»  bókadómar  »  Ofurbrókin svíkur ekki
nýlegir dómar

nýleg komment

a long time ago...
Ofurbrókin svíkur ekki
Mánudagur, 07. nóvember 2005

Það þarf engan að undra að bækurnar um Kaftein Ofurbrók hafi notið mikilla vinsælda hjá ungum lesendum á undanförnum árum. Þessar sýrðu prakkarabækur eru mátulega villtar og trylltar til þess að heilla unga fólkið upp úr skónum og draga það inn í kostulega veröld þeirra Georgs Skeggjasonar og Haraldar Hugasonar.

Smitandi gleði

Höfundinum Dav Pilkey þykir greinilega mjög vænt um persónur sínar; strákana tvo og geðstirða skólastjórann hann Kára sem þeir breyttu í súperhetjuna Kaftein Ofurbrók með dáleiðslu. Í hverri bók skapar hann þessari þrenningu kjöraðstæður til þess að sýna allar sínar bestu eða verstu hliðar, allt eftir því hvernig á það er litið. Þá er Pilkey ekki síður annt um lesendur sína og hefur ekki svikið þá hingað til. Það er því ekki minna fjör og fíflagangur í þessari sjöttu bók hans um Ofurbrókina en þeim fyrri. Stærsti kostur bókanna er svo ótvírætt sá að þó þær séu keyrðar áfram á kúk og piss húmor sex ára krakka eru þær svo falslausar í flippinu að fólk á öllum aldri smitast af gleðinni.

Ógeðsleg horskrímsli

Að þessu sinni fær klöguskjóðan Sófus séní sig fullsaddan af prakkarastrikum Georgs og Haraldar og sameinar sig kröftugu vélmenni til þess að ná sér niður á þeim. Það tekst þó ekki betur til en svo að Sófus breytist í ógeðslegt hor­klessuskrímsli og þegar það gengur svo af göflunum er ekki um annað að ræða en að kalla Kaftein Ofurbrók fram. Og þá fyrst byrjar ballið.
Bókin segir fyrri hluta sögunnar um Horskrímslið en seinni hlutinn kemur ekki fyrr en á næsta ári en það er óhætt að fullyrða að erfið bið aðdáenda Ofurbrókarinnar byrjar um leið og þeir klára þessa.
Allt það sem hefur prýtt fyrri bækurnar um Kafteininn og gert þær að frábærri skemmtun er til staðar hér; yfirdrifið og barnalegt grínið að ógleymdu fletti-bíóinu sem fylgir „ýkt groddalegu köflunum um ofbeldið“. Alveg hreint frábært uppátæki sem gerir aðdráttarafl bókana um Kaftein Ofurbrók enn sterkara. Þeir sem eru svo lánsamir að eiga börn á Ofurbrókaraldri geta lesið þessa snilld fyrir opnum tjöldum. Aðrir verða að pukrast með það í kyrrþey en eitt er víst að enginn ætti að láta þennan furðufugl framhjá sér fara.


| 10:41 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff