Þriðjudagur, 03. desember 2002
Gúmmi-Tarsan.
Ole Lund Kirgegaard.

Þegar ég var ungur gat ég ekki séð betur en að Danir hefðu aldrei látið neitt gott af sér leiða annað en Stjörnumerkjamyndirnar og bækur Ole Lund Kirgegaard. Ég held svei mér þá að þetta hafi bara ekkert breyst. Stjörnumerkjaklámið er þó auðvitað löngu úrelt og ekki mönnum bjóðandi í dag þegar alþjóðaklámvæðingin hefur náð hámarki. Bækur Ole Lund standa hins vegar enn fyrir sínu og gott betur en það og hann Jóhann Páll í JPV er síður en svo galinn að vera að endurútgefa þessa snilld. Fúsi froskagleypir er auðvitað aðalgaurinn í kostulegu persónugalleríi þess danska en Gúmmí- Tarsan er líka andskoti góður.
Maður las þetta auðvitað upp til agna í gamla daga (þessi kom út fyrst á Íslandi 1978) og krakkarnir mínir eru að fíla þetta í botn. Sýnist bara Kirkegaard gamli bara vera kærkomin tilbreyting frá öllum Potteríska bægslaganginum sem er í gangi í barnabókunum þessi árin.
Gúmmí-Tarsan er stutt og þægileg. Ekki nema 10 kaflar og þeir eru frekar stuttir og letrið stórt, þannig að maður nennir meira að segja að lesa fyrir krakkana á kvöldin. Það verður að teljast nokkuð gott á þessum síðustu og verstu tímum. Svo er maður auðvitað í kasti yfir þessu. Persónurnar eru alveg dásamlegar og húmroinn ekki síður.
Ívar Ólsen er okkar maður, brjóstumkennanlegur og algert fórnarlamb sem fær þó uppreisn æru (a.m.k. í einn dag). Nördar og aular allra landa geta sameinast í sigurvímu yfir afrekum Gúmmí-Tarsans þegar hann lumbrar á föntunum og nefbrýtur leikfimikennarann. Þá er fjör. Senuþjófur bókarinnar er svo vitaskuld hinn ömurlegi pabbi Ívars. Fífl sem gerir óraunhæfar kröfur á son sinn. Öll þeirra viðskipti eru hrein snilld.
Hrákarnir hans Ívars voru bara agnarlitlar, hvítar slefur, sem runnu allr út og niður eftir peysunni hans.
"Heyrðu mig nú!" kallaði pabbi hans og stakk höfðinu út um gluggann. "Þú stendur þó ekki þarna og slefar þig allan út, drengur?"
"Jú, ég er víst að því", sagði Ívar - og kom sér í burtu.
Dásamlega misskinn ungur maður. En ævintýri hans skilja allir og hafa gaman af. Myndskreytingar höfundar eru punkturinn yfir i-ið. Þær eru komnar í lit í endurútgáfunni sem gerir þær enn flottari og réttlæta alveg að maður kaupi þá nýju þó maður viti af þeirri gömlu einhvers staðar útjaskaðri ofan í kassa.
| 23:10 |