»  bókadómar  »  Að vera eða ekki vera... Da Vinci lykillinn
nýlegir dómar

nýleg komment

a long time ago...
Að vera eða ekki vera... Da Vinci lykillinn
Mánudagur, 24. október 2005

Það fór ekkert of mikið fyrir skáldsögunni Sirkelens ende eftir norska rithöfundinn Tom Egeland> þegar hún kom út í Noregi árið 2001. Nú er hún hins vegar heldur betur á milli tannanna á fólki vegna þess að innihald hennar þykir um margt minna á hina gríðarlegu vinsælu bók Dans Brown um Da Vinci lykilinn. Það sem hefur vakið sérstaka athygli á bók Egelands er að hann skrifaði hana tveimur árum áður en Dan Brown gaf út metsölubók sína.

Tveir albínóar og Jesús>

Það er vissulega rétt að bækurnar eiga ýmislegt sameiginlegt en þó er einnig margt sem greinir þær hvora frá annarri. Aðalpersóna norsku bókarinnar, fornleifafræðingurinn >Björn Beltö>, er albínói en í Da Vinci lyklinum fékk morðingjamunkurinn Silas það hlutskipti. Báðar sækja þessar bækur svo hugmyndir í bókina The Holy Blood and the Holy Grail eftir Michael Baigent, Richard Leigh og Henry Lincoln>.
Ráðgátur þeirra eru keyrðar áfram á kenningum um að Jesús hafi ekki dáið á krossinum. Höfundarnir vinna báðir með þá hugmynd að Kristur hafi flúið til Frakklands og gengið þar að eiga Maríu Magdalenu og aukið þar kyn sitt. Afkomendur Jesús fyrirfinnast því enn og koma við sögu í báðum bókum.
Þetta eru helstu snertifletirnir og þessi skyldleiki vekur vissulega upp áhugaverðar spurningar. Þeir sem hafa skemmt sér við lestur Da Vinci lykilsins geta því varla stillt sig um að kynna sér efnistök Egelands.

Bækurnar eru þó í raun mjög ólíkar og Egeland sjálfur fer ekki í grafgötur með það í eftirmála sínum að hann hafi upphalega séð fyrir sér æsispennandi sögu "með útsendurum frá Vatíkaninu, hræðilegum morðingjum, skotbardögum og æsilegum eltingarleikjum." Þetta varð þó ekki raunin þar sem aðalpersónan stríddi gegn þessu þannig að Við enda hringsins er ekki aðeins saga um leynireglur, afkomendur Krists og flókin samsæri, heldur fyrst og fremst saga eins manns, Björns Belto.

Leyndardómur í gullskríni

Við enda hringsins hefst á því að heimsfrægur og virtur fornleifafræðingur sem fengið hefur leyfi til að grafa upp klaustur í Noregi stingur af með gullskrín sem finnst við uppgröftinn. Norski fornleifafræðingurinn Björn Belto hafði verið ráðinn til þess að hafa eftirlit með uppgreftrinum. Hann sættir sig ekki við þjófnaðinn og endurheimtir skrínið. Þá upphefst mikill eltingarleikur þar sem þeir sem stóðu á bak við uppgröftinn virðast svífast einskis til þess að koma höndum aftur yfir skrínið.
Björn leggst því á flótta en reynir um leið að ráða gátuna um innihald skrínsins. Flest bendir til þess að þar sé handrit af orðsendingum Jesús Krists. Sannleikur sem gæti kollvarpað hugmyndum manna um kristindóminn og kippt stoðunum undan vestrænni siðmenningu.

Glæpasaga án glæps

Egeland lýsir bók sinni sem "glæpasögu án glæps" og það má til sanns vegar færa. Hér hlaðast líkin ekki upp og framvindan er öll afslappaðri en í Da Vinci lyklinum. Það ber líka að hafa það í huga að í grunninn er Da Vinci lykillinn nauðaómerkileg og dæmigerð spennusaga. Þegar búið er að strípa hana allri táknfræðinni og kristinni dulúð stendur eftir saga með jafn mikið skáldskapargildi og The Bourne Identity eftir Robert Ludlum.

Við enda hringsins er því hvergi nærri jafn spennandi og Da Vinci lykillinn. Maður flettir henni ekki jafn hratt en Brown byggir bók sína þannig upp að í lok hvers kafla er óhjákvæmilegt annað en að halda áfram að lesa. Við enda hringsins er hins vegar dýpra verk en Da Vinci lykillinn og hún skilur meira eftir sig. Það er ekki síst fyrir tilstilli aðalpersónunnar Björns Belto en hann er miklu margbrotnari og áhugaverðari persóna en Robert Langdon í Da Vinci lyklinum. Langdon er marflatur og þrautleiðinlegur og hefur þann tilgang einan að leiða lesandann í gegnum magnaða spennusöguna. Belto er hins vegar maður af holdi og blóði sem glímir við þunglyndi, vænisýki, og hefur liðið fyrir ytra útlit allt sitt líf. Þá tengjast leyndardómur gullskrínisins og fólkið sem kemur að öllu leynimakkinu honum beint og ráðgátan getur þannig einnig falið svör við áleitnum spurningum sem hafa ásótt hann síðan í æsku.

Glíma manns við sjálfan sig

Þetta er aðalspennuvaldur Við enda hringsins og áhugi og umhyggja fyrir Birni knýr lesandann áfram. Leyndardómurinn um blóð Krists er umgjörðin sem vekur vissulega einnig upp áhuga og spurningar, rétt eins og hjá Dan Brown. Skrínið sjálft er einfaldlega það sem Alfred Hitchcock kallaði "Mcguffin". Bara eitthvað dót sem allir vilja komast yfir og keyrir atburðarásina áfram. Þessi staðreynd og ákvörðun Egelands að byggja sögu Björns Belto upp sem dæmigerða spennusögu án glæps verður til þess að sagan kemur lesandanum spánskt fyrir sjónir. Maður hefur það stundum á tilfinningunni að eitthvað vanti - að það sé verið að snuða mann.

Þetta er þó alls ekki tilfellið og Við enda hringsins er áhugaverð og spennandi saga manns sem þarf að glíma við sjálfan sig, fortíð sína og umhverfi um leið og hann reynir að leysa flókna ráðgátu. Þetta er sem sagt bók sem á ýmislegt sameiginlegt með Da Vinci lyklinum en er þó alls ekki Da Vinci lykillinn.

Skáldskapur sem vekur upp forvitni

Við enda hringsins hefur samt svipuð áhrif á lesandann og Da Vinci lykillinn og gæti alveg fengið fólk til að horfa á ótal heimildarþætti um Jesús og Maríu Magdalenu, sækja námskeið í kristinni dulúð bókarinnar hjá séra Þórhalli Heimissyni og svo mætti lengi telja.

Efnið er áhugavert í sjálfu sér en það verður að segja Egeland það til hróss að hann gerir upp við það í eftirmála og áréttar að allt sé þetta byggt á ósönnuðum kenningum og jafnvel heilaspuna. Það er eitthvað annað en Dan Brown sem klæðir skáldskap sinn í vísindalegan búning þannig að lesendur trúa öllu sem hann ber á borð fyrir þá og eru farnir að sjá menn breytast í konur í málverkum Da Vincis. Það að láta sér detta í hug að Da Vinci lykillinn sé eitthvað annað en skáldskapur er auðvitað jafn galið og að halda að Frederick Forsyth hafi verið að skrifa nákvæmar skýrslur í Degi Sjakalans og Odessa skjölunum þó hann hafi byggt á sögulegum staðreyndum og bladað saman raunveruleika og skáldskap.


| 22:41 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff