Miðvikudagur, 20. desember 2006
Kafteinn Ofurbrók og líftćknilega horskrímsliđ
Seinni hluti: Fáránlegu slímklessurnar
Dav Pilkey
[4]
Kafteinn Ofurbrók er eitt magnađasta fyrirbćri sem skotiđ hefur upp kollinum í barnabókum undanfarin ár og ţar munar ekki síst um ađ flippađur húmor bókanna brúar dýpstu kynslóđabil svo glćsilega ađ ungir jafnt sem rígfullorđnir geta skemmt sér konunglega yfir vitleysunni.
Prakkararnir Georg Skeggjason og Haraldur Hugason bera ábyrgđ á fáránlegu ofurhetjunni Kafteini Ofurbrók, sem flýgur vígreifur gegn hverri ógn í nćrbrókum og rauđri skikkju og syngur „trallala!“ en í fyrstu bókinni dáleiddu ţeir fúla skólastjórann sinn hann Kára međ ţeim afleiđingum ađ hann breytist viđ einn fingursmell í káta ofurkappann.
Óheppilegur hugsanaflutningur
Ţessi bók, sem er sú sjöunda sem kemur út um brókarhetjuna á íslensku, segir síđari hluta sögunnar um líftćknilega horskrímsliđ og tekur upp ţráđinn ţar sem ađdáendur Kafteinsins skildu viđ hann fyrir ári. Ţá ógnuđu ógeđsleg horskrímsli heimabć drengjanna en í byrjun nýju bókarinnar bćgir Ofurbrókin hćttunni frá.
Vandrćđi Georgs og Haraldar eru ţó síđur en svo öll ţar sem tćknifikt leiđinlega nördsins Sófusar sénis verđur til ţess ađ heilastarfsemi skólastjórans flyst yfir í koll nördsins og öfugt.
Ástandiđ er óviđunandi og drengirnir grípa til örţrifaráđa sem eiga eftir ađ draga svakalegan dilk á eftir sér.
Barnalegt eđalgrín
Bókin sver sig í ćttt viđ fyrri verk Davs Pilkey um Ofurbrókina en međ nýjum vinklum á borđ viđ tímaflakk og hugsanaflutning kveđur um leiđ viđ nýjan tón og fyrir vikiđ er ţessi sjöunda bók ein sú hressasta í flokknum, ef ekki sú skemmtilegasta. Sem fyrr er allt löđrandi í barnalegum kúk- og pisshúmor sem er settur fram međ svo miklum galsa og léttleika ađ hann hittir beint í mark ţannig ađ ţađ er hćtt viđ ađ lesendur skelli upp úr nánast á hverri síđu.
Endirinn er svo sem betur fer galopinn ţannig ađ dyggir ađdáendur Ofurbrókarinnar geta ţegar fariđ ađ láta sig hlakka til ţar sem Kafteininn á enn helling inni og lćtur vonandi sjá sig aftur fyrr en síđar.
| 19:11 |