»  comix  »  Koss dauðans
nýleg comix

nýleg komment

a long time ago...
Koss dauðans
Laugardagur, 17. apríl 2004

Þegar helstu auðmenn Gothamborgar taka upp á því að sturlast og deyja af völdum dularfulls plöntueiturs berast böndin vitaskuld að henni Poison Ivy sem hefur yfirburðaþekkingu á gróðri, einstakt lag á plöntum og er þar fyrir utan svo gegnsýrð af eitri að einn koss frá henni er banvænn.
Ivy er hins vegar í öryggisvistun á Arkham geðveikrahælinu í Gotham þar sem hún dvelur ásamt Jókernum, Mörgæsinni og Kattarkonunnni og öðrum erkiskúrkum sem Leðurblökumaðurinn hefur komið bak við lás og slá.

Batman þarf að treysta þessum banvæna óvini sínum og fær Ivy lausa úr haldi til þess að finna móteitur. Það reynist vitaskuld afdrifaríkt og eftir að hann verður sjálfur fyrir eituráhrifum upphefst mikið kapphlaup upp á líf og dauða.
Þessi saga eyðir drjúgum tíma í að kafa ofan í sálarfylgsn Ivy sem er skemmtileg kona að kynnast. Þetta gerist á kostnað spennunnar en breytir því ekki að Casting Shadows er ágætis lesning með mátulegum grænum boðskap gegn steinsteypu og auðhyggju. Það er ekki allt sem sýnist. Allra síst Ivy.


| 13:50 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff