»  bókadómar  »  Liggur vegurinn til Sunnuhlíðar í gegnum Stokkseyri?
nýlegir dómar

nýleg komment

a long time ago...
Liggur vegurinn til Sunnuhlíðar í gegnum Stokkseyri?
Miðvikudagur, 01. nóvember 2000
:: birt á www.strik.is ::

Ísak Harðarsson: Ský fyrir ský Ljóð 1982-1995. Forlagið 2000

Ég held örugglega að ég hafi hugsað "loksins, loksins", þegar ég frétti að til stæði að gefa út heildarsafn ljóða Ísaks Harðarsonar og ég hefði örugglega haft þessi orð í fyrirsögn hér ef þau hefðu ekki áður verið notuð í bókadómi og séu fyrir lifandis löngu orðin að útjaskaðri klisju. Það breytir því þó ekki að útgáfa ljóðasafns Ísaks er löngu tímabær og bókin Ský fyrir ský er mikill fengur fyrir alla aðdáendur skáldsins og unnendur íslenskrar ljóðlistar. Fyrir aðdáendur Ísaks er bókin sérstaklega kærkomin þar sem sumar ljóðabækur hans eru orðnar illfáanlegar og oftar en ekki hafa menn einungis fundið þær á bókamörkuðum, frekar þreytulegar og angandi af fúkka, þannig að það eitt og sér að fá allar átta ljóðabækur Ísaks saman í einu er stórviðburður, ekki síst þar sem skáldskapur Ísaks hefur þróast nokkuð í gegnum árin og því hin besta skemmtun að lesa ljóðin í réttri tímaröð, með tilliti til aldurs og fyrri áhrifa.

Ísak vakti strax athygli með fyrstu ljóðabók sinni Þriggja orða nafn, sem kom út hjá Almenna bókafélaginu árið 1982 og hlaut viðurkenningu í bókmenntakeppni sem útgáfan efndi til á 25 ára afmæli sínu. Ræflatestamentið fylgdi svo í kjölfarið árið 1984, þar á eftir Slý 1985, Veggfóðrarður óendanleiki 1986, Útganga um augað læst 1987, Síðustu hugmyndir fiska um líf á þurru kom svo út árið 1989, Stokkseyri 1994 og hvítur ísbjörn 1995. Auk ljóðabókanna hefur Ísak gefið út smásagnasafnið Snæfellsjökull í garðinum 1989, játningabókina Þú sem ert á himnum... þú ert hér árið 1996, skáldsöguna Mannaveiðihandbókina 1999, auk fjölda þýðinga.

Þriggja orða nafn fékk ágætar viðtökur þegar hún kom út og sagði Vésteinn Lúðvíksson m.a. í ritdómi um bókina í Tímariti máls og meningar 1/1983 að með henni stykki Ísak yfir atómskáldin og þá kynslóð skálda sem kom á eftir þeim og tæki sér stöðu við hlið Steins Steinars, þar sem hann væri mjög áleitinn og reyndi raunverulega að takast á við vandamál samtíma síns. Andri Snær Magnason finnur, í inngangi að Ský fyrir ský, ljóðum Ísaks stað á sömu hillu og Vésteinn sautján árum áður:

Staða Ísaks í og andspænis heiminum minnir á stöðu og afstöðu Steins Steinars, Dags Sigurðarsonar og jafnvel Bólu-Hjálmars, stundum með smákeim af æði Æra-Tobba og Jónasar Svafárs. Ísak mætti flokka með skáldunum sem eru utan hringsins og hringiðunnar, utan við kerfi og mynstur og í andstöðu við ríkjandi hugmyndir. Og líkt og hjá þeim skáldum sem fyrr voru nefnd má í ljóðum hans oft finna djúpstæða örvæntingu og svartsýni sem dansa undarlegan skottís við skopðskyn og kraftmikið ljóðmál. (Ský fyrir ský. bls 12).

Vésteinn les Ísak sem andsvar við Steini en um leið sem framhald af honum. Hann segir Ísak ekki flýja angist sína "heldur taka hana til sín" og glíma við hana. "Ótti hans, einsemd og ofsóknarkennd eru ósvikin. Samt hefur hann betur. Í því felst styrkur hans og nýjabrum bókarinnar". Vésteinn segir Ísak ekki lokast inn í þjáningu sinni og hann lúti ekki í lægra haldi fyrir tilgansleysi þess að vera til, eins og Steinn. Ísak fann sjálfur í ljóðum Steins ákveðna samsvörun við þeirri tilfinningakreppu sem hann var í:

Og sjá, þú fellur fyrir draumi þínum Í fullkominni uppgjöf sigraðs manns. Hann lykur um þig löngum armi sínum, Og loksins ert þú sjálfur draumur hans.

Var þetta ekki einmitt lýsing á skelfingunni og tilgangsleysinu sem höfðu verið mér samgrónir fylgifiskar í heila eilífð? Það var þá einhver sem hafði upplifað það sama og ég; ég skildi einhvern og einhver skildi mig! (Þú sem ert á himnum… þú ert hér. Bls. 71-72.)

Ísak tekur við af Steini, tekst á við þjáninguna, leitar að sönnum tilgangi lífsins og um leið að einhverri fastri merkingu í merkingarleysi samtíðarinnar. Eins og Andri bendir á í inngangi sínum, kemur Ísak í Ræflatestamentinu með nýja flóttaleið sem felst í kæruleysi í stað smælingjasamúðar og "pælinga um hugmyndakerfi og alheimslausnir. Í stað þess að þykjast vita allt og hafa samúð með öllum þá vilja menn ekkert vita og gefa skít í allt". Andri bendir jafnframt á að þrátt fyrir alla bölsýnina sem birtist í fyrstu ljóðum Ísaks og að mælandi ljóðanna virðist við fyrstu sýn, fyrst og fremst, vera talsmaður trúleysis, megi þó, ef vel er að gáð, sjá ríka trúarþörf skína í gegnum flestar ljóðabækur skáldsins frá því það "týndi og fann veginn til Sunnuhlíðar í fyrstu bókinni".

Ísak gerir svo sjálfur frekar lítið úr þjáningunni sem birtist í ljóðunum í eftirmála ljóðasafnsins þar sem hann segir að með ljóðum sínum hafi hann reynt að fikra sig ský fyrir ský "í gegnum gjörningaþoku heims og hugsana í átt að heiðum himni" og hann bætir því við að ólíkt mörgum hafi honum engin vorkun verið þar sem hann þóttist vita "allan tímann að hann VÆRI þarna og myndi aldrei sleppa af mér hendinni".

Þegar ferill Ísaks er skoðaður með tilliti til játninga hans frá 1996 er þó alls ekki út í hött að lesa sum ljóðin sem hugarfóstur þunglyndissjúklings eða alkóhólista, rétt eins og verk manns í þrotlausri leit að Guði. Flestir lenda í einhverjum krísum og tilvistarkreppum um ævina og lausnirnar geta verið margar; hrein afneitun, eða meðfædd og dýrmæt heimska, samtalsmeðferiðr hjá misviturm sálfræðingum og geðlæknum, áfengismeðferðir og þau vandræðalegu lyf er við prósakk eru kennd. Rétt eins og sjálft almættið, og það að sjá ljósið, getur þetta allt virkað í einhverjum tilfellum, en innst inni halda þó sennilega flestir áfram að leita, vitandi að það er ekkert sem segir að vegurinn sem þeir feta til Sunnuhlíðar sé endilega sá rétti.

Ísak tilfærir þessa póstmódernísku angist mjög skemmtilega í Þú sem ert á Himnum… þú ert hér:

Þegar Ísak Harðarsson vaknaði einn daginn á örsmárri jarðkúlu af hamingjusömum æskudraumum, hafði hann breyst í risavaxna bjöllu. Ég barðist eins og örvæntingarfullt dýr við að sleppa úr hræðilegri gildru efans. Mér fannst ég hanga á örmjóum þræði yfir svörtu, víðu, endalausu hyldýpi, og ég vissi að ef ég missti takið á þessum síðustu tengslum við veruleikann, yrði ég að eilífu glataður.

Ísak lýsir því hvernig hann leitaði merkingarinnar í hinum ýmsu deildum Háskólans og nánast út um allt áður en hann sjá ljósið og varð hólpinn. Þessi lausn breytir því þó ekki að í hinni örvæntinagrfullu leit sinni skrifaði hann aragrúa ljóða sem vissulega geta alltaf hafa stefnt í áttina að ljósinu, en þau geta um leið vísað lesendum út um allar trissur og sent þá í áframhaldandi sannleiksleit, sem er alveg út úr öllum kortum kristinnar kenningar, enda er það sjálfsagt algert aukaatriði hvort fólk vill lesa ljóðin sem samfellda leit að trú, hvernig Ísak sjálfur skoðar feril sinn í afturliti eða einhverjir vilji skipta skáldaferlinum í mismunandi skeið og hanga staðfastlega í því að fyrstu ljóðin séu keyrð áfram af dásamlegri óvissu og trúleysi. Aðalatriðið er að hver og einn verður að leggjast í sína leit og það eitt er víst að leitin verður bæði fátæklegri og leiðinlegri ef fólk lætur ekki Ísak rugla sig enn frekar í ríminu á leiðinni.

Síðustu hugmyndir fiska um líf á þurru kemur út árið 1989 og markar e.t.v. ákveðin þáttaskil á ferli Ísaks. Bókin kemur út eftir áfengismeðferð og aðrar hremmingar og tóninn í ljóðum hans hefur mildast nokkuð og hann er líkt og Steinn horfin ofan í vatn. Það má hugsanlega skoða hvarf hans ofan í djúpið táknrænt sem afturhvarf til upphafs alls, þar sem hann sér svo ljósið föstudaginn 18. maí 1990 og frelsast. En hann heldur þó áfram að velkjast í vatni eftir þessi straumhvörf og rekur á land á Stokkseyri, sem er auk þess að vera kauptún í Árnessýslu "staður, stund eða ástand nálægt mörkum hins ósýnilega, óhugsaða eða yfirvofandi, (s.s. New York, 20. öldin, mannlegur veruleiki), oft byggt eða skynjað af fólki sem lifir einföldu lífi eða lostið er eldingum".

Það er langur vegur milli Þriggja orða nafns og hvíts ísbjörns. Stíll og efnistök taka nokkrum breytingum en inntak ljóðanna hefur lítið breyst þegar þau eru skoðuð í heild. Vésteinn Lúðvíksson greindi trúarlegan tón hjá Ísak strax í upphafi:

Tilfinningin er trúarleg, en aðeins í víðustu merkingu orðsins. Ísak gefur ekki út neinar ávísanir á almættið. En hann finnur sér leið til hins óþekkta, óendanlega og óræða í sjálfum sér og mannkindinni yfirleitt og þar með möguleikum hennar til skynjunar og skilnings. (TMM 1/1983. Bls. 115-116.)

Andri Snær greinir einnig þennan trúarlega tón í upphafi og út í gegnum allan feril Ísaks og ég verð að fallast í megindráttum á niðurstöðu hans, sérstaklega þegar ljóðin eru lesin með tilliti til þess sem Ísak segir um þjáningu sína í eftirmálanum og stöðu hans í dag, en þar sem uppreisnar og guðleysistóninn í fyrstu bókum Ísaks heillaði mig, í upphafi, kýs ég þó (prívat og persónulega) að lesa ljóðin sem endalausa leit að merkingu og tilgangi, án þess að Guð þurfi endilega að vera sú merkingarmiðja sem kemur til með að virka. Tónninn sem er í upphafi reiður, vonlaus og háðskur dýpkar með tímanum og í djúpinu finnur skáldið einhvers konar ljós sem færir hann nær óræðum sannleika.

Ísak er þó enn á svipuðum slóðum og í upphafi, enda er ekki að sjá að einmanaleikinn og óttinn hafi fyllilega horfið eftir að hann sá ljósið og leitin heldur vonandi áfram og við getum sjálfsagt gengið út frá því sem vísu að vegurinn til Sunnuhlíðar liggur annaðhvort framhjá eða í gegnum Stokkseyri.


| 12:28 |

Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff