aðrir

Snilld Hallgríms
Hallgrímur Helgason átti sviðið í áramótauppgjörshasarnum með frábærri grein sinni, Svikasumar, í Fréttablaðinu á gamlársdag. Þarna sýndi hann allar sínar bestu hliðar og fór hamförum í stílæði. Þar sem fjölmiðlar og ástand þeirra eru mér mjög hugleikin tel ég rétt að halda þessum hluta greinarinnar sérstaklega til haga:

Fjölmiðlar á fjölmiðlafrumvarpsári

Miðlarnir stóðu vaktina í sumar en svo er líkt og þeir hafi sofnað. Þeir minna okkur til dæmis ekki á þá staðreynd að forstjóri Olís heitir ennþá Einar Ben og þeir segja okkur ekki hvort Halldór Ágrímsson laug um Írak eða ekki. Þetta eru greinilega engin stórmál, þannig. Ef Íslendingar hefðu stjórnað bandarískum fjölmiðlum væri Nixon enn á lífi, löngu búinn að breyta stjórnarskránni og því enn þá forseti Bandaríkjanna, hefði dætur sínar sem aðstoðarmenn og búinn að raða barnabörnunum í The Supreme Court. Eða hvar eru blaðamennirnir sem geta sagt okkur hvað samráðsfurstarnir borguðu mikið í sjóði olíuflokkanna tveggja sem aldrei fást til að opna sitt eðla bókhald?

Íslendingar taki ábyrgð - annars ræni ég Landsbankann!
Ástþór Magnússon fær allt of litla athygli í fjölmiðlum. Badabing! reynir að bæta úr því með því að birta boðskap hans hér:

Ég var mjög hrifinn af verkefni Rauða Krossins Göngum til góðs þann 2 október.  Þar sem ég var staddur hér heima tók ég að sjálfsögðu þátt í þessu og mætti til göngu að morgni laugardags.

Það var frábært hvað fólk tók vel á móti og nær undantekningarlaust gaf fólk í Rauða Kross baukinn.  Oftast um þúsund krónur, stundum var klink úr öllum heimshornum tæmt úr hin ýmsu krukkum í poka hjá mér þannig að yfir daginn tókst mér að safna einhverjum 4 fullum baukum.

Hann er tékkasvindlari og þjófur
Höfuðsnillingurinn Haraldur, heitinn, Blöndal sendi mér þessar línur eftir að viðtal mitt við vitleysinginn Paul Watson birtist í Fréttablaðinu. Hann fylgdi sendingunni svo eftir með símtali sem var að vonum leiftrandi skemmtilegt.

Hr. ritstjóri.

Í Fréttablaðinu í dag, 30. ágúst, er opna um Kanadamann að nafni Paul Watson og er ma. viðtal við hann. Í viðtalinu lýgur hann svo, að nauðsynlegt er að leiðrétta.

Brengluð mynd af Stormskeri
Mér fannst þetta frekar einkennileg ?heimildarmynd? hjá honum Jónasi kóknös Knútssyni, eins og hann er kallaður. Fyrir það fyrsta þá kom hvergi fram að þetta er 7 ára gömul mynd, í öðru lagi þá kom aldrei fram hvernig viðmælendurnir tengdust mér og í þriðja lagi þá kom enginn fram í myndinni sem þekkti mig að einhverju ráði og þessvegna held ég að sjónvarpsáhorfendur hafi orðið akkúrat engu nær um mig eftir þáttinn, sem í sjálfu sér er náttúrulega ágætt, því þá er nóg pláss fyrir fordóma.

Bréf Ástþórs til Powell
16 March 2004.

Dear Secretary Powell,

I read yesterday with interest of your comments on Fox News Sunday: "Russians have to understand that to have full democracy of the kind that the international community will recognize, you've got to let candidates have all access to the media that the president has,"

Unfortunately I am as a Presidential Candidate in Iceland experiencing similar difficulties with the most established newspaper in our country. The newspaper Morgunbladid is clearly trying to influence the outcome of the Presidential elections in Iceland with their news coverage.

Bestu bíómyndirnar 2003
Meðgagnrýnendur mínir á Fréttablaðinu, Biggi Maus og Einhverskonar Þráinn, lögðu í áramótauppgjörspúkkið ásamt Hulla.

Þetta fannst þeim:

Atvinnurógur á blogginu
Tóta pönk eipaði á Fréttablaðinu og helti úr skálum reiði sinnar á blogginu sínu. Félagi Jakob var ekki að fíla það að hún lét í það skína að blaðamenn létu kunningsskap og vinargreiða ráða fréttamati sínu og svaraði henni á síðunni hennar og ég hef hér með stolið því ágæta svari:

Sæl Þórunn Hrefna!

Ég veit ekki hvort ég eigi að vera að elta ólar við þetta, en má eiginlega til fyrst þú nefnir mig til sögunnar sem einn þeirra sem ýjað hafi að því að pistilinn hafir þú skrifað í einhvers konar tilfinningalegu uppnámi. Það er rétt upp að vissu marki og ég var reyndar að vonast til þess að þú myndir draga í land. Jafnvel biðjast afsökunnar. En forherðingunni virðast engin takmörk sett. Þú sagðir nefnilega talsvert meira en að þér þætti vænt um sannleikann og bækur. Í raun var kjarninn í pistli þínum þessi:

Laugurinn sjálfur
Gunnlaugur Lárusson, einnig kallaður "Laugurinn" eða "Laugurinn sjálfur". Hefur haft orð á sér fyrir að vera ofstækisfullur þegar kemur að viðmótshönnun vefdagréttunarumhverfa.

Mikill áhugamaður um sjálfvirka framleiðslu, úrvinnslu og framsetningu upplýsinga.

Gunnlaugur hefur haft aðsetur í Sri Lanka frá 1997 og er lýsandi dæmi um það hvernig fjarvinnsla getur gjörbreytt vinnuumhverfi einstaklingsins.

"Sir Arthur C. Clarke kom í heimsókn um daginn. Ég spjalla við hann annað slagið á messengernum. Fínn kall."

Ég var þeirrar gæfu aðnjótandi að fá að vinna með Gunlaugi Lárussyni, Lauginum sjálfum, í rúmt ár á Strikinu. Laugrinn er alhliða snillingur og skrifaði m.a. þessa tvo snilldardóma um kvikmyndirnar 3000 Miles to Graceland og Swordfish fyrir mig á Kvikmyndastrikið. Magnað stöff!

Swordfish
Hasar, sprengingar, hakk og brjóst

John Travolta stendur langt upp úr þegar ég hugsa um myndina svona viku eftir að ég sá hana. Og svo náttúrulega sprengingin í byrjuninni...

Elvis snýr sér í gröfinni
3000 Miles to Graceland

Elvis, Las Vegas, Kurt Russell og Kevin Costner? Þegar ég sá plakatið þá kom leikaravalið mér á óvart, ég ákvað að gefa Costnernum einn lokaséns og fór vongóður á þessa löngu löngu mynd. Allt kom fyrir ekki. Þetta er versta kvikmynd sem ég hef séð mjög lengi, ótrúlega vont handrit og illa pæld framleiðsla á allan hátt held ég. Kevin Costner klúðrar að sjálfsögðu vondakallshlutverkinu með glæsibrag og er þar með dæmdur endanlega úr leik.