»  comix  »  júní 2004
comix
júní 2004

a long time ago...
Teiknaður sjónvarpsþáttur
Sunnudagur, 13. júní 2004

CSI-sjónvarpsþættirnir eru átakanlega hallærislegir en um leið er eitthvað svo ómótstæðilegt við þá að maður horfir á þátt eftir þátt. Það er því eitthvað verulega bogið við að nú virðist komin í gang blómleg útgáfa á myndasögum byggðum á þáttunum.

Það er svo enn undarlegra að Max Allan Collins, höfundur myndasögunnar Road to Perdition, skuli skrifa þessar CSI myndasögur - og finnast það bara hið besta mál. Myndasagan er nefnilega frumlegasti og svalasti miðill afþreyingarmenningarinnar á meðan mest af því hallærislegasta og útvatnaðasta á sér öruggt skjól í sjónvarpinu. Báðir eru þessir miðlar þó vissulega sjónrænir og það verður að segjast eins og er að yfirfærslan á CSI hefur heppnast býsna vel. Það breytir því þó ekki að CSI-myndasagan er hallærisleg en rétt eins og þættirnir er hún ágætisskemmtun þó hún skilji minna en ekki neitt eftir sig.
Bad Rap hefst á því að heitasti pönkrapparinn í Las Vegas verður manni að bana. Grissom og félagar á næturvakt glæparannsóknadeildarinnar þurfa þó ekki að reyna mikið á sig til að leysa málið þar sem morðið var tekið upp á eftirlitsmyndband. Öllu verra er að rapparinn er sjálfur skotinn til bana áður en Grissom og löggan Brass hafa hendur í hári kauða. Og þá byrjar ballið.
Undirmenn Grissoms rannsaka allt í bak og fyrir en morðalda virðist skyndilega ganga yfir tónlistarbransann í Las Vegas þar sem um leið og ný sönnunargögn benda á líklegan morðingja finnst sá hinn sami dauður.
Bad Rap lýtur öllum lögmálum CSI-þáttanna og er fyrirsjáanleg en þó ekki leiðinleg. Teiknistíllinn er tilþrifalítill og skýr þannig að það þekkja allir Grissom, Catherine, Warrick, Nick og Söru - þau eru eiginlega alveg eins og í sjónvarpinu.
Sögunni er síðan gefin smá stíll með því að láta annan teiknara sjá um endurlit og framburð vitna. Þær teikningar eru grófari og óskýrari en meginsagan og eiga að virka sem kúl stílbrot rétt eins og sambærileg myndskeið í sjónvarpsþáttunum.
Þetta er ekkert spes en virkar vel fyrir sinn hatt og ég gæti vel hugsað mér að lesa næstu CSI-bók ef hún verður á vegi mínum.


Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff