Sunnudagur, 18. júlí 2004
Transmetropolitan: One more time
Warren Ellis er ruddalega góður myndasöguhöfundur sem sést best á hinum frábæru Transmetropolitan sögum þar sem við fylgjumst með rannsóknarblaðamanninum Spider Jerusalem að störfum.
Spider þessi er flottasti blaðamaður allrar menningarsögunnar samanlagðrar. Hann er fullkomlega miskunnarlaus, grimmari en DV í tíunda veldi og hættulegri valdhöfum en sjálfur Michael Moore. Hann er sköllóttur, allur út í húðflúri, fyllibytta, dópisti og geðsjúklingur sem lætur ekkert stoppa sig þegar hann er með gott efni í höndunum.
Í þessari lokabók Transmet bálksins kemur til endanlegs uppgjörs Spiders við gerspilltan Bandaríkjaforseta sem gerir allt til að halda völdum og lætur sig til að mynda ekki muna um að drepa konuna sína. Þegar við kynntumst Spider fyrst var hann með fasta dálka í blaði en nú birtir hann afhjúpanir sínar beint á netsvæðinu The Hole sem átti upphaflega að vera klámsíða en er orðin eina frjálsa röddin í kúgaðri fjölmiðlaflórunni.
Útsendarar forsetans elta Spider á röndum og reyna að rekja útsendingar hans á netinu en það er vont að hafa hendur í hári krúnurakaðs töffara sem er á stöðugri ferð. Það verður engum lögum komið á Spider Jerusalem eins og sést best þegar umsátursástand skapast í Washington eftir að hermenn salla niður friðsamleg mótmæli menntafólks.
Allt útlit er fyrir að það takist að kæfa fréttir af harmleiknum með íþróttum og innihaldslausu slúðri en þá kemur Spider til sögunnar og eftir að hann hjólar í valdhafana á netinu taka aðrir fjölmiðlar við sér og spilaborg forsetans hrynur. Barátta Spiders við forsetann hefur þó tekið sinn toll og hann er orðinn algert flak, heilinn í hakki og skrokkurinn að niðurlotum kominn. Uppgjöf er þó ekki til í dæminu og þó sagan sé býsna fantasíukennd er ekki hægt annað en að skoða þann samtíma sem við okkur blasir þegar framtíðin stendur og fellur með því hvort klikkuðum dópista takist að flæma morðóðan geðsjúkling út úr Hvíta húsinu.
| 13:42 |