»  bókadómar  »  október 2002
bókadómar
október 2002

a long time ago...
Sálarlíf morðingja
Miðvikudagur, 30. október 2002

Óvinurinn eftir Emmanuel Carrère er mögnuð og óþægileg lesning um virðulegan lækni, Jean-Claude Romand, sem byggir allt sitt líf á blekkingum og grípur að lokum til þess örþrifaráðs að myrða eiginkonu sína, tvö börn og foreldra að því er virðist til að hlífa þeim við óþægilegum sannleikanum.

Persóna Romands vakti forvitni rithöfundarins Carrère sem lagði í óhuggulegt ferðalag um sálarfylgsni hans. Carrère treystir viðfangsefni sínu mátulega og efinn skín í gegnum frásögnina. Þá er ljóst að hann hálf skammast sín fyrir að gera sér mat úr málinu og lesandinn sjálfur hlýtur einnig að spyrja sig hvaða hvatir ráði því að hann þyrsti í að lesa þennan raunverulega hrylling.

Sagan er afskaplega læsileg og lipur í þýðingu Sigurðar Pálssonar og það verður enginn ósnortinn af Óvininum sem svarar því ekki hvort það séu menn eða skrímsli sem geta strokið hár barna, sinna sagst elska þau og skjóta þau svo með haglabyssu. Það er engin lausn í því að stimpla manninn einfaldlega geðveikan. Lífið er flóknara en svo.


Taktu bara Taxa
Föstudagur, 18. október 2002

Það getur allur andskotinn gerst í leigubílum og það gengur á ýmsu í leigubílasögunum sem Ævar Örn Jósepsson hefur safnað saman í þessa bók. Sögurnar eru flestar stuttar og margar hverjar eru býsna reyfarakenndar. Sumar ljótar og aðrar fallegar. Þarna eru sögur af gegndarlausu fylliríi, ælum, eiturlyfjum, ást, ofbeldi, kynlífi, framhjáhaldi og sjálfsmorðstilraunum og bókin því hinn besti skemmtilestur.

Sögurnar eru flestar stuttar en endurspegla fjölbreytileika mannlífsins þó að maður upplifi þær svolítið eins og brandara; skemmtilegar en skilja lítið eftir sig. Aðrar rista svo dýpra og vekja mann til umhugsunar um mannlegt eðli og þótt þær séu flestar spaugilegar þá grafa þær margar hverja undan trú manns á mannkyninu og þessari blessuðu þjóð þegar hún er komin á sitt lægsta plan og skríður upp úr sollinum inn í leigubílinn. Einhverjir eiga örugglega á hættu að skammast sín yfir þessum litríku sögum en enn fleiri munu sjálfsagt prísa sig sæla yfir því að afrek þeirra hafi ekki komist á blað.


Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff