»  comix  »  maí 2004
comix
maí 2004

a long time ago...
Nútímastúlka á fornum slóðum
Sunnudagur, 16. maí 2004

Rumiko Takahashi er víst einn ástsælasti myndasöguhöfundur Japans og ástæðurnar fyrir vinsældum hennar eru vel skiljanlegar við lestur á ævintýrinu um púkann Inu Yasha sem er hálfur maður og hálfur hundur.

Bækurnar í sögunni eru orðnar býsna margar og Takahashi gætir þess að ljúka hverri bók í slíkri spennu að óhjákvæmilegt er að stökkva beint á þá næstu. Sagan hefst á því að nútímastúlkan Kagome ferðast aftur til Japans hins forna þegar sturlungaöld geisaði og blandast strax í baráttu milli góðra og illra afla þar sem strákslegi og fláráði Inu Yasha leikur tveimur skjöldum. Kagome býr yfir miklum kröftum í þessum heimi enda bendir allt til þess að hún sé holdtekja hetjunnar Kikyo sem gerði Inu Yasha óvígan rétt áður en hún lét sjálf lífið löngu áður.
Um leið og Kagome mætir til leiks vaknar Inu Yasha til lífsins og þau neyðast til að snúa bökum saman í baráttunni við hið illa.
Bækurnar um Inu Yasha eru teiknaðar í manga stílnum og njóta mikillar hylli unglingsstúlkna sem eiga auðvelt með að samsama sig kvehetjunum. Þá eru persónurnar ansi ungæðislegar og nett gelgja og rómantík svífur yfir vötnum.
Keyrslan á sögunni er á köflum hröð og ofbeldið grafískt og hressilegt þannig að hér er síður en svo einhver unglingabók á ferðinni og allir sem eru komnir til vits og ára og hafa gaman af japönskum myndasögum ættu að geta skemmt sér vel yfir ævintýrum Kagome og Inu Yasha.


Skrattakollurinn góði
Miðvikudagur, 05. maí 2004

Þessi bók kynnir til sögunnar rauða tröllið með afsöguðu hornin sem kallar sig Hellboy. Nafnið er býsna viðeigandi þar sem allt bendir til þess að hann komi einmitt beint upp úr neðra með horn, hala og tilheyrandi, auk ógurlegrar grjótkrumlu sem ekkert bítur á. Ólíkt Andskotanum er Hellboy hins vegar drengur góður sem berst við hið illa og rannsakar yfirnáttúruleg fyrirbæri, svolítið eins og Fox Mulder - bara ljótari.

Það má auðvitað teljast mesta mildi að skrattakollurinn sé í góða liðinu þar sem það var ekki minni eðalskúrkur en sjálfur Raspútín sem kallaði hann upp úr myrkrinu til þess að vinna illvirki fyrir verst þokkaða óþokka mannkynssögunnar, sjálfan Adolf Hitler.
Að sköpunarsögu Hellboy lokinni stökkvum við með honum yfir í samtímann og fylgjumst með honum hafa uppi á Raspútín og gera upp við hann og illa anda sem eru eldri en risaeðlurnar.
Það er því nóg að gerast, sagan er skemmtilegt og teikningarnar kúl. Bíómyndin um Hellboy, sem var frumsýnd ytra á dögunum, byggir að mestu leyti á þessari bók og miðað við dóma og fréttir af aðsókn hefur yfirfærsla myndasögunnar á hvíta tjaldið heppnast með miklum ágætum. Ég bíð í það minnsta spenntur og Hellboy æðið er þegar farið að gera vart við sig þar sem bækurnar um kappann eru komnar í stöflum í Nexus og nördarnir eru byrjaðir að hita upp. Ekki eru ráð nema í tíma séu tekin.


Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff