»  aðrir  »  janúar 2005
aðrir
janúar 2005

a long time ago...
Snilld Hallgríms
Þriðjudagur, 04. janúar 2005

Hallgrímur Helgason átti sviðið í áramótauppgjörshasarnum með frábærri grein sinni, Svikasumar, í Fréttablaðinu á gamlársdag. Þarna sýndi hann allar sínar bestu hliðar og fór hamförum í stílæði. Þar sem fjölmiðlar og ástand þeirra eru mér mjög hugleikin tel ég rétt að halda þessum hluta greinarinnar sérstaklega til haga:

Fjölmiðlar á fjölmiðlafrumvarpsári

Miðlarnir stóðu vaktina í sumar en svo er líkt og þeir hafi sofnað. Þeir minna okkur til dæmis ekki á þá staðreynd að forstjóri Olís heitir ennþá Einar Ben og þeir segja okkur ekki hvort Halldór Ágrímsson laug um Írak eða ekki. Þetta eru greinilega engin stórmál, þannig. Ef Íslendingar hefðu stjórnað bandarískum fjölmiðlum væri Nixon enn á lífi, löngu búinn að breyta stjórnarskránni og því enn þá forseti Bandaríkjanna, hefði dætur sínar sem aðstoðarmenn og búinn að raða barnabörnunum í The Supreme Court. Eða hvar eru blaðamennirnir sem geta sagt okkur hvað samráðsfurstarnir borguðu mikið í sjóði olíuflokkanna tveggja sem aldrei fást til að opna sitt eðla bókhald?

DV hefur meiri áhuga á að segja okkur hvernig blessaðir morðingjarnir muni hafa það yfir jólin. Fréttanef Fréttablaðsins finnur bara peningalykt nú orðið. Blaðið er tómar auglýsingar. Og Mogginn er kominn út í móa. Styrmir hefur reist sér og blaðinu stórglæsilegt skuldafangelsi uppi við Rauðavatn. Á aðeins tuttugu árum hefur þeim tekist að skrifa sig burt úr hjarta miðborgarinnar og út úr hjarta þjóðarinnar.
Ljósvakamiðlarnir eru lítt meira vakandi. Þrátt fyrir nýjan og ríkisalinn fréttastjóra er Stöð Tvö enn þá yfirborðsleg fréttastöð þótt Ísland í dag sé komið langt fram úr Kastljósinu sem hefur dofnað mjög í seinni tíð líkt og gjörvallt Ríkissjónvarpið. Flokkurinn er að ganga af því dauðu. Þrátt fyrir að vera stærsti flokkur landsins verður að segjast eins og er að innan hans eru ekki alltof mörg sjónvarpstalent að finna. Og nú þegar Norðurljósin ljóma stafræn á skjánum er gamla ríkislúkkið ekki bara halló heldur líka loðið; við hliðina á digital stöðvunum lítur RÚV út eins og gömul lopapeysa. Þá tekst þeim enn ekki að koma fréttatímanum óbrengluðum frá sér og á dögunum gátu þeir ekki einu sinni sett Frasier í loftið á réttum tíma. Þegar hann loks birtist vantaði á hann textann. Tæknimenn Ríkissjónvarpsins fá titilinn Tréhausar ársins. Líklega er þörf á nýju og allt öðru vísi fjölmiðlafrumvarpi á næsta ári.

Hallgrímur Helgason birti greinina í Fréttablaðinu þann 31. desember 2004.


| 17:29 | föst tilvísun |
Íslendingar taki ábyrgð - annars ræni ég Landsbankann!
Þriðjudagur, 04. janúar 2005

Ástþór Magnússon fær allt of litla athygli í fjölmiðlum. Badabing! reynir að bæta úr því með því að birta boðskap hans hér:

Ég var mjög hrifinn af verkefni Rauða Krossins Göngum til góðs þann 2 október. Þar sem ég var staddur hér heima tók ég að sjálfsögðu þátt í þessu og mætti til göngu að morgni laugardags.
Það var frábært hvað fólk tók vel á móti og nær undantekningarlaust gaf fólk í Rauða Kross baukinn. Oftast um þúsund krónur, stundum var klink úr öllum heimshornum tæmt úr hin ýmsu krukkum í poka hjá mér þannig að yfir daginn tókst mér að safna einhverjum 4 fullum baukum.

Þá var það jákvætt að sjá að Halldór Ásgrímsson var einnig mættur að safna í bauk til handa stríðshrjáðum börnum sem voru limlest með stuðningi hans sjálfs.
Hundruð þúsunda saklausra barna liggja í valnum vegna þess að menn eins og Halldór Ásgrímsson hafa lagt til blindan stuðning þjóða sinna við þá glæpi gegn mannkyninu sem framdir hafa verið í Írak undir forystu bandaríkjamanna. Stuðningur manna eins og Halldórs hefur veitt þessum glæpamönnum brautargengi til að murka lífið úr hundruð þúsunda einstaklinga fyrst með ólögmætu viðskiptabanni og síðan með blóðugri innrás og hernámi.
Eins og ég hef margsinnis spáð fyrir og varað við versnar ástandið stöðugt. Ég held því fram að ef við höldum áfram á sömu braut og ef vestrænar þjóðir ætla áfram að styðja stríðsglæpamanninn í Washington, mun slíkt ótvírætt leiða til heimsstyrjaldar á næstu árum. Ég tel að fyrir árslok 2006 verði kjarnorkasprengja fallin.
Það er með öllu útilokað að strika yfir það glæpaferli sem Bush og fylgisveinarnir Halldór Ásgrímsson, Davíð Oddsson og fleiri hafa komið af stað í Mið Austurlöndum. Þessa menn verður alþjóðasamfélagið að draga fyrir dómara frekar fyrr en síðar, og láta svara til saka fyrir þá alvarlegu glæpi gegn mannkyninu sem þeir hafa nú stundað árum saman. Menn voru teknir af lífi eftir Nurnberg réttarhöldin í lok seinni heimstyrjaldar fyrir minni sakir en þeir Halldór og Davíð hafa stundað með hernaðarbrölti sínu að undanförnu.
Ef forystusauðir Íslands ætla að koma á nýrri lögskipan sem byggist á því að glæpamenn svari með útúrsnúningum eins og Halldór gerði á dögunum þegar hann spurði af hverju menn væru að horfa til baka á það sem gerðist í Írak, þá hlýt ég eins að geta áskilið mér rétt til að skipuleggja veglegt bankarán á Landsbankann eða jafnvel sjálfan Seðlabankann vopnaður 100,000 Rauða Kross söfnunarbaukum og gleyma svo glæpnum.
Ég hlýt að geta notað ráðamenn þjóðarinnar mér til fyrirmyndar og þá sagt við hinn ágæta Ríkislögreglustjóra sem áður hlekkjaði mig í fangelsi og reyndi að þagga niður í mér um flugbrölt Íslensku NATO hershöfðingjanna: "Af hverju eruð þið að horfa á gærdaginn, horfið bara á hvað við getum látið gott af okkur leiða með öllum þessum peningum þeirra Björgúlfsfeðga sem ég stal í þeim góða tilgangi að troða þeim í hundrað þúsund Rauða Kross bauka!"
Kannski Ólafur friðarhöfðingi á nesinu veiti mér fuglaorðuna fyrir Hróa Hattar heimsóknina í Landsbankann - er það ekki miklu nær en að syngja lofsöngva til dýrðar frægasta stríðsglæpagengi Íslands við setningi Alþingis eins og hann gerði nú á dögunum. Íslenska þjóð - látið ekki þessa blindu höfðingja draga ykkur á asnaeyrunum inn í næstu heimsstyrjöld.

Ástþór Magnússon


| 17:20 | föst tilvísun |
Hann er tékkasvindlari og þjófur
Þriðjudagur, 04. janúar 2005

Höfuðsnillingurinn Haraldur, heitinn, Blöndal sendi mér þessar línur eftir að viðtal mitt við vitleysinginn Paul Watson birtist í Fréttablaðinu. Hann fylgdi sendingunni svo eftir með símtali sem var að vonum leiftrandi skemmtilegt.

Hr. ritstjóri.

Í Fréttablaðinu í dag, 30. ágúst, er opna um Kanadamann að nafni Paul Watson og er ma. viðtal við hann. Í viðtalinu lýgur hann svo, að nauðsynlegt er að leiðrétta.

Paul Watson hefir gumað af því, að menn úr samtökum hans hafi sökkt tveimur bátum Hvals h/f í Reykjavíkurhöfn. Engar sönnur hafa verið færðar á það, hvorki af honum né öðrum. Hið sanna er, að nokkru eftir þennan atburð kom Paul Watson til Íslands og í ljósi yfirlýsinga hans var hann tekinn til yfirheyrslu hjá lögreglu um þetta skemmdarverk. Þá neitaði hann allri aðild sinni og samtaka sinna að þessum verknaði.
Meðan á yfirheyrslum út af hvalbátamálinu stóð, var Paul Watson kærður af Olíuverzlun Íslands h/f fyrir tékkasvik, en kappinn hafði siglt hingað til lands einhverjum misserum fyrr . Var það sneypuför. Við brottför keypti hann olíu af Olíuverzlun Íslands h/f og greiddi fyrir með tékka. Sigldi hann brott, áður en tóm gafst til að kanna innistæðu tékkans, en hann reyndist innistæðulaus. Það að gefa út innistæðulausa tékka er brot á tékkalögum og varðar allt að þriggja mánaða fangelsi, nema þyngri refsing liggi við skv. almennum hegningalögum. En þar sem Paul Watson sigldi frá ógreiddum reikningi varð hann jafnframt sekur um það, sem kallast “hotelbedrageri” á fínu dönsku lagamáli, en við því liggur allt að 6 ára tugthús.
Olíuverzlun Íslands h/f gerði jafnframt kröfu um, að tékkasvindlarinn yrði kyrrsettur, þar til skuldin skv. tékkanum yrði greidd, enda hafði hann aldrei sýnt neinn lit á því að greiða skuldina. Hér var um verulegar fjárhæðir að ræða.
Paul Watson bauðst til að greiða skuldina með nýjum tékka. Því var hafnað og gisti hann Síðumúlafangelsið þar til hann var búinn að skrapa saman reiðufé til gera upp olíuskuldina. Féll Olíuverzlun Íslands h/f þá frá refsikröfu.
Í framhaldinu var Paul Watson síðan vísað úr landi eins og hverjum öðrum þjóf. Bann þetta gilti um öll Norðurlönd næstu fimm ár. Vegna aðildar Íslands að Schengensamkomulaginu myndi slík brottvísum gilda um allt Schengensvæðið. Er rétt að undirstrika, að brottvísunin var á engan hátt tengd skemmdarverkunum á hvalbátunum.
Gaspur Paul Watsson um, að hann beri ábyrgð á því að hafa sökkt hvalbátunum, er ekki svaravert. Í kjölfarið á skemmdarverkum spretta alltaf upp fjöldi geðveikra manna, sem segjast bera ábyrgðina, og hefur lögreglan iðulega þurft að hafa sérstaka menn í að annast um þesssar yfirlýsingar. Hitt er aftur annað mál, að í ljósi þess, að maðurinn er svindlari og þjófur og er með sífelldar hótanir í garð íslenzkra fyrirtækja og einstakra íslenzkra manna, er engin ástæða til þess að heimila honum að koma hingað til lands.

Haraldur Blöndal hrl.


First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff