Laugardagur, 17. apríl 2004
Sú ánægjulega þróun hefur átt sér stað í myndasögulífi landsmanna að stúlkur á fermingaraldri eru orðnir áhugasamir lesendur teiknibókmennta og viðskiptavinahópur myndasöguverslunarinnar Nexus er því að taka miklum breytingum.
Stelpurnar virðast heillast sérstaklega af japanska teiknistílnum sem kenndur er við Manga og nú er upp undir helmingur þess efnis sem verslunin selur undir þessum japönsku áhrifum.
Miðalaævintýrið um Inu-Yasha nýtur mikilla vinsælda og bækurnar í röðinni One Piece renna út eins og heitar lummur. One Piece sögurnar eru vinsælustu teiknimyndasögurnar í Japan um þessar mundir en samnefndir sjónvarpsþættir njóta einnig gríðarlegra vinsælda í landi hinnar rísandi sólar.
Í þessari fyrstu One Piece bók er kynntur til sögunnar pjakkurinn Monkey D. Fluffy sem heillast af sjóræningjum sem taka stundum land í heimabæ hans. Þegar hann vex úr grasi heldur hann á haf út, einn í árabáti, með það fyrir augum að verða konungur sjóræningjanna.
Hann lendir í ýmsum hremmingum og skemmtilegum ævintýrum í fjörugri bók sem unga fólkið gleypir við og sagan er það skemmtileg að gamlir nördar gætu jafnvel freistast til þess að eltast við fleiri kafla í One Piece bálknum.