Sunnudagur, 02. nóvember 2003
Tóta pönk eipaði á Fréttablaðinu og helti úr skálum reiði sinnar á blogginu sínu. Félagi Jakob var ekki að fíla það að hún lét í það skína að blaðamenn létu kunningsskap og vinargreiða ráða fréttamati sínu og svaraði henni á síðunni hennar og ég hef hér með stolið því ágæta svari:
Sæl Þórunn Hrefna!
Ég veit ekki hvort ég eigi að vera að elta ólar við þetta, en má eiginlega til fyrst þú nefnir mig til sögunnar sem einn þeirra sem ýjað hafi að því að pistilinn hafir þú skrifað í einhvers konar tilfinningalegu uppnámi. Það er rétt upp að vissu marki og ég var reyndar að vonast til þess að þú myndir draga í land. Jafnvel biðjast afsökunnar. En forherðingunni virðast engin takmörk sett. Þú sagðir nefnilega talsvert meira en að þér þætti vænt um sannleikann og bækur. Í raun var kjarninn í pistli þínum þessi:
"Ósk mín er sú að blaðamenn Fréttablaðsins átti sig á því að það er hægt að falsa staðreyndir á fleiri en einn veg." Með öðrum orðum að þeir sem á Fréttablaðinu starfa séu að skrifa á annarlegum forsendum. Megnið af því sem þar er skrifað, fréttir og umfjöllun, séu óbeinar auglýsingar og miðist við það að gera vildarvinum blaðsins greiða ... þá væntanlega gegn greiða. Þetta eru stór orð og þú vegur að starfsheiðri fjölda blaðamanna. Það sem gerir orð þín enn alvarlegri er sú staðreynd að sjálf starfar þú sem blaðamaður og ættir því að þekkja sæmilega til hvernig þetta gengur fyrir sig. (Þessi sýn þín rímar reyndar ekki við reynslu mína.) Enda stóð ekki á því að holskefla fólks fylgdi í kjölfarið og tók undir orð þín. Þú ert væntanlega að vísa til eftirtalinna þegar þú segir: "Ég held að þeir sem lásu pistilinn af sæmilegri eftirtekt hafi alveg séð hvað mér lá á hjarta, enda gerðu fjölmargir lesendur jákvæðar athugasemdir við skrif mín.":
"Hrikalega er ég sammála þessum pistli." Erna E. "Vel talað! Og þetta segi ég þó að ég sé "í liði" með JPV og allt það. Menn verða að vera heiðarlegir og rífast um svona mál! Af hverju er þetta ekki grein í moggganum eða eitthvað? Þú ert náttúrulega í samkepni með Rut bókina og soldið underdog en þetta er samt rétt og vel skrifað.
Go girl!" Totil, "Einnig er rétt að taka fram að ég er í stórum dráttum sammála þér." Beggi dot com, "He, he, he. Þessi pistill hittir beint í mark. Og ekki skemmir að fá þennan viðauka af blæðandi blaðamönnum Fréttablaðsins." Organistinn, "Þetta var blogg sem rokkaði Alvöru rannsóknarblaðamennska." Helgi Briem, "Þakka þér kærlega fyrir að afhjúpa þessa menn. Ég kem til með að kaupa bók þína um barnastjörnuna fyrrverandi fyrir vikið." Sigurgeir Orri Sigurgeirsson, "Íha, jisús hvað þetta er satt hjá þér. og það er ekki nóg að "viðskiptadrottningin" Lindu P sé tranað fram í lélegasta fréttamennsku blaðinu á ísl í dag heldur er "drottningin" sjálf farin að birtast einum of oft framan á séð og heyrt, og ekkert annað en að auglýsa bókin. maður þarf væntanlega ekki að kaupa bókin því hún er nú búin að segja frá nánast öllu hennar lífi sjálf í þessum glans blöðum." Paxal, "Ómg, hvað þetta er innilega pirraður og skemmtilega skrifaður pistill.Rokk on, vinkona." Hexia
Og svo við þínum síðari pistli þar sem þú heldur þínu striki:
"Þegar maður les fréttablaðið (sem mér finnst þó almannt ekki alls varnað) þá skín bókstaflega í gegn stemningin á blaðinu; slepja og gagnrýnisleysi þar sem hver klappar öðrum á bakið með uppbyggilegum athugasemdum: "Stattu þig strákur"..." Ínga, "Pistillinn þinn var góður. Enginn spurning og ég held þú hafir verið helvíti nálægt sannleikanum." Igor
Nú ætla ég í sjálfu sér ekki að fara að setja saman einhverja varnarræðu fyrir okkur þau sem starfa á Fréttablaðinu né heldur fara í einhverja samanburðarfræði: En það hefur nú birst svo og svo mikið um Rut ... Við erum komin á sæmilegar villigötur með slíkum dálksentimetrametingi enda ýmsilegt annað sem ræður því hvernig stallast í blaðið. Auk þess sem fréttamat blaðamanna hefur jú eitthvað um þetta að segja. Né heldur ætla ég að setja á langloku um hvernig dagur á ritstjórn gengur fyrir sig. Þó má á það benda að það er á talsvert annan hátt en menn virðast ímynda sér. Og ef allur sá óhróður sem að okkur beinist, allar þær samsæriskenningar sem fram hafa komið eiga að ganga upp, að við sitjum löngum stundum og möndlum með það að best sé að koma þessum vel og hinum illa... þá myndi satt best að lítill tími gefast til að skrifa svo mikið sem stafkrók í blaðið.
Því miður er ekki hægt að afgreiða þessi skrif sem tilfinningalegt uppnám rithöfunds í jólabókaflóði. Mönnum leyfist ekki hvað sem er þó sú sé árstíðin. Þetta sem hér hefur birst er ekkert annað en alvarlegur atvinnurógur og lái mér hver sem vill þó mér sárni.
Kveðjur,
Jakob
| 20:54 |