»  bókadómar  »  Stella í stuði
nýlegir dómar

nýleg komment

a long time ago...
Stella í stuði
Mánudagur, 07. nóvember 2005

Ég hef aldrei þolað Stellu Blómkvist og hef hingað til aðallega lesið bækur hennar af skyldurækni mér til ama og óþæginda. Þessar glæpasögur um harðsnúnu lögfræðifraukuna Stellu Blómkvist eru dæmigerðar sjoppubókmenntir.
Stílinn á bókunum er einfaldur og nokkuð ljóst að höfundurinn setur ekki mikið púður í skriftirnar. Þetta er hraðsuða sem maður getur fullkomlega skilið að enginn vilji leggja nafn sitt við og láti því Stellu sjálfa sitja uppi með skömmina.

Leiðinleg persóna

Þessi formáli ætti að taka af öll tvímæli um að ég er nánast vanhæfur til þess að fjalla um nýjustu bók Stellu, Morðið í Drekkingarhyl, en ég ætla samt að láta vaða. Aðallega vegna þess að ég skemmti mér konunglega yfir bókinni og las hana í einum rykk. Á dauða mínum átti ég von en að Stella Blómkvist myndi vinna mig yfir á sitt band, það er ótrúlegt.
Persóna Stellu er jafn óþolandi leiðinleg og í fyrri bókum. Þessi kjaftfora, drykkfellda, ljóshærða og ofvirka kynbomba í lögfræðingastétt er hálfgerður kynskiptingur eða það sem þeir kalla „gender bender“ í útlandinu. Hún er dæmigerð karlhetja glæpasgnanna með brjóst og píku. Sturtar í sig viskí eins og hún sé Humphrey Bogart í akkorði, táldregur konur og karla á víxl og kastar fórnarlömbunum svo frá sér þegar hún hefur fengið nægju sína og hegðar sér að öllu leyti eins og versta karlremba.
Það er í sjálfu sér ekkert nema gott um þetta að segja og „gender benderar“ geta verið mjög skemmtilegir og það er vissulega smart að láta svona hvassa tík hrista upp í formföstu karlasamfélagi sakamálasögunnar. Gallinn er bara sá að Stella er leiðinda­pía sem hefur alltaf síðasta orðið en það er bara vegna þess að hún getur alltaf vitnað í einhverja niður­suðudósaheimspeki frá móður sinni. Það fara um mann ónot í hvert skipti sem hún segir: „Sagði mamma,“ og það gerist nánast í hverjum kafla.

Flott plott

Stella sjálf og flatur stíllinn nær þó ekki að skemma Morðið í Drekkingarhyl. Sagan er bara svo helvíti skemmtileg og ég er ekki frá því að þetta sé skemmtilegasta plottið sem ég hef séð í íslenskum krimma í þessari umferð. Stella tekur að sér að verja nýbúa sem er grunaður um að hafa framið svokalað heiðursmorð á dóttur sinni og að hafa svo komið líki hennar fyrir í Drekkingarhyl. Það er auðvitað ekkert sem sýnist og Stella kemst að því að morðið tengist spillingu sem teygir anga sína uppi efstu lög lögreglunnar og dómsmálaráðuneytis. Þetta er krassandi og Stella lætur það ekki aftra sér þó hún þurfi að takast á við volduga karlpunga í leit sinni að réttlætinu.
Þá blandast fortíð Stellu einnig í málið og hún þarf að gera upp við pervertinn hann föður sinn sem lék hana grátt í æsku. Það vekur óneitanlega meiri áhuga þegar Stella vitnar í pabba sinn en mömmu. Ánægjuleg tilbreyting sem varpar nýju ljósi á þreytandi persónuna.

Hver er Stella?

Þessi spurning brann á fólki fyrir nokkrum árum og það var vinsæll samkvæmisleikur að reyna að giska á hver það er sem stendur á bak við Stellu sem á að vera eitt best varðveitta leyndarmál íslenskra bókmennta. Jafn ólíkir menn og Stefán Jón Hafstein og Davíð Oddsson hafa verið nefndir til sögunnar og líklega lúslesa margir bækur Stellu í leit að vísbendingum um höfundinn. Ég ætla ekki að varpa fram neinum kenningum að þessu sinni en tel óhætt að fullyrða að Stella er karlmaður sem er kominn um eða yfir fimmtugt. Sterkasta vísbendingin um það er kynlíf Stellu og þá ekki síst lessukynlífið sem er eins og sprottið upp úr ómerkilegri klámmynd og brengluðum kynórum karla um kynlíf tveggja kvenna. Þar fyrir utan löðrar textinn allur í karlrembu þó hann sé lagður konu í munn.
Annars er það hætt að skipta máli hver Stella er og ef hún heldur áfram á sömu braut og hættir að vera leiðinleg má hún skrifa fleiri bækur sem hún skammast sín fyrir mín vegna. Morðið í Drekkingarhyl er fínn krimmi en ekki nógu góð til þess að nokkur ætti að vilja gangast við henni.


| 10:45 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff