Sunnudagur, 06. nóvember 2005
Áriđ 1966 kom skáldsaga Guđbergs Bergssonar, Tómas Jónsson metsölubók, út. Ţetta er margslungiđ niđurrifsverk og ţađ er ekki gott ađ átta sig á honum Tómasi hans Guđbergs. Hann er sundurtćtt og útblásiđ sjálf, einhvers konar gróteskt skrímsli, sem ekki er nokkur leiđ ađ festi hendi á. Bók Guđbergs er tímamótaverk og hristi hressilega upp í samtíma sínum.
Áriđ 2005 sprettur svo fram nýr Tómas Jónsson og sá ekki síđur brýnt erindi viđ samtíma sinn en forverinn. Ţađ er rithöfundurinn Kristjón Kormákur Guđjónsson sem dregur Tómas nýrrar aldar fyrir almenningssjónir og ţó ţessi bók hans muni sjálfsagt ekki marka jafn djúp spor og Tómas Jónsson anno 1966 er hér komin hressileg ţjóđfélags- og samtímaádeila sem vert er ađ gefa gaum.
Raunveruleg skáldsagnapersóna
Bókin um ţennan nýja Tómas heitir Frćgasti mađur í heimi en ţađ er einmitt ţannig sem Tómas sér sig. Hann er ţví vitaskuld snargeđveikur en ţó sjálf hans sé sundurtćtt er hann ţó heilsteyptari persóna en gamli Tómas. Ţađ leikur lítill vafi á ţví ađ Tómas Jónsson er geđsjúklingur sem segir sögu sína en ţađ sem gerir bókina jafn áhugaverđa og raun ber vitni er ađ innan ramma hennar eru mörkin milli skáldskapar og raunveruleika jafn óljós og í huga ađalpersónunnar.
Tómas hefur nefnilega lifađ sjálfstćđu lífi og gengiđ laus í raunheimum og hefur veriđ í sambandi viđ ţjóđţekkta einstaklinga (í alvöru). Kristjón Kormákur gaf Tómasi fyrst líf á bloggsíđu (www.raunveruleiki.blogspot.com/) sem var eignuđ persónunni fyrir nokkrum mánuđum og ţar rakti hann raunir sínar og leyfđi almenningi ađ fylgjast međ tilraunum sínum til ţess ađ ná fyrrverandi eiginkonu sinni og tveimur dćtrum frá nýjum sambýlismanni. Sjálfur bjó Tómas einn međ yngstu dóttur sinni sem eiginkonan hafđi snúiđ baki viđ.
Ţessi listrćna blekking Kristjóns gekk fullkomlega upp og fólk vissi ekki betur en Tómas vćri raunverulegur mađur af holdi og blóđi. Kristjón lét Tómas jafnframt hafa samband, međ tölvupósti, viđ ekki ómerkari einstaklinga en Einar Bárđarson, Jakob Frímann Magnússon, Steinar Braga, Karl Sigurbjörnsson biskup, Dr. Gunna, Stefán Karl Stefánsson leikara og fleiri. Ţessir menn vissu ekki betur en Tómas vćri "alvöru" og svöruđu bréfum hans á ţeim forsendum. Tölvupóstarnir eru svo birtir óbreyttir í bókinni ţannig ađ allir ţessir heiđursmenn verđa í raun persónur í skáldverki og viđbrögđ ţeirra viđ umleitunum Tómasar hafa áhrif á ţróun persónuleika hans.
Raunveruleikaskáldskapur
Ţađ er ekki hćgt ađ segja annađ en ţetta sé bráđsnjallt uppátćki hjá Kristjóni um leiđ og ţađ lýsir ákveđinni ófyrirleitni og dirfsku. Hann hefđi til dćmis ekki ţurft ađ kemba hćrurnar ef hann hefđi komiđ Tómasi í samband viđ Jónínu Ben. Ţessi raunveruleikatenging er hryggjarstykki skáldsögunnar og ţarna fellur efni og umgjörđ saman í eina ţétta heild sem steinliggur. Ţađ vill nefnilega svo skemmtilega til ađ Tómas, í geđveiki sinni, telur sig vera ađalpersónu í raunveruleikaţćttinum Fallegasti mađur í heimi. Hann er svona íslensk sjónvarpsútgáfa af Jim Carrey í kvikmyndinni The Truman Show. Ţetta er bráđsnjöll lausn hjá Kristjóni ţar sem ţessi ranghugmynd býđur upp á endalaust rými fyrir geđveiki Tómasar og gerir firrta tilveru hans mjög trúverđuga enda er allt sem viđ sjáum á skjánum raunverulegt. Ekki satt?
Ţađ er ekki gott ađ koma bókmenntalegum merkimiđum á skáldsögu Kristjóns frekar en niđurrifsverk Guđbergs en sennilega má segja ađ hér sé komin fram á sjónarsviđiđ raunveruleikaskáldsaga. Ţađ má ţví segja ađ hér svari gamla góđa skáldsöguformiđ ţeirri lágkúrudellu sem nú tröllríđur dagskrárgerđ sjónvarpsstöđva úti um allan heim. Munurinn er sá ađ Frćgasti mađur í heimi á erindi viđ fólk og kjarni hennar er vitrćnn á međan raunveruleikasjónvarpiđ er eins innantómt og andlaust og hugsast getur.
Firring, eina ferđina enn
Frćgasti mađur í heimi er frekar stutt og auđlesin skáldsaga sem vekur lesandann til umhugsunar um ţann kengruglađa heim sem viđ búum í. Fyrir einhverjum áratugum var ţađ orđiđ ađ klisju ađ tala um firringu en ţađ breytir ţví ekki ađ mannskepnan hefur aldrei veriđ firrtari en einmitt núna. Viđ ţessu ástandi bregđast ţeir Kristjón og Tómas á snaggaralegan og skemmtilegan hátt og ţađ er óhćtt ađ mćla međ bókinni viđ alla ţá sem hafa áhuga á samtíma sínum og ţeim raunveruleika sem viđ búum viđ.
Kristjón hefur međ ţessu verki sínu gert áhugaverđa tilraun međ skáldsagnaformiđ og tekst býsna vel upp. Ţađ mćtti helst fetta fingur út í frágang bókarinnar en á köflum virđist yfirlestri hafa veriđ ábótavant ţar sem nokkuđ er um stafsetningar- og málfarsvillur. Ţetta gćti ţó hćglega átt ađ vera svona enda sér mađur ekki Tómas fyrir sér sem mann sem hirđir um réttritun auk ţess sem raunverulegir tölvupóstar eru oftar en ekki morandi í villum. Villurnar falla ţví grunsamlega vel ađ byggingu bókarinnar og gera hana "raunverulegri". Ţađ myndi eiginlega stinga meira í stúf ef textinn vćri villulaus.
| 23:54 |