»  aðrir  »  Brengluð mynd af Stormskeri
nýlegt

nýleg komment

a long time ago...
Brengluð mynd af Stormskeri
Sunnudagur, 16. maí 2004

Mér fannst þetta frekar einkennileg ?heimildarmynd? hjá honum Jónasi kóknös Knútssyni, eins og hann er kallaður. Fyrir það fyrsta þá kom hvergi fram að þetta er 7 ára gömul mynd, í öðru lagi þá kom aldrei fram hvernig viðmælendurnir tengdust mér og í þriðja lagi þá kom enginn fram í myndinni sem þekkti mig að einhverju ráði og þessvegna held ég að sjónvarpsáhorfendur hafi orðið akkúrat engu nær um mig eftir þáttinn, sem í sjálfu sér er náttúrulega ágætt, því þá er nóg pláss fyrir fordóma.

Viðmælendurnir voru allir vinnufélagar sem ég starfaði stopult með einhverntíma á lífsleiðinni eða fólk sem ég hef aldrei talað við og þaðan af síður það við mig, en það fólk hafði hinsvegar mjög sterkar skoðanir á mér þegar það talaði UM mig eins og algengt er, en það geta varla talist góðar heimildir í ?heimildarmynd.? Ég vissi af því að Jónas hafði tekið viðtal við einn góðan vin minn en hann var klipptur alveg út úr myndinni vegna þess að hann bar mér of vel söguna og hafði ekkert neikvætt um mig að segja. Stundum spurði ég sjálfan mig meðan ég horfði á myndina: Um hvern er þetta mér ókunnuga fólk eiginlega að tala? Þarna kom t.d. fram einhver taðreykt listaspíra sem vildi virka voðalega klók og hreykti sér af því eins og hani upp á fjóshaug að hafa gabbað mig til að fara út á túnið fyrir framan Höfða og skjóta þar máfa til að löggan tæki þar af mér byssu. Löggan hefur aldrei tekið af mér neina byssu fyrir að skjóta einhverja fugla. Ég skaut hinsvegar niður alltof skæra truflandi peru í ljósastaur fyrir framan húsið hjá mér og þá kom löggan og sagði: ?Þú þarft náttúrulega enga ljósastaura Sverrir minn því heimurinn á ennþá menn eins og Sverri sem allt lýsa upp.?
En annars hafði ég gaman af sumu í myndinni, t.d. Snorra eldhuga í Betel sem sagðist endilega vilja kveikja í öllum diskunum og bókunum sem ég hef gefið út, eins og honum sé eitthvað kalt. Það hlýtur að hafa yljað þessum litla strák með eldspýturnar um hjartarætur þegar húsið mitt brann. Ætli hann sé ekki núna að hlusta á Loga í Vestmannaeyjum spila Brennið þið vitar og diskar.
Jónasi Knútssyni var mikið í mun að enginn fengi að koma fram í myndinni sem þekkti mig vel, þrátt fyrir ítrekaðar óskir mínar, og þessvegna varð myndin svona grunn, neikvæð og marklaus. Hann hafði ekki heldur neinn áhuga á því að reyna að kafa ofan í Zorró eða Sverró á bak við grímuna og hvað þá að spyrja af skynsamlegu viti eitthvað út í tónlistina, ljóðlistina, málverkin, málshættina, greinaskrifin eða nýyrðabókina. Honum var hinsvegar mikið í mun að hamra á því neikvæða um mig og halda þeirri firru sem hæst á lofti að ég hefði eingöngu gefið út klám og það er mjög undarlegt, sérstaklega í ljósi þess að af ca 150 lögum sem ég hef gefið út þá eru um 10 djóklög sem mætti flokka sem klám samkvæmt ?grófri? skilgreiningu. Samt fór dágóður tími margra viðmælenda í að ræða ?allt þetta klám? sem ég ég á að hafa gefið út. Þetta eru alveg ótrúlegir leppalúðar, næstum því fáfróðari og ófyndnari en Davíð Þór Jónsson og Sigurjón Kjartansson báðir til samans. Bubbi talaði um að það væri búið að gera nóg af svona ?kúk og pisszch djóki? en minntist ekkert á að það væri líka búið að gera meir en nóg af þessum rússnesku Brynjuvögguvísum sem hann er búinn að vera að kyrja hálfsofandi síðastliðin 15 ár. Kvenremban Kolfinna Freud Baldvinsdóttir sagði að ?allt þetta klám?mitt, semsé 10 djóklög, bæri vott um það að ég hugsaði mun meira um kynlíf en annað fólk og það væri því alveg augljóst að ég hefði aldrei fengið fullnægingu. Það er nefnilega það. Hallelúja! Dóttir mín er semsé eingetin og það er ágætt að vita það. Það ætti að vera nógu kristilegt fyrir Snorra í Betel eða Betlehem eða hvar í helvítinu sem hann er nú niður kominn.
Klipping þáttarins var alveg sér kapituli út af fyrir sig og þannig úr garði gerð að sem mestar líkur væru á því að ég virkaði í stöðugri mótsögn við sjálfan mig. T.d. talaði ég um mitt algera trúleysi og strax á eftir kom Bubbi og sagði að ég væri alveg gríðarlega trúaður maður og besti votturinn um það væri að ég hefði látið skíra dóttur mína í kirkju og þar með var málið afgreitt og ég fékk engu að svara. Ágætt að ég fái að gera það hér. Ef ég myndi eignast 100 krakka þá myndi ég í mínu algera trúleysi láta skíra þá alla í kirkju, ekki trúarinnar vegna, heldur serimoníunnar vegna. Sömuleiðis myndi ég gifta mig í fallegri kirkju af sömu ástæðu þó ég hafi að öðrum þræði antípat á kirkjunni sem stofnun. Ég lét trúlaus ferma mig uppá heimilisorgel á sínum tíma og myndi gera það aftur. Trúleysingjanum er alveg sama þó hann geri einhvern fáránlegan sáttmála við ímyndaðan guð ef honum finnst viðhöfnin sem slík flott og komi út úr því í plús. T.d. í fermingu hjá dóttur minni fyrir ekki löngu þá át ég oblátu hjá prestinum, semsé líkama Krists. Þegar ég settist aftur í sæti mitt við hliðina á mömmu þá fór hún að kvarta yfir því hvað ég væri andfúll og spurði mig hvern Djöfulinn ég hefði eiginlega verið að éta. Ég sagðist hafa verið að éta kollega hans, hann Krissa, í formi kartöfluflögu. Bubbi skilur ekki hvernig trúleysingi geti skírt dóttur sína í kirkju og hakkað í sig líkama Krists. Svo segir hann að ég sé ?barnalegur? og ?naive.? Ég ætla rétt að vona að ég verði alltaf kornungur í anda ólíkt úrillum og taugabiluðum kvenremburyksugum og það má vel vera að ég sé gasalega ?naive?, en ég hef allavega aldrei náð augnkontakti við rjúpu, ég segi og skrifa: R-U-B-U.
Flest mín ummæli fengu aldrei að hafa nauðsynlegan undanfara og komu því oft eins og skrattinn úr sauðarleggnum. Dæmi um markvissa klippingu mér í óhag var meðferðin á Rúnari Þór tónlistarmanni þar sem öll hans ummæli voru klippt úr samhengi. Það sem hann raunverulega sagði var að ég fengi ekki spilun á Bylgjunni og Rás 2, eins og satt er, og bætti því svo við að það væri greinilega vilji þessara útvarpsstöðva að ég ætti ekki að opna kjaftinn og ég ætti hvorki að spila né syngja. Jónas Knútsson klippti út fyrri kaflann um spilanarleysið á útvarpsstöðvunum en hélt seinni hlutanum þannig að það kom út eins og það væri skoðun Rúnars Þórs að ég ætti að halda mér saman. Þetta eru svakalega lúaleg vinnubrögð hjá Jónasi og maður spyr sig: Í hvaða tilgangi var þátturinn eiginlega gerður? Eina haldbæra skýringin sem Jónas þessi Knútsson gaf mér var sú að hann vantaði peninga til að geta keypt sér kókaín í Washington þar sem hann býr. Hann lofaði mér því að ég fengi að kíkja á myndina með góðum fyrirvara áður en hún færi í loftið en það loforð sveik hann að sjálfsögðu eins og öll önnur. Hann fékk aldrei heimild hjá mér til að sýna myndina óséða og þetta getur því ekki einu sinni kallast ?heimildarmynd? að því leitinu til heldur. Þetta var einfaldlega heimilarmynd um Jónas Knútsson og hans amatörsvinnubrögð og dópfíkn. Þátturinn bar allt svipmót hans sjálfs: Óvandaður, grunnur, marklaus, illa klipptur, illa gerður, óheiðarlegur, svæfandi og stupid. Það má einnig segja að þetta hafi verið heimildarmynd um það hvernig eigi ekki að gera heimildarmyndir.


| 18:33 |
komment

Stórkostleg lesning, hafðu þökk fyrir. [ljómar upp]

Nr. 1 | Glúmur Angan | 3.05.2005 | 13:00:30 | [+] |

Bráðskemtileg lesning og argasta snild að detta niður á Stormsker þegar að maður er að leita sér að uppl um íslenska vita:)

Nr. 2 | Zaper | 16.10.2006 | 9:27:51 | [+] |

Super excited to see more of this kind of stuff onnile.

Nr. 3 | Buffee | 6.09.2011 | 20:09:41 | [+] |

qsBGJM oqtdeieglitz

Nr. 4 | gpfnzahvue | 7.09.2011 | 7:21:20 | [+] |

e99BtJ xtzvupcablnn

Nr. 5 | kvktlti | 9.09.2011 | 8:41:41 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff