Mánudagur, 12. júlí 2004
The Ultimates: Vol.1. Super-Human,
The Ultimates: Vol.2. Homeland Security
Það er ákaflega glæsilegur ofurhetjuhetjuhópur sem myndar The Ultimates gengið. Sverð, sómi og skjöldur þessarar nýju landvætta Bandaríkjanna er sjálfur Captain America, erfðabreyttur ofurhermaður sem hefur barist gegn hinu illa síðan í seinni heimsstyrjöldinni en sér til halds og trausts hefur hann Iron Man, þrumuguðinn Þór, Hulk, Wasp og Giant-Man en það er svo sjálfur Nick Fury, yfirmaður S.H.I.E.L.D. sem heldur í taumana á hetjunum.
Þessi Ultimates saga hefst yfir Íslandi árið 1945 þar sem Kafteinn Ameríka fer fyrir herleiðangri til að stöðva vinnu nasista við vítisvél á okkar ástkæru fósturmold. Hetjan ferst í leiðangrinum og er öllum harmdauði en síðan víkur sögunni til okkar tíma, nánar tiltekið ársins 2002.
Vaxandi hryðjuverkaógn hefur orðið til þess að S.H.I.E.L.D. safnar saman ofurhetjum til að verja frelsið og Bandaríkin og svo heppilega vill til að um þetta leiti finnst Kafteinn Ameríka frosinn í Atlantshafinu og verður strax kærkominn liðsauki. Það mátti líka ekki seinna vænna þar sem geimverur eru langt komnar með að taka yfir Jörðina og hetjurnar okkur þurfa á öllum sínum styrk að halda til að koma í veg fyrir endalok mannkyns.
The Ultimates eru þrælskemmtilegar bækur, frábærlega teiknaðar og ekki spillir fyrir að persónurnar eru dásamlegar. Hulk (Bruce Banner) er lúser sem er að drepast úr minnimáttarkennd og í einu æðiskastinu reynir hann að drepa Freddie Prinze Jr. þar sem hann er búinn að krækja í fyrrum kærustu Berserksins hana Betty Ross.
Iron Man er forríkur glaumgosi og alki sem þorir helst ekki að fara í búninginn án þess að vera búinn að skella í sig nokkrum tvöföldum og Þór er ruglaður Grænfriðungur sem enginn trúir að sé í raun og veru goð þó hann mæti til leiks beint úr glímu við "the Midgard Serpent".
Æskuhetjur manns eru því heldur betur teknar í gegn og hugmyndaauðgin er slík að það er unun að lesa. Það er þó illu heilli helst Kafteinn Ameríka sem hefur misst sjarma þar sem hann hefur óneitanlega verri málstað að verja nú þegar nasistarnir eru frá og hann gengur erinda Bush og gerir grín að Frökkum.
| 13:45 |