn færir sig þá um eina skál og gerir þarfir sínar. Þetta er semsagt atriði sem snýst um þetta prump. Prumpubrandari. Prumpubrandarar geta alveg verið fyndnir en þetta atriði kemur bara eins og þruma úr heiðskíru lofti og passar einhvernveginn ekki neitt inn í myndina, nema þetta er náttúrulega vont atriði eins og flest önnur í myndinni og passar þannig séð ágætlega. Mér finnst magnað að velta því fyrir mér að einhver hafi gjörsamlega skrifað þessa senu í handritið. Ennþá magnaðra finnst mér að spá í hvað fór mikill tími og vinna í að filma atriðið. Ótrúlegt.

Þegar hinum ógurlega John Hughes hluta myndarinnar er lokið hefst hasarinn að nýju. Kevin Costner er búinn að hóa til gaura í eitthvað vöruhús með fullt af byssum. Ætlunin er að komast yfir peningana sem Kurt Russell er þá nýbúinn að fá aftur frá Courteney Cox. Costnerinn rænir krakkanum og spilar á góða glæponagenið í Russell og fær hann til að skila peningunum í skiptum fyrir drenginn.

Það er síðan þegar Kevin Costner er að ræða við þyrluflugmanninn og byssureddarann sem þessi snilldarsena á sér stað:

Byssusalinn Jack: "You asked for firepower.... meet Hamilton."
(Sjálfur Ice-T gengur út úr skugganum búinn alvæpni)
Thomas J. Murphy (Kevin Costner): "I said get a couple of guys, Jack. A couple of guys."
Jack: "He is a couple of guys."

Þarna gapti ég bara í bíóinu og muldraði örugglega "haaaa" án þess að fatta það. Annað var ekki hægt. Síðan fer allt í háaloft, löggur út um allt og allir að skjóta á alla og ekkert hægt að skilja vegna fyrrnefndra mtv effekta. Hamilton lætur síðan ljós sitt skína í glæsilegasta atriði myndarinnar sem ég gat ekki annað en hlegið dátt að þó svo það hafi sennilega ekki verið ætlun framleiðenda myndarinnar. Allt er semsagt komið í bál og brand og útlitið ekki gott fyrir vondu kallana. Þá sjáum við Hamilton sjálfan koma svífandi á hvolfi með fæturna bundna í einhverskonar kaðal sem er festur í einhverja rennu sem hann hefur fundið. Með hendurnar útréttar og hríðskotabyssur í báðum höndum snýst hann í hringi og úðar skotunum í allar áttir. Hann er auðvitað plaffaður niður enda ekki hægt að finna auðveldara skotmark.

Hvernig hugsaði handritshöfundurinn þetta atriði? Átti sjálfur Hamilton að hafa fundið kaðalinn, bundið fæturna saman og fleygt sér af stað? Úff... Snarfyndið atriði sem ég mun oft minnast glaður í framtíðinni.

Einhvernveginn næst síðan að spila inn í þetta allt saman að Kevin Costner og Kurt Russell séu óskilgetnir synir Elvis Presley sem segir sennilega meira en allt hér að ofan.

Þessi mynd fær ekki stjörnur. Hún fær


| 12:01 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff