»  bókadómar  »  Við frostmark
nýlegir dómar

nýleg komment

a long time ago...
Við frostmark
Mánudagur, 07. nóvember 2005

Jón Atli Jónasson hefur sýnt það og sannað með miklum afköstum undanfarið að hann er mesta efni í alvöru leikskáld sem komið hefur fram á sjónarsviðið á Íslandi árum saman. Fyrsta skáldsaga hans, Í frostinu, gefur líka sterkar vísbendingar um að hann geti ekki síður haslað sér völl á skáldsagnasviðinu.
Þetta er einföld, stutt og látlaus saga sem lætur lítið yfir sér og einhvern veginn átti maður fyrirfram von á því að leikskáldið ofvirka myndi senda frá sér þykkari doðrant.

Þetta gerir Í frostinu þó síður en svo að minna verki og það er í raun fagnaðarefni að rithöfundar skuli leitast við að ná til lesenda á innan við 200 blaðsíðum. Þykkar bækur eru úr takt við tímann. Í það minnsta þann tíma sem hún Drífa Sig, aðalpersóna Jóns Atla, lifir og hrærist í. Hún er einstæð móðir og hjúkrunarkona sem nær varla endum saman og tekst á við gráan og þunglyndislegan hversdagsleikan á milli þess sem hún reynir að flýja hann á djamminu.
Þetta er kunnuglegt stef og þó sagan sé einföld dregur Jón Atli upp skýra og nöturlega mynd af daglegu basli einstæðrar móður í Reykjavík. Það leynist ónotalegur drungi og feigð undir liprum og læsilegum textanum og líklega munu margir geta speglað sig í Drífu.
Hún lifir sama lífi og við hin og þó allt sé slétt á fellt á yfirborðinu eru flestir alltaf að reyna að fylla eitthvert andlegt svarthol innra með sér. Tónninn í bókinni er því ekki beinlínis upplífgandi en hann er rétt sleginn. Í frostinu fangar vel tilgangsleysi MTV-kynslóðarinnar sem veit ekki hvort hún er að koma eða fara, stefna áfram eða aftur á bak. Drífa er líka á sama stað í upphafi sögunnar og enda, jafnvel ívið verr stödd. Lífið getur verið svo innihaldslaust, leiðinlegt og glatað og þeirri stemningu skilar Jón Atli með tilþrifum. Hann vekur lesandann til umhugsunnar um tilganginn með þessu jarðvistarbrölti okkar en þunglyndir ættu að íhuga það að stækka prósakkskammtinn sinn í þrjár vikur áður en þeir lesa bókina. Það er nefnilega langt síðan depurð hefur verið komið jafn vel til skila á prenti.


| 10:43 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff