»  bókadómar  »  Ógnarjafnvægi raskað
nýlegir dómar

nýleg komment

a long time ago...
Ógnarjafnvægi raskað
Laugardagur, 03. desember 2005

Það syrtir heldur betur í álinn hjá vini okkar honum Harry Potter í þessari sjöttu bók J.K. Rowling um baráttu galdradrengsins með örið á enninu við myrkraöflin. Spennan magnast því í Harry Potter bálknum sem heild þó höfundinum hafi heldur verið að fatast flugið í tveimur síðustu bókunum.

Rowling toppaði í Harry Potter og eldbikarnum sem er að mínu mati langbesta Harry Potter bókin þó það hefði að ósekju mátt stytta hana um 100 blaðsíður eða svo. Það gekk hins vegar svo rosalega mikið á í bókinni og í lífi Harrys sem á viðkvæmu þroskaskeiði þurfti að horfast í augu við erkifjandann Voldemort í öllu sínu veldi.

Næstu tvær bækur, Harry Potter og Fönixreglan og nú Harry Potter og blendingsprinsinn halda ekki sama dampi en það breytir því þó ekki að þessi nýjasta bók er þrælskemmtileg og vægast sagt áhugaverð fyrir alla þá sem eru fastir í töfraneti Rowling.

Það er hins vegar ekki Harry sjálfur og ævintýri hans sem vekja mesta forvitni í Blendingsprinsinum heldur óvenju djúp innsýn sem lesandinn fær í hugarheim og ævisögu Trevor Delgome sem síðar tekur upp nafnið Voldemort.

Fyrir utan þessi safaríku innlit í brenglaðan huga og ættarsögu Voldemorts gengur allt sinn vanagang í Hogwarts. Harry, Ron og Hermione gruna Malfoy um græsku og hafa á honum góðar gætur. Þá heldur gelgjan og hormónaruglið áfram að gera krökkunum lífið leitt og Snape er leiðinlegri sem aldrei fyrr.

Rowling gerði mikið úr því þegar hún byggði upp spennu fyrir tvær síðustu bækur sínar að mikilvægar persónur myndu láta lífið í þeim báðum. Þessi brella hefur virkað vel í tvígang og aðdáendur Potters voru með hjartað í buxunum fyrir útkomu beggja bókanna, svefnlausir af áhyggjum yfir því hvern Rowling tæki upp á að drepa. Sirius Black var vitaskuld öllum harmdauði í Fönixreglunni<7i> en ótímabært dauðsfall þessarar bókar er stóráfall og með því raskast ákveðið ógnarjafnvægi sem ríkt hefur milli hins góða og illa í síðustu fimm bókum.

Nú hefur Voldemort yfirhöndina og allt getur gerst. Það spillir svo ekki fyrir að í þessari bók eru framin hádramatísk svik og upplausin er alger í lokin. Harry Potter og Blendingsprinsinn<7i> gefur því fögur fyrirheit um að síðasta bókin verði kynngimagnað og dimmt drama.


| 0:11 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff