Miðvikudagur, 17. október 2001
:: birt á www.strik.is ::
Skrifaður með Jóhönnu Þórey dóttur minni sem lagði línurnar.
"Sjáumst aftur..." segir frá Kötlu sem er tólf ára. Hún
flytur með foreldrum sínum frá Reykjavík til Vestmannaeyja af
því að pabbi hennar fékk spennandi vinnu þar. Hún vill ekki flytja
og saknar vina sinna og ömmu og afa í Reykjavík. Hún er óánægð
í nýja skólanum en eignast sem betur fer fljótlega eina góða vinkonu
en það sem er mest spennandi hjá henni er að hún finnur gamla
klossa og kemst með þeim í samband við góða stelpu sem er löngu
dáin. Stelpan heitir Guðrún og það er eins og hún vilji
vara Kötlu við einhverju hræðilegu, þannig að sagan verður mjög
fljótt dularfull og spennandi, sem mér finnst mjög gott af því
ég þoli ekki bækur sem eru lengi að byrja.
Katla og Júlía, vinkona hennar, eru vissar um að leiðinlegur
maður sem vinnur með pabba hennar Kötlu sé glæpamaður. Þær byrja
að fylgjast með honum, eftir að Guðrún bendir Kötlu á hann, og
svo halda þær líka áfram að leita eftir vísbendingum hjá Guðrúnu.
Það gerist mikið af spennandi og dularfullum atburðum og spennan
verður alltaf meiri og meiri og mér fannst svo mest gaman í lokin
þegar sannleikurinn kemur í ljós. Endirinn kom mér nefnilega mjög
mikið á óvart en svona bækur, sem ná að plata mann svolítið og
koma manni svo á óvart eru lang skemmtilegastar.
"Sjáumst aftur..." er líka mjög fróðleg og maður lærir mikið
um lífið í gamla daga út af sögu draugsins, hennar Guðrúnar, og
svo er líka sagt mikið frá lífinu í Eyjum, eldgosinu, fiskveiðum
og því hversu mikilvægt það er fyrir Íslendinga að hugsa vel um
náttúruna og halda sjónum hreinum út af öllum fiskinum sem við
veiðum.
Katla, Júlía og gömlu hjónin, vinir þeirra, eru mjög skemmtilegar
persónur og mér fannst ég skilja Kötlu mjög vel. Svo fannst mér
líka Guðrún frábær persóna. Hún er löngu dáin og er draugur en
hún er samt mjög góð og kurteis. Katla er skyggn, sér drauga og
fortíðina, og mér finnst það mjög "kúl", þannig að þetta er bók
mínu skapi og ég var eiginlega búin að bíða eftir svona bók, með
skyggnri aðalpersónu og draugagangi. Hún er dularfull og spennandi.
Bók að mínu skapi sem ég held að allir krakkar hafi gaman af að
lesa.