»  comix  »  Hetjur í sálarháska
nýleg comix

nýleg komment

a long time ago...
Hetjur í sálarháska
Miðvikudagur, 10. mars 2004

Alan Moore er mikiđ séní ţegar kemur ađ myndasögum og sú hugmynd hans ađ demba saman ţekktum hetjum afţreyingarbókmenntanna í eitt ćvintýri er tćr snilld.

Alan Quatermain, Mina Murray úr Dracula, Ósýnilegi mađurinn, Nemo skipstjóri, dr. Jeckyll og herra Hyde fóru á kostum í fyrstu bókinni um úrvalsdeildina og ţeir sem hafa haft sín fyrstu og einu kynni af ţeim í gegnum bíómyndina The League ćttu ađ snúa sér beint ađ frumtextanum ţar sem myndin stendur bókinni langt ađ baki.

Moore skiptir ađeins sum takt í ţessari bók og ţó ţađ vanti svo sem ekki almennilegan ógnvald ţar sem innrásarher frá Mars ógnar nú mannkyninu.
Áherslan er ţó ekki á átökin viđ andskotana heldur á innra líf persónanna sem skilar sér í brenglun, svikum og kynlífi. Framsetningin á ţessum ósköpum er svo ţess eđlis ađ Hollywodmaskínan mun aldrei kvikmynda ţessa sögu. Kannski vakti ţađ fyrir Moore ađ fćla ţađ liđ frá en ţađ skiptir ekki höfuđmáli og ţrátt fyrir breyttar áherslur svíkur eđalgengiđ ekki. Persónurnar eru góđar og mátulega brenglađar ţannig ađ ađdáendur ţeirra fá mikiđ fyrir sinn snúđ ţó hasarinn sé í lágmarki. Ekki spillir svo fyrir ađ sjálfur dr. Moureau mćtir til leiks međ óskapnađina sína.


| 13:58 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóđbönd

Taxi

Bloggar

Stöff