»  bókadómar  »  Þóra gefur ekkert eftir
nýlegir dómar

nýleg komment

a long time ago...
Þóra gefur ekkert eftir
Laugardagur, 25. nóvember 2006

Sér grefur gröf
Yrsa Sigurðardóttir

[3]


Yrsa Sigurðardóttir kynnti lögfræðinginn Þóru Guðmundsdóttur til leiks í glæpasögunni Þriðja táknið í fyrra. Þóru er ekki fysjað saman, er hörkukona sem veður í málin af einurð og festu og breytir þá litlu hvort um er að ræða deilur við fyrrverandi eiginmann, lögfræðiþras um rétta hæð á póstlúgum eða lausn flókinna sakamála.

Í Þriðja tákninu leysti Þóra morðmál sem teygði anga sína langt aftur til fortíðar og í þessari annarri bók Yrsu um lögfræðinginn knýr fortíðin aftur dyra og vomir yfir Snæfellsnesinu þar sem Þóra reynir að fletta ofan af útsmognum morðingja.

Draugagangur á Snæfellsnesi

Sagan hefst á andstyggilegum glæp sem er framinn árið 1946 en síðan fram til ársins 2006 þegar nýaldarbullukollurinn Jónas leitar til Þóru vegna þess að hann telur sig hafa rekist á leyndan galla á landareign sem hann festi sér á Snæfellsnesi. Málið er þó snúið þar sem gallinn er ekki af þessum heimi en Jónas telur víst að reimleikar á svæðinu muni skaða rekstur heilsuhótels sem hann hefur reist á landareigninni.
Þóra fer með semingi á staðinn og er varla búin að koma sér fyrir í hótelherberginu þegar illa útleikið lík ungrar konu finnst í flæðarmálinu.

Hin látna var arkitekt sem vann að uppbyggingu hótelsins og var á kafi í frekari breytingum á staðnum þegar hún mætti grimmum örlögum sínum. Hún hafði verið í tygjum við Jónas þannig að grunur fellur umsvifalaust á hann og Þóra tekur til óspilltra málanna við að skera skjólstæðing sinn úr snörunni.

Klassísk morðgáta

Sér grefur gröf er alvöru morðgáta í anda Agöthu Christie og því kemur við sögu fjöldinn allur af persónum, sem allar liggja undir grun. Fjöldi mögulegra morðingja verður óhjákvæmilega til þess að Yrsa þarf að taka sér drjúgan tíma og pláss til þess að kynna alla til leiks og varpa á þá grun. Það er mismikið í persónurnar lagt þannig að maður finnur fyrir lengd bókarinnar við lesturinn en hún telur rúmar 380 blaðsíður.
Sakamálið er þó engu að síður áhugavert og þegar annað illa útleikið lík bætist við undir miðbik bókarinnar herðist róðurinn og flettingarnar verða hraðari.

Leit Þóru að morðingjanum er í forgrunni en þrátt fyrir það er það glæpurinn í fortíðinni sem er aðalspennuvaldurinn og það sem heldur lesandanum við efnið þannig að það hefði að ósekju mátt þjappa samtímasögunni betur saman og gera lesturinn um leið ákafari og skemmtilegri.

Allt til alls

Sér grefur gröf býr þó yfir öllu sem góð morðgáta þarf að hafa, hrottalegum morðum, fjölskylduleyndarmálum, framhjáhaldi og sifjaspellum auk þess sem tenging gamla glæpsins við draugasögur, afturgöngur og þjóðsagnaminni um útburði skapar drungalega hryllingstemningu sem Yrsa byggir markvisst upp og tekst ákaflega vel að dansa á mörkum hins ókennilega.

Yrsa stimplaði sig hressilega inn í glæpadeildina með Þriðja tákninu og heldur dampi í Sér grefur gröf og með góðum og tilfinningaríkum endaspretti tekst henni að láta allt ganga upp. Dramatíkin er keyrð hressilega upp þegar fortíð og nútíð renna loks saman og hringurinn þrengist um morðingjann. Sagan ber því lengdina uppi þegar upp er staðið og öll kurl koma til grafar í sannfærandi sögulokum sem eru krydduð nettu melódrama sem gerir þetta allt saman skemmtilegra.



| 16:37 |

Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff