»  comix
nýleg comix

nýleg komment

a long time ago...
Unglingaveika ofurhetjan
Laugardagur, 09. júní 2007

Hollywood hefur í andleysi sínu og hugmyndafátækt undanfarinna ára sótt sér efnivið markvisst í myndasögur. Myndasögubransinn iðar af lífi og hverfist um miklu meira en grímuklæddar ofurhetjur sem mest fór fyrir á árum áður. Ofurmennin hafa þó síður en svo lagt árar í bát og þannig hafa Köngulóarmaðurinn, Leðurblökumaðurinn og Súpermann allir gert nýja atlögu að hvíta tjaldinu á allra síðustu árum.

»  meira

| 11:30 | föst tilvísun |
Mestu töffarar allra tíma
Þriðjudagur, 11. apríl 2006

Þeir sem þekkja mannkynssöguna og hafa lágmarksskilning og karlrembu og töffaraskap vita auðvitað að frækilegasta vörn allra tíma átti sér stað í Laugaskörðum árið 480 fyrir Krists burð þegar Leonídas Spartverjakonungur, ásamt 300 hermönnum sínum, bauð tröllauknum her Persa birginn.

»  meira

| 13:01 | föst tilvísun |
Fermingarbarn í vítislogum Hugleiks
Miðvikudagur, 15. mars 2006

Fjöllistamaðurinn Hugleikur hefur slegið verðskuldað í gegn með örmyndasögum sínum sem hann kynnti fyrst til sögunnar árið 2002 í bókinni Elskið okkur. Hver saga er yfirleitt ekki nema ein mynd, dregin einföldum, dálítið barnalegum dráttum en
kolsvartur húmorinn og groddaskapurinn ber hins vegar vitni þroskuðu og næmu auga höfundar á nánast allt sem er brenglað, bogið og brjálað í mannlegri tilveru.

»  meira

| 20:25 | föst tilvísun |
Grímumaður í hefndarhug
Mánudagur, 06. febrúar 2006

Myndasöguhöfundurinn Alan Moore er mikill snillingur. Bókin V for Vendetta er eitt af höfuðverkum hans en hann byrjaði á sögunni árið 1981 og lauk verkinu ekki fyrr en 1988. Bókin hefur nú verið endurútgefin í tilefni þess að kvikmynd byggð á henni er væntanleg í vor.

»  meira

| 10:37 | föst tilvísun |
Í klóm tálkvendis
Mánudagur, 03. október 2005

Sin City: A Dame to Kill for

Vinsældir glæpamyndarinnar Sin City sem byggði á þremur myndasögubókum Franks Miller úr samnefndum bókaflokki urðu til þess að allar bækurnar sjö voru endurútgefnar. Þetta var tímabært þjóðþrifaverk enda fyrirfinnast ekki betri reyfarar en þessar bækur Millers.

»  meira

| 10:48 | föst tilvísun |
Nýr kafli í sögu Leðurblökumannsins
Mánudagur, 25. júlí 2005

Myndasöguhöfundurinn Frank Miller hefur í tvígang hrist heldur betur upp í Batman og brugðið nýju ljósi á þessa fornfrægu hetju í myndasögunum Batman: Year One og The Dark Knight Returns auk framhalds þeirrar sögu, The Dark Knight Strikes Again. Hann gerir nú þriðju atlöguna að Leðurblökumanninum með sögunni Batman & Robin the Boy Wonder og eins og nafnið gefur til kynna er það hjálparhella Batmans, loftfimleikadrengurinn Robin, sem er í forgrunni.

»  meira

| 13:07 | föst tilvísun |
Ránið á týnda eistanu
Mánudagur, 18. júlí 2005

Adventures in the Rifle Brigade


Garth Ennis er býsna hress og skemmtilegur myndasöguhöfundur sem kallar ekki allt ömmu sína þegar kemur að blóðsúthellingum og ofbeldi. Hann vakti fyrst athygli með margrómuðum sögum um The Preacher og kom svo hinum refsiglaða Punisher til bjargar með hinni mögnuðu og hrottalegu sögu Born. Sögur Ennis af The Punisher, sem koma svo í framhaldinu, eru það hressilegasta sem sést hefur af þessu hauskúpuskreytta bófabana og kærkomin vítamínsprauta fyrir blóðþyrsta aðdáendur kappans.

»  meira

| 13:17 | föst tilvísun | komment (1) |
Blóðbað í svart/hvítu
Þriðjudagur, 07. júní 2005

Sin City: That Yellow Bastard


Frank Miller hefur hingað til gert sjö Sin City bækur, sex stórar sögur og smásagnasafnið Booze, Broads &Bullets. Bækurnar hafa allar verið endurútgefnar í kjölfar vinsælda spennumyndarinnar Sin City sem byggir á þremur þeirra og allar líkur eru á að Miller muni fylgja þessum auknu vinsældum eftir með nýjum Sin City sögum.

»  meira

| 13:09 | föst tilvísun |
Blaðamaður dauðans kveður
Sunnudagur, 18. júlí 2004

Transmetropolitan: One more time


Warren Ellis er ruddalega góður myndasöguhöfundur sem sést best á hinum frábæru Transmetropolitan sögum þar sem við fylgjumst með rannsóknarblaðamanninum Spider Jerusalem að störfum.

»  meira

| 13:42 | föst tilvísun |
Æskuhetjur í nýju ljósi
Mánudagur, 12. júlí 2004

The Ultimates: Vol.1. Super-Human,
The Ultimates: Vol.2. Homeland Security

Það er ákaflega glæsilegur ofurhetjuhetjuhópur sem myndar The Ultimates gengið. Sverð, sómi og skjöldur þessarar nýju landvætta Bandaríkjanna er sjálfur Captain America, erfðabreyttur ofurhermaður sem hefur barist gegn hinu illa síðan í seinni heimsstyrjöldinni en sér til halds og trausts hefur hann Iron Man, þrumuguðinn Þór, Hulk, Wasp og Giant-Man en það er svo sjálfur Nick Fury, yfirmaður S.H.I.E.L.D. sem heldur í taumana á hetjunum.

»  meira

| 13:45 | föst tilvísun |
First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff