Fimmtudagur, 15. nóvember 2001
:: birt á www.strik.is ::
Arnaldur Indriðason: Grafarþögn Vaka-Helgafell 2001
Arnaldur Indriðason hefur fest sig í sessi sem einn helsti
sakamálasöguhöfundur landsins og í Grafarþögn mæta þeir
félagar Erlendur og Sigurður Óli til leiks enn á
ný, en rannsóknarlögreglumennirnir tveir eru orðnir góðkunningar
þeirra sem fylgst hafa með ferli höfundarins. Að þessu sinni reyna
þeir að komast að sögunni á bak við beinagrind sem finnst í Grafarholtinu.
Beinin hafa greinilega legið í jörðu í einhverja áratugi og grufl
þeirra félaga í leit að hugsanlegum glæp í fortíðinni blandast
saman við daglegt streð þeirra í nútíðinni.
Arnaldur fléttar tveimur fjölskylduharmleikjum stríðsáranna saman
við frásögnina af leit félaganna og ýmsar persónur í þeim átökum
gætu átt beinin sem fornleifafræðingar Þjóðminjasafnsins dunda
sér við að dusta moldinni ofan af á meða löggurnar eltast við
drauga fortíðarinnar. Arnaldur er mun sprækari í "gamla daga"
og nær ágætis flugi í skelfilegri sögu fjölskyldu sem bjó í Grafarholtinu
á stríðsárunum, en móðir og börn bjuggu þar við stöðugt andlegt-
og líkamlegt ofbeldi kengruglaðs heimilisföðurins. Grafarþögn ristir dýpst í þessum köflum og er fyrir vikið eiginlega miklu
álitlegri sem fjölskyldudrama en spennusaga. Persónur harmleiksins
eru töluvert dýpri en marflatar persónur lögreglumannanna, sem
eru lengst af þreyttir og leiðinlegir enda höggnir í gallhart
klisjugrjót glæpasagnahefðarinnar og afþreyingarmenningar 20.
aldar.
Sagan er ekkert ýkja frumleg og álíka plott hafa sennilega komið
morðóðum lesendum Arnalds fyrir sjónir í velflestum sakamálaseríum
í sjónvarpinu. Mér duttu a.m.k. strax aldavinir mínir Frost og Taggart í hug, enda er hinn veðraði Erlendur eins og
skugginn af þeim félögum; miðaldra fýlupúki með allt niður um
sig andlega en stútfullur af visku þess sem hefur orðið bumbult
af því að súpa ófáar fjörurnar í lífsins ólgusjó. Erlendur er
þó greinilega eftirlæti höfundarins og hann nostrar töluvert við
hann, gefur honum sorglegan bakgrunn og rómatíska þrá eftir gömlu
sveitinni sem blossar upp þegar sollurinn í Reykjavík ofbýður
honum. Þessi íslenska erkitýpa hefði að ósekju mátt drepast með
Ragnari í 79 af Stöðinni enda orðin frekar þreytt
á öndverðri 21. öldinni. Erlendur uppfyllir þrátt fyrir þetta
lágmarkskröfur sem gera verður til aðalpersónu í skáldverki af
þessu tagi og sleppur fyrir horn sem burðarbiti sögunnar ólíkt
Sigurði Óla sem er dæmigerður fylgihnöttur gömlu tuskulegu löggunnar;
framagjarn uppi í fínum fötum, sem gerir ekkert utan vinnutíma
en að ríða flottu kærustunni sinni og hafa áhyggjur af því hvort
hann sé tilbúinn til að ganga í hjónaband. Vægast sagt leiðinlegur
gaur.
Grafarþögn líður nokkuð fyrir þreyttar aðalpersónurnar
og þá staðreynd samtímahluti sögunnar er frekar bragðdaufur þar
sem verið er að rannsaka áratuga gamlan glæp og átökin og spennan
eiga sér því stað í fortíðinni og ógnin verður einhverra hluta
vegna frekar fjarlæg lesendunum og lögreglumönnunum. Þetta breytir
því þó alls ekki að bókin er ágætis afþreying og eins og fyrr
segir tekst Arnaldi að skapa þjakaðri Grafarholtsfjölskyldunni
samúð og það er ekki laust við að maður fletti blaðsíðunum aðeins
hraðar þegar fer að glitta í alla beinagrindina undan moldarlaginu,
þó lokaniðurstaðan komi sennilega fæstum á óvart. Stíll höfundar
er mjög blátt áfram og tilþrifalítill, þannig að sagan rennur
eiginlega of ljúft í gegn, en að mínu mati liggur helsti möguleiki
spennusagnahöfunda á að hefja verk sín upp yfir meðalmennskuna
í stílnum. Efniviðurinn er nánast undantekningarlaust margþvældur
en kjarngóður og meitlaður stíll getur gert nauðaómerkilega glæpasögu
að bókmenntaverki. Menn ættu að taka sér "pulp" kónginn Raymond
Chandler til fyrirmyndar í þessum efnum.
En Grafarþögn er sem sagt frambærileg skáldsaga sem virkar
sterkar sem þokkalega spennandi fjölskyldudrama, um hræðilegar
afleiðingar heimilisofbeldis, frekar en "þriller". Það ætti því
engum að leiðast yfir lestrinum og með sterkari persónum og tilþrifameiri
stíl hefði Grafarþögn getað skilið mikið meira eftir sig
en breskur krimmi í sjónvarpinu á þriðjudagskvöldi.