»  aðrir  »  Snilld Hallgríms
nýlegt

nýleg komment

a long time ago...
Snilld Hallgríms
Þriðjudagur, 04. janúar 2005

Hallgrímur Helgason átti sviðið í áramótauppgjörshasarnum með frábærri grein sinni, Svikasumar, í Fréttablaðinu á gamlársdag. Þarna sýndi hann allar sínar bestu hliðar og fór hamförum í stílæði. Þar sem fjölmiðlar og ástand þeirra eru mér mjög hugleikin tel ég rétt að halda þessum hluta greinarinnar sérstaklega til haga:

Fjölmiðlar á fjölmiðlafrumvarpsári

Miðlarnir stóðu vaktina í sumar en svo er líkt og þeir hafi sofnað. Þeir minna okkur til dæmis ekki á þá staðreynd að forstjóri Olís heitir ennþá Einar Ben og þeir segja okkur ekki hvort Halldór Ágrímsson laug um Írak eða ekki. Þetta eru greinilega engin stórmál, þannig. Ef Íslendingar hefðu stjórnað bandarískum fjölmiðlum væri Nixon enn á lífi, löngu búinn að breyta stjórnarskránni og því enn þá forseti Bandaríkjanna, hefði dætur sínar sem aðstoðarmenn og búinn að raða barnabörnunum í The Supreme Court. Eða hvar eru blaðamennirnir sem geta sagt okkur hvað samráðsfurstarnir borguðu mikið í sjóði olíuflokkanna tveggja sem aldrei fást til að opna sitt eðla bókhald?

DV hefur meiri áhuga á að segja okkur hvernig blessaðir morðingjarnir muni hafa það yfir jólin. Fréttanef Fréttablaðsins finnur bara peningalykt nú orðið. Blaðið er tómar auglýsingar. Og Mogginn er kominn út í móa. Styrmir hefur reist sér og blaðinu stórglæsilegt skuldafangelsi uppi við Rauðavatn. Á aðeins tuttugu árum hefur þeim tekist að skrifa sig burt úr hjarta miðborgarinnar og út úr hjarta þjóðarinnar.
Ljósvakamiðlarnir eru lítt meira vakandi. Þrátt fyrir nýjan og ríkisalinn fréttastjóra er Stöð Tvö enn þá yfirborðsleg fréttastöð þótt Ísland í dag sé komið langt fram úr Kastljósinu sem hefur dofnað mjög í seinni tíð líkt og gjörvallt Ríkissjónvarpið. Flokkurinn er að ganga af því dauðu. Þrátt fyrir að vera stærsti flokkur landsins verður að segjast eins og er að innan hans eru ekki alltof mörg sjónvarpstalent að finna. Og nú þegar Norðurljósin ljóma stafræn á skjánum er gamla ríkislúkkið ekki bara halló heldur líka loðið; við hliðina á digital stöðvunum lítur RÚV út eins og gömul lopapeysa. Þá tekst þeim enn ekki að koma fréttatímanum óbrengluðum frá sér og á dögunum gátu þeir ekki einu sinni sett Frasier í loftið á réttum tíma. Þegar hann loks birtist vantaði á hann textann. Tæknimenn Ríkissjónvarpsins fá titilinn Tréhausar ársins. Líklega er þörf á nýju og allt öðru vísi fjölmiðlafrumvarpi á næsta ári.

Hallgrímur Helgason birti greinina í Fréttablaðinu þann 31. desember 2004.


| 17:29 |

First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff