»  aðrir  »  Swordfish
nýlegt

nýleg komment

a long time ago...
Swordfish
Mánudagur, 26. maí 2003

Hasar, sprengingar, hakk og brjóst

John Travolta stendur langt upp úr þegar ég hugsa um myndina svona viku eftir að ég sá hana. Og svo náttúrulega sprengingin í byrjuninni...

Plottið
Myndin fjallar um ofurtölvunördinn og fyrrverandi tölvuglæpamanninn Steve Jobson (undarlega lítill nafnaútúrsnúningur þarna á ferð, Steve Jobs er aðalmaðurinn hjá Apple og goðsögn í tölvubransanum). Jobson er leikinn af Hugh Jackman (X-Men) og býr hann í treiler einhversstaðar út í sveit með olíuborpalla fyrir nágranna. Hann má ekki snerta lyklaborð tölvu í einverja tugi ára nema hann vilji fara beinustu leið í fangelsi því hann er nefninlega hættulegasti tölvunörd í heiminum. Gabriel Shear, leikinn af John Travolta (Grease, Saturday Night Fever, Pulp Fiction, Battlefield Earth) býður honum fullt af peningum fyrir að hakka sig inn í tölvukerfi banka nokkurs sem geymir ennþá meira af peningum, svo hann geti stolið þeim og notað til einhverra góðra hluta. Það kemur reyndar aldrei fram í myndinni í hvað hann ætlar að nota peningana en manni finnst samt að hann ætli að nota þá til góðs :) og þó svo hann sé alltaf að drepa fullt af saklausu fólki þá er Travolta samt ekki vondi kallinn í myndinni. Alltaf magnað þegar kvikmyndagerðarmönnum tekst að fá mann til að halda með vonda kallinum. Þetta er beisikk plottið í myndinni og eru þarna nokkrar nettar flækjur sem halda athyglinni og vel það.

Leikarar myndarinnar standa sig allir nokkuð vel en eins og áður sagði þá er það John Travolta, hinn fótalipri sem stendur upp úr. Hann er kúlið í myndinni. Halle Berry er sæta stelpan í myndinni og þar sem hún er sæt þá er hennar hlutverki fullnægt. Don Cheadle leikur löggu sem er að reyna að bösta Travolta og þar sem ég fíla gaurinn vel finnst mér gaman að sjá hann í svona semi-stóru hlutverki. Hugh "Wolferine" Jackman stendur sig frábærlega miðað við að hann sé að leika hlutverk sem ég hefði frekar ráðið Steve Buscemi til að leika og hefði myndin líklega fengið fjórar stjörnur ef Buscemi hefði leikið tölvunördinn og þeir hefðu sleppt techno-hakk atriðinu.

Technó Hakkið
Þar sem hakkandi tölvunerðir eru afar óspennandi fyrirbæri visjúalt séð þá þurfti náttúrulega að krydda hakk-atriðin einhvernveginn. Í fyrsta skiptið sem hann sést hakka er dúndrað nettum klámfílíng í senuna og er það atriði annaðhvort snilld eða eitthvað annað. Það er allavega eitthvað merkilegt við það og magnað að fylgjast með framvindu mála. Í stóru hakksenunni, þar sem Jobson sést í annað sinn við fyrir framan tölvu, þar er eitthvað mikið að. Í fyrsta lagi er tölvan sem hann fær til afnota með hundrað skjái og síðan er notendaviðmót stýrikerfisins eitthvað rosa flott designer stöff - eitthvað sem alvöru tölvunörd myndi byrja á að henda út um gluggann. Í myndinni fílar Jobson þetta hinsvegar fínt, reykir sína vindla eins og allir sannir nördar (NOT) og fer síðan í miðju sessjoninu niður í vínkjallara og finnur gott vín til að hakka ofan í. Það versta við þetta atriði er ekki vonda euro-trash-technoið sem er spilað undir, heldur sú staðreynd að þegar Jobson er kominn í góðan hakk-fílíng þá er hann staðinn upp (enn að pikka á lyklaborðið) og farinn að snúa sér í hringi með viðeigandi Yeah-um og svoleiðis rugli. Semsagt búið að poppa upp hakksenuna eins mikið og hægt var og svosem við því að búast. Þeim sem vita ekkert um tölvur finnst þetta kannski ekkert asnalegt, en samt, tölvunörd að reykja dýra vindla og drekka rauðvín á meðan hann stundar sitt tölvuhakk? Þetta er ekki alveg að virka.

Ef horft er framhjá þessari hakksteypu þá er myndin samt helvíti góð og þeir nerðir sem lesa þetta mega vita að þessi atriði standa ekki lengi yfir og já, Halle Berry sýnir á sér brjóstin þarna í stórmerkilegu og tilgangslausu atriði sem virðist einmitt bara snúast um það að sýna brjóstin sem aldrei hafa áður sést í kvikmynd. Gott gimmikk og virkaði afar vel á mig. Hápunktur myndarinnar fyrir utan matrix-bombuna í byrjuninni er svo náttúrulega þegar rútan smassar í gegnum skrifstofu á efstu hæð háhýsis sem er full af plottandi markaðsmönnum. Magnað.


| 12:04 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff