»  comix  »  Refsarinn frá Nam
nýleg comix

nýleg komment

a long time ago...
Refsarinn frá Nam
Fimmtudagur, 11. mars 2004

punisher.gifFrank Castle er Refsarinn sem fer um undirheima í jötunmóð og drepur glæpamenn hægri vinstri til þess að hefna fyrir fjölskyldu sína sem var myrt af skítalöbbum úr stétt glæpamanna. Hann vinnur því sína vinnu á sömu forsendum og Batman og Daredevil þó þeir séu hálfgerðir kórdrengir í samanburði við Refsivöndinn.

Garth Ennis hefur nú tekið Castle upp á sína arma og í þessari sögu skoðar hann forsögu Refsarans og vinnur út frá þeirri kenningu að Castle hafi alls ekki umturnast þegar fjölskylda hans var myrt heldur hafi hann gert samning við Dauðann á meðan hann gegndi herþjónustu, sér til ánægju, í Víetnam.

Hér hittum við Castle fyrir í frumskóginum og fáum innsýn inn í brenglaða sál hans þar sem hann drepur eigin liðsmenn og Víetnama á víxl þar til hann sleppir sér gersamlega í hroðalegri orrustu og slátrar andstæðingunum með berum höndum.
Hann snýr svo heim, hreinn og strokinn, og faðmar eiginkonu og börn en við vitum þó að hamingjan endist honum ekki lengi og að Refsarinn er rétt handan við hornið.
Sagan er góð og hvergi er slegið af óhugnaðinum í myndrænni framsetningu þannig að þegar bókin nær hæstu hæðum er boðið upp á dásamlegan splatter og sannkallað blóðbað.


| 13:52 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff