Mánudagur, 25. desember 2006
2006 í grófum dráttum
Halldór Baldursson
[5]
Teiknarinn Halldór Baldursson hefur sótt í sig veđriđ jafnt og ţétt frá ţví hann byrjađi ađ birta pólitískar skopmyndir sínar á síđum Blađsins í fyrra og í dag skín stjarna hans mun skćrar í íslenskum fjölmiđlaheimi en miđilsins sem birtir teikningar hans. Óhćtt er ađ fullyrđa ađ á međan Blađiđ var eitt útlitsgallađasta skrípi sem prentađ hefur veriđ í íslenskri útgáfusögu hafi teikningar Halldórs veriđ nánast ţađ eina sem kallađi á ađ Blađinu vćri flett og ţrátt fyrir jákvćđar stökkbreytingar ţess eru Halldór og teikningar hans enn ákveđin kjölfesta.
Sígilt efni
Líftími hvers tölublađs dagblađs er tćpur sólarhringur og flest ţađ sem prentađ er á síđur ţeirra fyrnist ţví fljótt. Önnur lögmál gilda um eiturskarpar fréttskýringar Halldórs sem tekst ítrekađ ađ bregđa ljósi á málefni líđandi stundar međ ađeins einni teikningu. Ţađ er ţví ekki ađeins vel til fundiđ ađ safna teikningum Halldórs saman á bók og tryggja ţeim ţannig framhaldslíf heldur er međ bókinni 2006 í grófum dráttum kominn einn beittasti og besti fréttaannáll ársins.
Oflofiđ er ekkert háđ
Fjölmiđlungar og elítubloggarar hafa keppst viđ ađ ausa Halldór og bókina slíku lofi á síđum sínum ađ mađur hefur stundum fundiđ hálfpartinn til međ blessuđum manninum ađ vera hafinn til skýjanna af nafntoguđum besserwisserum. Í ţessu tilfelli vill ţó svo ánćgjulega til ađ kenningar Snorra Sturlusonar um of ákaft klapp á bakiđ eiga ekki viđ og Halldór stendur undir öllu hólinu.
Bókin er ţó síđur en svo einungis fyrir „bláblóđunga“ internetsins og ćtti ađ vera skyldueign á heimilum alls hugsandi fólks ţar sem hér geta kjósendur međ gullfiskaminni fengiđ hressandi áminningu um ţađ ađ viđ lifum á öld fáránleikans á Íslandi.
Halldóri er einkar lagiđ ađ draga fram ţađ skoplega í orđum og gjörđum ţeirra sem keyra alla ţjóđfélagsumrćđu hérna út í móa af miklu kappi á međan ţeir láta líta út fyrir ađ allt sé í lukkunnar velstandi.
Stokkiđ inn í tómarúm
Halldór nýtur ţess vissulega ađ heimskan ríđur ekki viđ einteyming á Íslandi og stjórnmálafólk og ađrir máttarstólpar í samfélaginu sjá honum endalaust fyrir eđal efniviđ en hann á ţađ skuldlaust hversu skemmtilega hann klýfur delluna međ penna sínum.
Innkoma Halldórs á ţennan vettvang er ţó enn sterkari og ţakklátari vegna ţess ađ lítil hefđ er fyrir beittum pólitískum skopteikningum í íslenskum dagblöđum. Sigmund hefur vissulega veriđ á útkikki eftir hinu skoplega í rúm fjörutíu ár á síđum Moggans en ţar međ er ţađ upp taliđ. Halldór stekkur ţví inn í ákveđiđ tómarúm og fyllir ţađ glćsilega međ sérstökum og bráđskemmtilegum teiknistíl sínum, nćmri sýn á samfélagiđ og hörkufínum húmor. Nálgun hans á málefnum líđandi stundar er meira svona eins og ţeir gera ţetta í útlöndum eins og Egill Helgason bendir réttilega á í formála bókarinnar.
Glćsileg umgjörđ
Teikningar Halldórs, einar og sér, gera 2006 í grófum dráttum ađ eigulegri bók en ţađ spillir síđur en svo fyrir ađ allur frágangur bókarinnar og umgjörđ utan um myndirnar eru til hreinnar fyrirmyndar.
Takturinn í flettingunni er brotinn skemmtilega upp međ ţví ađ breiđa úr völdum myndum á heilsíđu en teikningarnar njóta sín í botn ţegar hćgt er ađ rýna í ţćr í stóru broti. Ţá er allt annađ ađ skođa myndirnar ţegar ţćr eru prentađar á gćđapappír frekar en venjulegum dagblađapappír. Ţessi útgáfa er ţví einfaldlega brilljant og öllum sem ađ henni koma til mikils sóma. Ađ mađur tali ekki um hversu mikill happafengur hún er fyrir ţá sem láta sig málefni líđandi stundar varđa og fá ekki blađiđ Blađiđ í hendur daglega.
| 19:57 |