aðrir

Snilld Hallgríms
Hallgrímur Helgason átti sviðið í áramótauppgjörshasarnum með frábærri grein sinni, Svikasumar, í Fréttablaðinu á gamlársdag. Þarna sýndi hann allar sínar bestu hliðar og fór hamförum í stílæði. Þar sem fjölmiðlar og ástand þeirra eru mér mjög hugleikin tel ég rétt að halda þessum hluta greinarinnar sérstaklega til haga:

Fjölmiðlar á fjölmiðlafrumvarpsári

Miðlarnir stóðu vaktina í sumar en svo er líkt og þeir hafi sofnað. Þeir minna okkur til dæmis ekki á þá staðreynd að forstjóri Olís heitir ennþá Einar Ben og þeir segja okkur ekki hvort Halldór Ágrímsson laug um Írak eða ekki. Þetta eru greinilega engin stórmál, þannig. Ef Íslendingar hefðu stjórnað bandarískum fjölmiðlum væri Nixon enn á lífi, löngu búinn að breyta stjórnarskránni og því enn þá forseti Bandaríkjanna, hefði dætur sínar sem aðstoðarmenn og búinn að raða barnabörnunum í The Supreme Court. Eða hvar eru blaðamennirnir sem geta sagt okkur hvað samráðsfurstarnir borguðu mikið í sjóði olíuflokkanna tveggja sem aldrei fást til að opna sitt eðla bókhald?

DV hefur meiri áhuga á að segja okkur hvernig blessaðir morðingjarnir muni hafa það yfir jólin. Fréttanef Fréttablaðsins finnur bara peningalykt nú orðið. Blaðið er tómar auglýsingar. Og Mogginn er kominn út í móa. Styrmir hefur reist sér og blaðinu stórglæsilegt skuldafangelsi uppi við Rauðavatn. Á aðeins tuttugu árum hefur þeim tekist að skrifa sig burt úr hjarta miðborgarinnar og út úr hjarta þjóðarinnar.

Ljósvakamiðlarnir eru lítt meira vakandi. Þrátt fyrir nýjan og ríkisalinn fréttastjóra er Stöð Tvö enn þá yfirborðsleg fréttastöð þótt Ísland í dag sé komið langt fram úr Kastljósinu sem hefur dofnað mjög í seinni tíð líkt og gjörvallt Ríkissjónvarpið. Flokkurinn er að ganga af því dauðu. Þrátt fyrir að vera stærsti flokkur landsins verður að segjast eins og er að innan hans eru ekki alltof mörg sjónvarpstalent að finna. Og nú þegar Norðurljósin ljóma stafræn á skjánum er gamla ríkislúkkið ekki bara halló heldur líka loðið; við hliðina á digital stöðvunum lítur RÚV út eins og gömul lopapeysa. Þá tekst þeim enn ekki að koma fréttatímanum óbrengluðum frá sér og á dögunum gátu þeir ekki einu sinni sett Frasier í loftið á réttum tíma. Þegar hann loks birtist vantaði á hann textann. Tæknimenn Ríkissjónvarpsins fá titilinn Tréhausar ársins.  Líklega er þörf á nýju og allt öðru vísi fjölmiðlafrumvarpi á næsta ári.

Hallgrímur Helgason birti greinina í Fréttablaðinu þann 31. desember 2004.

Íslendingar taki ábyrgð - annars ræni ég Landsbankann!
Ástþór Magnússon fær allt of litla athygli í fjölmiðlum. Badabing! reynir að bæta úr því með því að birta boðskap hans hér:

Ég var mjög hrifinn af verkefni Rauða Krossins Göngum til góðs þann 2 október.  Þar sem ég var staddur hér heima tók ég að sjálfsögðu þátt í þessu og mætti til göngu að morgni laugardags.

Það var frábært hvað fólk tók vel á móti og nær undantekningarlaust gaf fólk í Rauða Kross baukinn.  Oftast um þúsund krónur, stundum var klink úr öllum heimshornum tæmt úr hin ýmsu krukkum í poka hjá mér þannig að yfir daginn tókst mér að safna einhverjum 4 fullum baukum.

Þá var það jákvætt að sjá að Halldór Ásgrímsson var einnig mættur að safna í bauk til handa stríðshrjáðum börnum sem voru limlest með stuðningi hans sjálfs.

Hundruð þúsunda saklausra barna liggja í valnum vegna þess að menn eins og Halldór Ásgrímsson hafa lagt til blindan stuðning þjóða sinna við þá glæpi gegn mannkyninu sem framdir hafa verið í Írak undir forystu bandaríkjamanna.  Stuðningur manna eins og Halldórs hefur veitt þessum glæpamönnum brautargengi til að murka lífið úr hundruð þúsunda einstaklinga fyrst með ólögmætu viðskiptabanni og síðan með blóðugri innrás og hernámi.

Eins og ég hef margsinnis spáð fyrir og varað við versnar ástandið stöðugt.  Ég held því fram að ef við höldum áfram á sömu braut og ef vestrænar þjóðir ætla áfram að styðja stríðsglæpamanninn í Washington, mun slíkt ótvírætt leiða til heimsstyrjaldar á næstu árum.  Ég tel að fyrir árslok 2006 verði kjarnorkasprengja fallin.

Það er með öllu útilokað að strika yfir það glæpaferli sem Bush og fylgisveinarnir Halldór Ásgrímsson, Davíð Oddsson og fleiri hafa komið af stað í Mið Austurlöndum.  Þessa menn verður alþjóðasamfélagið að draga fyrir dómara frekar fyrr en síðar, og láta svara til saka fyrir þá alvarlegu glæpi gegn mannkyninu sem þeir hafa nú stundað árum saman.  Menn voru teknir af lífi eftir Nurnberg réttarhöldin í lok seinni heimstyrjaldar fyrir minni sakir en þeir Halldór og Davíð hafa stundað með hernaðarbrölti sínu að undanförnu.

Ef forystusauðir Íslands ætla að koma á nýrri lögskipan sem byggist á því að glæpamenn svari með útúrsnúningum eins og Halldór gerði á dögunum þegar hann spurði af hverju menn væru að horfa til baka á það sem gerðist í Írak, þá hlýt ég eins að geta áskilið mér rétt til að skipuleggja veglegt bankarán á Landsbankann eða jafnvel sjálfan Seðlabankann vopnaður 100,000 Rauða Kross söfnunarbaukum og gleyma svo glæpnum.

Ég hlýt að geta notað ráðamenn þjóðarinnar mér til fyrirmyndar og þá sagt við hinn ágæta Ríkislögreglustjóra sem áður hlekkjaði mig í fangelsi og reyndi að þagga niður í mér um flugbrölt Íslensku NATO hershöfðingjanna: "Af hverju eruð þið að horfa á gærdaginn, horfið bara á hvað við getum látið gott af okkur leiða með öllum þessum peningum þeirra Björgúlfsfeðga sem ég stal í þeim góða tilgangi að troða þeim í hundrað þúsund Rauða Kross bauka!"

Kannski Ólafur friðarhöfðingi á nesinu veiti mér fuglaorðuna fyrir Hróa Hattar heimsóknina í Landsbankann - er það ekki miklu nær en að syngja lofsöngva til dýrðar frægasta stríðsglæpagengi Íslands við setningi Alþingis eins og hann gerði nú á dögunum. Íslenska þjóð - látið ekki þessa blindu höfðingja draga ykkur á asnaeyrunum inn í næstu heimsstyrjöld.

Ástþór Magnússon

Hann er tékkasvindlari og þjófur
Höfuðsnillingurinn Haraldur, heitinn, Blöndal sendi mér þessar línur eftir að viðtal mitt við vitleysinginn Paul Watson birtist í Fréttablaðinu. Hann fylgdi sendingunni svo eftir með símtali sem var að vonum leiftrandi skemmtilegt.

Hr. ritstjóri.

Í Fréttablaðinu í dag, 30. ágúst, er opna um Kanadamann að nafni Paul Watson og er ma. viðtal við hann. Í viðtalinu lýgur hann svo, að nauðsynlegt er að leiðrétta.

Paul Watson hefir gumað af því, að menn úr samtökum hans hafi sökkt tveimur bátum Hvals h/f í Reykjavíkurhöfn. Engar sönnur hafa verið færðar á það, hvorki af honum né öðrum. Hið sanna er, að nokkru eftir þennan atburð kom Paul Watson til Íslands og í ljósi yfirlýsinga hans var hann tekinn til yfirheyrslu hjá lögreglu um þetta skemmdarverk. Þá neitaði hann allri aðild sinni og samtaka sinna að þessum verknaði.

Meðan á yfirheyrslum út af hvalbátamálinu stóð, var Paul Watson kærður af Olíuverzlun Íslands h/f fyrir tékkasvik, en kappinn hafði siglt hingað til lands einhverjum misserum fyrr . Var það sneypuför. Við brottför keypti hann olíu af Olíuverzlun Íslands h/f og greiddi fyrir með tékka. Sigldi hann brott, áður en tóm gafst til að kanna innistæðu tékkans, en hann reyndist innistæðulaus. Það að gefa út innistæðulausa tékka er brot á  tékkalögum og varðar allt að þriggja mánaða fangelsi, nema þyngri refsing liggi við skv. almennum hegningalögum. En þar sem Paul Watson sigldi frá ógreiddum reikningi varð hann jafnframt sekur um það, sem kallast “hotelbedrageri” á fínu dönsku lagamáli, en við því liggur allt að 6 ára tugthús.

Olíuverzlun Íslands h/f gerði jafnframt kröfu um, að tékkasvindlarinn yrði kyrrsettur, þar til skuldin skv. tékkanum yrði greidd, enda hafði hann aldrei sýnt neinn lit á því að greiða skuldina. Hér var um verulegar fjárhæðir að ræða.

Paul Watson bauðst til að greiða skuldina með nýjum tékka. Því var hafnað og gisti hann Síðumúlafangelsið þar til hann var búinn að skrapa saman reiðufé til gera upp olíuskuldina. Féll Olíuverzlun Íslands h/f þá frá refsikröfu.

Í framhaldinu var Paul Watson síðan vísað úr landi eins og hverjum öðrum þjóf. Bann þetta gilti um öll Norðurlönd næstu fimm ár. Vegna aðildar Íslands að Schengensamkomulaginu myndi slík brottvísum gilda um allt Schengensvæðið. Er rétt að undirstrika, að brottvísunin var á engan hátt tengd skemmdarverkunum á hvalbátunum.

Gaspur Paul Watsson um, að hann beri ábyrgð á því að hafa sökkt hvalbátunum, er ekki svaravert. Í kjölfarið á skemmdarverkum spretta alltaf upp fjöldi geðveikra manna, sem segjast bera ábyrgðina, og hefur lögreglan iðulega þurft að hafa sérstaka menn í að annast um þesssar yfirlýsingar. Hitt er aftur annað mál, að í ljósi þess, að maðurinn er svindlari og þjófur og er með sífelldar hótanir í garð íslenzkra fyrirtækja og einstakra íslenzkra manna, er engin ástæða til þess að heimila honum að koma hingað til lands.

Haraldur Blöndal hrl.

Brengluð mynd af Stormskeri
Mér fannst þetta frekar einkennileg ?heimildarmynd? hjá honum Jónasi kóknös Knútssyni, eins og hann er kallaður. Fyrir það fyrsta þá kom hvergi fram að þetta er 7 ára gömul mynd, í öðru lagi þá kom aldrei fram hvernig viðmælendurnir tengdust mér og í þriðja lagi þá kom enginn fram í myndinni sem þekkti mig að einhverju ráði og þessvegna held ég að sjónvarpsáhorfendur hafi orðið akkúrat engu nær um mig eftir þáttinn, sem í sjálfu sér er náttúrulega ágætt, því þá er nóg pláss fyrir fordóma.

Viðmælendurnir voru allir vinnufélagar sem ég starfaði stopult með einhverntíma á lífsleiðinni eða fólk sem ég hef aldrei talað við og þaðan af síður það við mig, en það fólk hafði hinsvegar mjög sterkar skoðanir á mér þegar það talaði UM mig eins og algengt er, en það geta varla talist góðar heimildir í ?heimildarmynd.?  Ég vissi af því að Jónas hafði tekið viðtal við einn góðan vin minn en hann var klipptur alveg út úr myndinni vegna þess að hann bar mér of vel söguna og hafði ekkert neikvætt um mig að segja. Stundum spurði ég sjálfan mig meðan ég horfði á myndina: Um hvern er þetta mér ókunnuga fólk eiginlega að tala? Þarna kom t.d. fram einhver taðreykt listaspíra sem vildi virka voðalega klók og hreykti sér af því eins og hani upp á fjóshaug að hafa gabbað mig til að fara út á túnið fyrir framan Höfða og skjóta þar máfa til að löggan tæki þar af mér byssu. Löggan hefur aldrei tekið af mér neina byssu fyrir að skjóta einhverja fugla. Ég skaut hinsvegar niður alltof skæra truflandi peru í ljósastaur fyrir framan húsið hjá mér og þá kom löggan og sagði: ?Þú þarft náttúrulega enga ljósastaura Sverrir minn því heimurinn á ennþá menn eins og Sverri sem allt lýsa upp.?

En annars hafði ég gaman af sumu í myndinni, t.d. Snorra eldhuga í Betel sem sagðist endilega vilja kveikja í öllum diskunum og bókunum sem ég hef gefið út, eins og honum sé eitthvað kalt. Það hlýtur að hafa yljað þessum litla strák með eldspýturnar um hjartarætur þegar húsið mitt brann. Ætli hann sé ekki núna að hlusta á Loga í Vestmannaeyjum spila Brennið þið vitar og diskar.

Jónasi Knútssyni var mikið í mun að enginn fengi að koma fram í myndinni sem þekkti mig vel, þrátt fyrir ítrekaðar óskir mínar, og þessvegna varð myndin svona grunn, neikvæð og marklaus. Hann hafði ekki heldur neinn áhuga á því að reyna að kafa ofan í Zorró eða Sverró á bak við grímuna og hvað þá að spyrja af skynsamlegu viti eitthvað út í tónlistina, ljóðlistina, málverkin, málshættina, greinaskrifin eða nýyrðabókina. Honum var hinsvegar mikið í mun að hamra á því neikvæða um mig og halda þeirri firru sem hæst á lofti að ég hefði eingöngu gefið út klám og það er mjög undarlegt, sérstaklega í ljósi þess að af ca 150 lögum sem ég hef gefið út þá eru um 10 djóklög sem mætti flokka sem klám samkvæmt ?grófri? skilgreiningu. Samt fór dágóður tími margra viðmælenda í að ræða ?allt þetta klám? sem ég ég á að hafa gefið út. Þetta eru alveg ótrúlegir leppalúðar, næstum því fáfróðari og ófyndnari en Davíð Þór Jónsson og Sigurjón Kjartansson báðir til samans. Bubbi talaði um að það væri búið að gera nóg af svona ?kúk og pisszch djóki? en minntist ekkert á að það væri líka búið að gera meir en nóg af þessum rússnesku Brynjuvögguvísum sem hann er búinn að vera að kyrja hálfsofandi síðastliðin 15 ár. Kvenremban Kolfinna Freud Baldvinsdóttir sagði að ?allt þetta klám?mitt, semsé 10 djóklög, bæri vott um það að ég hugsaði mun meira um kynlíf en annað fólk og það væri því alveg augljóst að ég hefði aldrei fengið fullnægingu. Það er nefnilega það. Hallelúja! Dóttir mín er semsé eingetin og það er ágætt að vita það. Það ætti að vera nógu kristilegt fyrir Snorra í Betel eða Betlehem eða hvar í helvítinu sem hann er nú niður kominn.

Klipping þáttarins var alveg sér kapituli út af fyrir sig og þannig úr garði gerð að sem mestar líkur væru á því að ég virkaði í stöðugri mótsögn við sjálfan mig. T.d. talaði ég um mitt algera trúleysi og strax á eftir kom Bubbi og sagði að ég væri alveg gríðarlega trúaður maður og besti votturinn um það væri að ég hefði látið skíra dóttur mína í kirkju og þar með var málið afgreitt og ég fékk engu að svara. Ágætt að ég fái að gera það hér. Ef ég myndi eignast 100 krakka þá myndi ég í mínu algera trúleysi láta skíra þá alla í kirkju, ekki trúarinnar vegna, heldur serimoníunnar vegna. Sömuleiðis myndi ég gifta mig í fallegri kirkju af sömu ástæðu þó ég hafi að öðrum þræði antípat á kirkjunni sem stofnun. Ég lét trúlaus ferma mig uppá heimilisorgel á sínum tíma og myndi gera það aftur. Trúleysingjanum er alveg sama þó hann geri einhvern fáránlegan sáttmála við ímyndaðan guð ef honum finnst viðhöfnin sem slík flott og komi út úr því í plús. T.d. í fermingu hjá dóttur minni fyrir ekki löngu þá át ég oblátu hjá prestinum, semsé líkama Krists. Þegar ég settist aftur í sæti mitt við hliðina á mömmu þá fór hún að kvarta yfir því hvað ég væri andfúll og spurði mig hvern Djöfulinn ég hefði eiginlega verið að éta. Ég sagðist hafa verið að éta kollega hans, hann Krissa, í formi kartöfluflögu. Bubbi skilur ekki hvernig trúleysingi geti skírt dóttur sína í kirkju og hakkað í sig líkama Krists. Svo segir hann að ég sé ?barnalegur? og ?naive.? Ég ætla rétt að vona að ég verði alltaf kornungur í anda ólíkt úrillum og taugabiluðum kvenremburyksugum og það má vel vera að ég sé gasalega ?naive?, en ég hef allavega aldrei náð augnkontakti við rjúpu, ég segi og skrifa: R-U-B-U.

Flest mín ummæli fengu aldrei að hafa nauðsynlegan undanfara og komu því oft eins og skrattinn úr sauðarleggnum. Dæmi um markvissa klippingu mér í óhag var meðferðin á Rúnari Þór tónlistarmanni þar sem öll hans ummæli voru klippt úr samhengi. Það sem hann raunverulega sagði var að ég fengi ekki spilun á Bylgjunni og Rás 2, eins og satt er, og bætti því svo við að það væri greinilega vilji þessara útvarpsstöðva að ég ætti ekki að opna kjaftinn og ég ætti hvorki að spila né syngja. Jónas Knútsson klippti út fyrri kaflann um spilanarleysið á útvarpsstöðvunum en hélt seinni hlutanum þannig að það kom út eins og það væri skoðun Rúnars Þórs að ég ætti að halda mér saman. Þetta eru svakalega lúaleg vinnubrögð hjá Jónasi og maður spyr sig: Í hvaða tilgangi var þátturinn eiginlega gerður? Eina haldbæra skýringin sem Jónas þessi Knútsson gaf mér var sú að hann vantaði peninga til að geta keypt sér kókaín í Washington þar sem hann býr. Hann lofaði mér því að ég fengi að kíkja á myndina með góðum fyrirvara áður en hún færi í loftið en það loforð sveik hann að sjálfsögðu eins og öll önnur. Hann fékk aldrei heimild hjá mér til að sýna myndina óséða og þetta getur því ekki einu sinni kallast ?heimildarmynd? að því leitinu til heldur. Þetta var einfaldlega heimilarmynd um Jónas Knútsson og hans amatörsvinnubrögð og dópfíkn. Þátturinn bar allt svipmót hans sjálfs: Óvandaður, grunnur, marklaus, illa klipptur, illa gerður, óheiðarlegur, svæfandi og stupid. Það má einnig segja að þetta hafi verið heimildarmynd um það hvernig eigi ekki að gera heimildarmyndir.

Bréf Ástþórs til Powell
16 March 2004.

Dear Secretary Powell,

I read yesterday with interest of your comments on Fox News Sunday: "Russians have to understand that to have full democracy of the kind that the international community will recognize, you've got to let candidates have all access to the media that the president has,"

Unfortunately I am as a Presidential Candidate in Iceland experiencing similar difficulties with the most established newspaper in our country. The newspaper Morgunbladid is clearly trying to influence the outcome of the Presidential elections in Iceland with their news coverage.

I announced my campaign for the President of Iceland 21 February.

Morgunbladid did not send a journalist to meet with me at this opportunity, but sent a photographer who took copy of my Press Release.  Most of the content, and important parts of my press release were not featured in the newspaper.  They only printed a tiny 18 column centimeter article hidden on page 9.  On the other hand Morgunbladid has printed several items the last few weeks about my person and candidacy obviously in an attempt to ridicule my campaign.

A totally different coverage is given to the current President of Iceland Mr. Olafur Ragnar Grimsson who announced yesterday he will run again for office.  Morgunbladid dedicates almost ½ of its front page to his announcement and 1/1 page inside the newspaper, total of 264 column centimeters or almost 15 times more space than was given to my campaign.

The newspaper goes into details of each point the President raised at his press meeting about his upcoming campaign.  I have on the other hand not been given any opportunity to introduce my campaign points to the readers of this largest and most established newspaper in Iceland.

There has been a lot of discussion in recent months about ownership of Icelandic media, following the purchase by Baugur Ltd, our strongest retail company, of newspaper, radio and TV Company last year when Baugur saved these independent media services from becoming bankrupt.

Prior to the creation of these new independent media services general debate in Iceland was mostly controlled by above mentioned Morgunbladid and by the State Radio & TV Company.  These companies have frequently through the years been misused and been controlled by the conservative party that also have had majority control in our parliament and government the past decades.

Democracy in Iceland is under an immediate threat due to the misuse of traditional media as described above, and by attempts by the government to impose law against the perfectly normal ownership of new media companies.

I appeal to you Dear Mr. Secretary to let the world know that you will be watching for a democratic Presidential Elections in Iceland and that all candidates should be given equal access to the media.  Also please warn against any lawmaking that will threaten the existence of free media.

Yours truly,

Thor Magnusson (Ástþór Magnússon)

Presidential Candidate in Iceland ? Website in English: www.althing.us

Bestu bíómyndirnar 2003
Meðgagnrýnendur mínir á Fréttablaðinu, Biggi Maus og Einhverskonar Þráinn, lögðu í áramótauppgjörspúkkið ásamt Hulla.

Þetta fannst þeim:

10 bestu myndir ársins 2003 - Birgir Örn Steinarsson

1. The Lord of the Rings: The Return of the King

2. The Pianist

3. Kill Bill vol. 1

4. Bowling for Columbine

5. Punch Drunk Love

6. Finding Nemo

7. City of God

8. Nói albínói

9. El Crimen de Padre Amaro

10. Mystic River

5 verstu myndir ársins 2003

Daredevil

Dreamcatcher

The Emperor´s Club

Chicago

Fálkar

10 bestu myndir ársins 2003 - Þráinn Bertelsson

1. City of God

2. Master and Commander

3. Lilya 4-ever

4. Lord of the Rings - Return of the King

5. Kill Bill Vol. 1

6. Bowling for Columbine

7. The Pianist

8. Mystic River

9. Finding Nemo

10. The Pirates of the Carribean

10 bestu myndir ársins 2003 - Hugleikur Dagsson

1. The Lord of the Rings: The Return of the King

2. City of God

3. Elephant

4. Kill Bill vol. 1

5. Irréversible

6. Spirited Away

7. Cabin Fever

8. Thirteen

9. The Hulk

10. X-Men2

5 verstu myndir ársins 2003

Chigaco

Legally Blond 2

Wonderland

Daredevil

Dreamcatcher

Atvinnurógur á blogginu
Tóta pönk eipaði á Fréttablaðinu og helti úr skálum reiði sinnar á blogginu sínu. Félagi Jakob var ekki að fíla það að hún lét í það skína að blaðamenn létu kunningsskap og vinargreiða ráða fréttamati sínu og svaraði henni á síðunni hennar og ég hef hér með stolið því ágæta svari:

Sæl Þórunn Hrefna!

Ég veit ekki hvort ég eigi að vera að elta ólar við þetta, en má eiginlega til fyrst þú nefnir mig til sögunnar sem einn þeirra sem ýjað hafi að því að pistilinn hafir þú skrifað í einhvers konar tilfinningalegu uppnámi. Það er rétt upp að vissu marki og ég var reyndar að vonast til þess að þú myndir draga í land. Jafnvel biðjast afsökunnar. En forherðingunni virðast engin takmörk sett. Þú sagðir nefnilega talsvert meira en að þér þætti vænt um sannleikann og bækur. Í raun var kjarninn í pistli þínum þessi:

"Ósk mín er sú að blaðamenn Fréttablaðsins átti sig á því að það er hægt að falsa staðreyndir á fleiri en einn veg." Með öðrum orðum að þeir sem á Fréttablaðinu starfa séu að skrifa á annarlegum forsendum. Megnið af því sem þar er skrifað, fréttir og umfjöllun, séu óbeinar auglýsingar og miðist við það að gera vildarvinum blaðsins greiða ... þá væntanlega gegn greiða. Þetta eru stór orð og þú vegur að starfsheiðri fjölda blaðamanna. Það sem gerir orð þín enn alvarlegri er sú staðreynd að sjálf starfar þú sem blaðamaður og ættir því að þekkja sæmilega til hvernig þetta gengur fyrir sig. (Þessi sýn þín rímar reyndar ekki við reynslu mína.) Enda stóð ekki á því að holskefla fólks fylgdi í kjölfarið og tók undir orð þín. Þú ert væntanlega að vísa til eftirtalinna þegar þú segir: "Ég held að þeir sem lásu pistilinn af sæmilegri eftirtekt hafi alveg séð hvað mér lá á hjarta, enda gerðu fjölmargir lesendur jákvæðar athugasemdir við skrif mín.":

"Hrikalega er ég sammála þessum pistli." Erna E. "Vel talað! Og þetta segi ég þó að ég sé "í liði" með JPV og allt það. Menn verða að vera heiðarlegir og rífast um svona mál! Af hverju er þetta ekki grein í moggganum eða eitthvað? Þú ert náttúrulega í samkepni með Rut bókina og soldið underdog en þetta er samt rétt og vel skrifað.

Go girl!" Totil, "Einnig er rétt að taka fram að ég er í stórum dráttum sammála þér." Beggi dot com, "He, he, he. Þessi pistill hittir beint í mark. Og ekki skemmir að fá þennan viðauka af blæðandi blaðamönnum Fréttablaðsins." Organistinn, "Þetta var blogg sem rokkaði Alvöru rannsóknarblaðamennska." Helgi Briem, "Þakka þér kærlega fyrir að afhjúpa þessa menn. Ég kem til með að kaupa bók þína um barnastjörnuna fyrrverandi fyrir vikið." Sigurgeir Orri Sigurgeirsson, "Íha, jisús hvað þetta er satt hjá þér. og það er ekki nóg að "viðskiptadrottningin" Lindu P sé tranað fram í lélegasta fréttamennsku blaðinu á ísl í dag heldur er "drottningin" sjálf farin að birtast einum of oft framan á séð og heyrt, og ekkert annað en að auglýsa bókin. maður þarf væntanlega ekki að kaupa bókin því hún er nú búin að segja frá nánast öllu hennar lífi sjálf í þessum glans blöðum." Paxal, "Ómg, hvað þetta er innilega pirraður og skemmtilega skrifaður pistill.Rokk on, vinkona." Hexia

Og svo við þínum síðari pistli þar sem þú heldur þínu striki:

"Þegar maður les fréttablaðið (sem mér finnst þó almannt ekki alls varnað) þá skín bókstaflega í gegn stemningin á blaðinu; slepja og gagnrýnisleysi þar sem hver klappar öðrum á bakið með uppbyggilegum athugasemdum: "Stattu þig strákur"..." Ínga, "Pistillinn þinn var góður. Enginn spurning og ég held þú hafir verið helvíti nálægt sannleikanum." Igor

Nú ætla ég í sjálfu sér ekki að fara að setja saman einhverja varnarræðu fyrir okkur þau sem starfa á Fréttablaðinu né heldur fara í einhverja samanburðarfræði: En það hefur nú birst svo og svo mikið um Rut ... Við erum komin á sæmilegar villigötur með slíkum dálksentimetrametingi enda ýmsilegt annað sem ræður því hvernig stallast í blaðið. Auk þess sem fréttamat blaðamanna hefur jú eitthvað um þetta að segja. Né heldur ætla ég að setja á langloku um hvernig dagur á ritstjórn gengur fyrir sig. Þó má á það benda að það er á talsvert annan hátt en menn virðast ímynda sér. Og ef allur sá óhróður sem að okkur beinist, allar þær samsæriskenningar sem fram hafa komið eiga að ganga upp, að við sitjum löngum stundum og möndlum með það að best sé að koma þessum vel og hinum illa... þá myndi satt best að lítill tími gefast til að skrifa svo mikið sem stafkrók í blaðið.

Því miður er ekki hægt að afgreiða þessi skrif sem tilfinningalegt uppnám rithöfunds í jólabókaflóði. Mönnum leyfist ekki hvað sem er þó sú sé árstíðin. Þetta sem hér hefur birst er ekkert annað en alvarlegur atvinnurógur og lái mér hver sem vill þó mér sárni.

Kveðjur,

Jakob

Laugurinn sjálfur
Gunnlaugur Lárusson, einnig kallaður "Laugurinn" eða "Laugurinn sjálfur". Hefur haft orð á sér fyrir að vera ofstækisfullur þegar kemur að viðmótshönnun vefdagréttunarumhverfa.

Mikill áhugamaður um sjálfvirka framleiðslu, úrvinnslu og framsetningu upplýsinga.

Gunnlaugur hefur haft aðsetur í Sri Lanka frá 1997 og er lýsandi dæmi um það hvernig fjarvinnsla getur gjörbreytt vinnuumhverfi einstaklingsins.

"Sir Arthur C. Clarke kom í heimsókn um daginn. Ég spjalla við hann annað slagið á messengernum. Fínn kall."

Ég var þeirrar gæfu aðnjótandi að fá að vinna með Gunlaugi Lárussyni, Lauginum sjálfum, í rúmt ár á Strikinu. Laugrinn er alhliða snillingur og skrifaði m.a. þessa tvo snilldardóma um kvikmyndirnar 3000 Miles to Graceland og Swordfish fyrir mig á Kvikmyndastrikið. Magnað stöff!

Swordfish
Hasar, sprengingar, hakk og brjóst

John Travolta stendur langt upp úr þegar ég hugsa um myndina svona viku eftir að ég sá hana. Og svo náttúrulega sprengingin í byrjuninni...

Plottið

Myndin fjallar um ofurtölvunördinn og fyrrverandi tölvuglæpamanninn Steve Jobson (undarlega lítill nafnaútúrsnúningur þarna á ferð, Steve Jobs er aðalmaðurinn hjá Apple og goðsögn í tölvubransanum). Jobson er leikinn af Hugh Jackman (X-Men) og býr hann í treiler einhversstaðar út í sveit með olíuborpalla fyrir nágranna. Hann má ekki snerta lyklaborð tölvu í einverja tugi ára nema hann vilji fara beinustu leið í fangelsi því hann er nefninlega hættulegasti tölvunörd í heiminum. Gabriel Shear, leikinn af John Travolta (Grease, Saturday Night Fever, Pulp Fiction, Battlefield Earth) býður honum fullt af peningum fyrir að hakka sig inn í tölvukerfi banka nokkurs sem geymir ennþá meira af peningum, svo hann geti stolið þeim og notað til einhverra góðra hluta. Það kemur reyndar aldrei fram í myndinni í hvað hann ætlar að nota peningana en manni finnst samt að hann ætli að nota þá til góðs :) og þó svo hann sé alltaf að drepa fullt af saklausu fólki þá er Travolta samt ekki vondi kallinn í myndinni. Alltaf magnað þegar kvikmyndagerðarmönnum tekst að fá mann til að halda með vonda kallinum. Þetta er beisikk plottið í myndinni og eru þarna nokkrar nettar flækjur sem halda athyglinni og vel það.

Leikarar myndarinnar standa sig allir nokkuð vel en eins og áður sagði þá er það John Travolta, hinn fótalipri sem stendur upp úr. Hann er kúlið í myndinni. Halle Berry er sæta stelpan í myndinni og þar sem hún er sæt þá er hennar hlutverki fullnægt. Don Cheadle leikur löggu sem er að reyna að bösta Travolta og þar sem ég fíla gaurinn vel finnst mér gaman að sjá hann í svona semi-stóru hlutverki. Hugh "Wolferine" Jackman stendur sig frábærlega miðað við að hann sé að leika hlutverk sem ég hefði frekar ráðið Steve Buscemi til að leika og hefði myndin líklega fengið fjórar stjörnur ef Buscemi hefði leikið tölvunördinn og þeir hefðu sleppt techno-hakk atriðinu.

Technó Hakkið

Þar sem hakkandi tölvunerðir eru afar óspennandi fyrirbæri visjúalt séð þá þurfti náttúrulega að krydda hakk-atriðin einhvernveginn. Í fyrsta skiptið sem hann sést hakka er dúndrað nettum klámfílíng í senuna og er það atriði annaðhvort snilld eða eitthvað annað. Það er allavega eitthvað merkilegt við það og magnað að fylgjast með framvindu mála. Í stóru hakksenunni, þar sem Jobson sést í annað sinn við fyrir framan tölvu, þar er eitthvað mikið að. Í fyrsta lagi er tölvan sem hann fær til afnota með hundrað skjái og síðan er notendaviðmót stýrikerfisins eitthvað rosa flott designer stöff -  eitthvað sem alvöru tölvunörd myndi byrja á að henda út um gluggann. Í myndinni fílar Jobson þetta hinsvegar fínt, reykir sína vindla eins og allir sannir nördar (NOT) og fer síðan í miðju sessjoninu niður í vínkjallara og finnur gott vín til að hakka ofan í. Það versta við þetta atriði er ekki vonda euro-trash-technoið sem er spilað undir, heldur sú staðreynd að þegar Jobson er kominn í góðan hakk-fílíng þá er hann staðinn upp (enn að pikka á lyklaborðið) og farinn að snúa sér í hringi með viðeigandi Yeah-um og svoleiðis rugli. Semsagt búið að poppa upp hakksenuna eins mikið og hægt var og svosem við því að búast. Þeim sem vita ekkert um tölvur finnst þetta kannski ekkert asnalegt, en samt, tölvunörd að reykja dýra vindla og drekka rauðvín á meðan hann stundar sitt tölvuhakk? Þetta er ekki alveg að virka.

Ef horft er framhjá þessari hakksteypu þá er myndin samt helvíti góð og þeir nerðir sem lesa þetta mega vita að þessi atriði standa ekki lengi yfir og já, Halle Berry sýnir á sér brjóstin þarna í stórmerkilegu og tilgangslausu atriði sem virðist einmitt bara snúast um það að sýna brjóstin sem aldrei hafa áður sést í kvikmynd. Gott gimmikk og virkaði afar vel á mig. Hápunktur myndarinnar fyrir utan matrix-bombuna í byrjuninni er svo náttúrulega þegar rútan smassar í gegnum skrifstofu á efstu hæð háhýsis sem er full af plottandi markaðsmönnum. Magnað.

Elvis snýr sér í gröfinni
3000 Miles to Graceland

Elvis, Las Vegas, Kurt Russell og Kevin Costner? Þegar ég sá plakatið þá kom leikaravalið mér á óvart, ég ákvað að gefa Costnernum einn lokaséns og fór vongóður á þessa löngu löngu mynd. Allt kom fyrir ekki. Þetta er versta kvikmynd sem ég hef séð mjög lengi, ótrúlega vont handrit og illa pæld framleiðsla á allan hátt held ég. Kevin Costner klúðrar að sjálfsögðu vondakallshlutverkinu með glæsibrag og er þar með dæmdur endanlega úr leik.

Kurt Russell leikur aðalsöguhetju myndarinnar, góða glæponinn. Nýsloppinn úr fangelsi hittir hann sætu skvísuna Courteney Cox sem stekkur náttúrulega strax í rúmið með honum. Það næsta sem góði vondi kallinn gerir er að hitta Kevin Costner sem er sko vondi vondi kallinn. Þeir ætla ásamt 3 aðstoðarmönnum að ræna spilavíti í miðri Elvishátíð í Las Vegas. Aðstoðarmennirnir þrír eru leiknir af Christian Slater sem er fínn í sínu hlutverki, Bokeem Woodbine (góður í The Big Hit) og David Arquette. Woodbine er ekkert að virka neitt sérlega vel og eina ástæðan sem ég sé fyrir því að David Arquette er í þessari mynd er sú að hann er eiginmaður Courteney Cox. Arquette og Woodbine eru drepnir blessunarlega snemma í myndinni en Slater hefði mátt lifa aðeins lengur enda einn af fáum í þessari mynd sem nær einhvernveginn að skila sannfærandi leik. Hann og Jon Lovitz eru ljósu punktarnir leikaralega séð.

Gengið mætir síðan í spilavítið ofursvalt í Elvisgöllunum með byssurnar í gítartöskunum og svo byrjar ballið. Til að byrja með fer Kurt Russell (ég nenni ekki að nota nöfn karakteranna í myndinni, það þjónar engum tilgangi) ekki með hinum til að ræna peningageymsluna. Hann fer og tengir framhjá einhverri lyftu til að hinir geti sloppið upp á þak þegar allt er komið í háaloft. Það skal tekið fram að fram að þessu er myndin búin að vera bara fín og engin ástæða til að óttast neitt mikið. Á leiðinni úr peningaherberginu í lyftuna fer síðan náttúrulega allt í háaloft og meira að segja sjálfur kasínómanagerinn kominn með AK-47. Costnerinn og hinir þrír eru síðan búnir að drita niður óteljandi öryggisverði í óskiljanlegum hasarskotum a la MTV með hratt/hægt effektum og techno sándtrakki þegar þeir komast loksins inn í lyftuna. Einhver hrópar þá á Russell að hann þurfi að sjá um nokkra öryggisverði. Það sem hann gerir þá er fyrsta alvöru merkið um að þetta sé vond mynd. Í stað þess að plaffa verðina niður þá miðar hann upp í loft og skýtur eitthvað glerdót í tætlur svo það dettur niður í þúsund milljón molum. Hann er nefninlega góði glæponinn.

Restin af myndinni er martröð. Courteney Cox, sem er orðin smá skotin í Russell, á nefninlega son sem er frekar pirrandi karakter og stelsjúkur í þokkabót. Honum tekst að stela peningatöskunni frá Russell og í kjölfarið heimtar Cox að fá að fara með Russell, sem hún veit að er verið að leita að því hann var í genginu sem drap tugi manns í ráninu mikla. Ástin er náttúrulega blind og allt það en þetta er samt ekki neitt. Þau halda semsagt af stað eitthvað norðureftir á leið til Jon Lovitz sem ætlar að þvo peningana því þeir eru merktir. Eftir að hafa verið í smástund á ferðinni þá stingur hún af með peningana og skilur son sinn eftir hjá síbrotamanninum Kurt Russell. Og þá hefst martröðin semsagt af fullri alvöru. Myndin breytist í einhverslags John Hughes föður/sonar ævintýri þar sem þeir bindast einhverjum böndum, stela trukk og bla bla bla.

Eitt atriði sem mér finnst þurfa að nefna því mér finnst það einhvernveginn lýsa þessum hluta myndarinnar, sem er n.b. allt of langur. Myndin er reyndar svo löng að vinir mínir tveir sem sáu myndina með mér sofnuðu báðir. Atriðið sem um ræðir er eitt stutt skot inni á klósetti bensínstöðvar þar sem sonurinn ætlar að kasta vatni. Við sjáum þrjár pissuskálar. Við þá sem er lengst til vinstri er stór, feitur og skítugur hillbilly. Drengurinn gengur að skálinni í miðjunni og hvað gerist? Stóri feiti kallinn prumpar! Strákurinn færir sig þá um eina skál og gerir þarfir sínar. Þetta er semsagt atriði sem snýst um þetta prump. Prumpubrandari. Prumpubrandarar geta alveg verið fyndnir en þetta atriði kemur bara eins og þruma úr heiðskíru lofti og passar einhvernveginn ekki neitt inn í myndina, nema þetta er náttúrulega vont atriði eins og flest önnur í myndinni og passar þannig séð ágætlega. Mér finnst magnað að velta því fyrir mér að einhver hafi gjörsamlega skrifað þessa senu í handritið. Ennþá magnaðra finnst mér að spá í hvað fór mikill tími og vinna í að filma atriðið. Ótrúlegt.

Þegar hinum ógurlega John Hughes hluta myndarinnar er lokið hefst hasarinn að nýju. Kevin Costner er búinn að hóa til gaura í eitthvað vöruhús með fullt af byssum. Ætlunin er að komast yfir peningana sem Kurt Russell er þá nýbúinn að fá aftur frá Courteney Cox. Costnerinn rænir krakkanum og spilar á góða glæponagenið í Russell og fær hann til að skila peningunum í skiptum fyrir drenginn.

Það er síðan þegar Kevin Costner er að ræða við þyrluflugmanninn og byssureddarann sem þessi snilldarsena á sér stað:

Byssusalinn Jack: "You asked for firepower.... meet Hamilton."

(Sjálfur Ice-T gengur út úr skugganum búinn alvæpni)

Thomas J. Murphy (Kevin Costner): "I said get a couple of guys, Jack. A couple of guys."

Jack: "He is a couple of guys."

Þarna gapti ég bara í bíóinu og muldraði örugglega "haaaa" án þess að fatta það. Annað var ekki hægt. Síðan fer allt í háaloft, löggur út um allt og allir að skjóta á alla og ekkert hægt að skilja vegna fyrrnefndra mtv effekta. Hamilton lætur síðan ljós sitt skína í glæsilegasta atriði myndarinnar sem ég gat ekki annað en hlegið dátt að þó svo það hafi sennilega ekki verið ætlun framleiðenda myndarinnar. Allt er semsagt komið í bál og brand og útlitið ekki gott fyrir vondu kallana. Þá sjáum við Hamilton sjálfan koma svífandi á hvolfi með fæturna bundna í einhverskonar kaðal sem er festur í einhverja rennu sem hann hefur fundið. Með hendurnar útréttar og hríðskotabyssur í báðum höndum snýst hann í hringi og úðar skotunum í allar áttir. Hann er auðvitað plaffaður niður enda ekki hægt að finna auðveldara skotmark.

Hvernig hugsaði handritshöfundurinn þetta atriði? Átti sjálfur Hamilton að hafa fundið kaðalinn, bundið fæturna saman og fleygt sér af stað? Úff... Snarfyndið atriði sem ég mun oft minnast glaður í framtíðinni.

Einhvernveginn næst síðan að spila inn í þetta allt saman að Kevin Costner og Kurt Russell séu óskilgetnir synir Elvis Presley sem segir sennilega meira en allt hér að ofan.

Þessi mynd fær ekki stjörnur. Hún fær