»  comix  »  júlí 2005
comix
júlí 2005

a long time ago...
Nýr kafli í sögu Leðurblökumannsins
Mánudagur, 25. júlí 2005

Myndasöguhöfundurinn Frank Miller hefur í tvígang hrist heldur betur upp í Batman og brugðið nýju ljósi á þessa fornfrægu hetju í myndasögunum Batman: Year One og The Dark Knight Returns auk framhalds þeirrar sögu, The Dark Knight Strikes Again. Hann gerir nú þriðju atlöguna að Leðurblökumanninum með sögunni Batman & Robin the Boy Wonder og eins og nafnið gefur til kynna er það hjálparhella Batmans, loftfimleikadrengurinn Robin, sem er í forgrunni.

Fyrsta blaðið í þessari nýju Batman-sögu Millers er nýkomið til landsins en þess hefur verið beðið með þó nokkurri eftirvæntingu enda Miller funheitur um þessar mundir eftir velgengni Sin City-bíómyndarinnar, auk þess sem áhrifa hans gætir víða í nýju Batman-myndinni Batman Begins.
Miller fer aldrei troðnar slóðir og berst jafnan gegn straumnum og það er einmitt þess vegna sem hann stefnir að því að gera Robin að aðalsögupersónu núna. Robin hefur ekki verið neitt sérstaklega hátt skrifaður hjá aðdáendum Batmans, sem hefur aftur á móti sjaldan átt jafn miklu fylgi að fagna og nú, þannig að það er í raun dæmigert fyrir Miller að ætla að notfæra sér vinsældir Batmans til þess að hefja Robin til vegs og virðingar.

Ný byrjun hjá gömlum kempum

DC Comics, sem á Batman-vörumerkið, gefur nýju Miller-söguna út undir merkinu DC All Star en hugmyndin með því merki er að blása lífi í stærstu hetjur fyrirtækisins. Flokknum er ætlað að marka nýtt upphaf og byrja frá grunni. Allt sem hefur áður verið skrifað um Batman og Súperman á því að liggja milli hluta og þannig má vænta enn róttækari breytinga á Súperman en Batman þegar Grant Morrison kveður sér hljóðs í haust með nýrri Superman All Star sögu.
Marvel ákvað þó að vinna áfram með tilraunir Millers með Batman í Year One og The Dark Knight Returns og þessi nýja saga, Batman & Robin, er því framhald af Year One og forleikur að því sem gerist síðar, á efri árum Batmans , í Dark Knight-seríunni. Miller fær því frjálsar hendur til þess að þróa áfram þennan nýja Batman-heim sem hann hefur þegar heillað aðdáendur Leðurblökumannsins með.

Harkan sex

Þótt aðeins eitt blað sé komið út í nýju seríunni hefur Miller þegar verið gagnrýndur fyrir að vera of harðsoðinn og kynferðislegur og stíla söguna inn á eldri lesendur. Aðdáendur höfundarins blása þó á þessar raddir og spyrja hvort hinir óánægðu hafi aldrei lesið fyrri Batman-verk Millers, að maður tali ekki um Sin City-bækurnar. Miller hafi alltaf verið ruddalegur, harðsoðinn og kynósa og því sé ekki hægt að ætlast til annars en hann haldi sínu striki í nýju sögunni.
Teiknistíllinn á nýju sögunni þykir einnig ólíkur því sem hingað til hefur sést í Miller-sögum en Batman & Robin er mjög áferðarfögur og víðs fjarri því sem fólk hefur vanist í hráum, svart/hvítum Sin City-bókunum og groddalegum Dark Knight-bókunum.

Mýkri línur

Teiknarinn Jim Lee notar mýkri línur og þannig gæti skutlan Vicki Vale, í bleiku blúndunærfötunum sínum, stokkið beint inn í Danger Girl-sögur og blandast í föngulegan kvennahópinn þar. Lee hefur sjálfur látið þess getið að það hafi tekið hann dálítinn tíma að finna taktinn fyrir þessa sögu en þetta á víst bara eftir að batna.
Þar fyrir utan leynir það sér ekkert á fyrsta blaðinu að hér er hreinræktaður Miller á ferðinni; sagan er drungaleg og sexí og skyldleikinn við Sin City og önnur fyrri verk Millers er augljós öllum sem sjá vilja.

Herkvaðning á sorgarstundu

Sagan hefst á því að Robin horfir á foreldra sína myrta og er því kominn í sömu spor og Bruce Wayne þegar hann var drengur. Það vill líka svo til að Leðurblökumaðurinn, í gervi Waynes, verður vitni að morðunum. Hann stekkur þá umsvifalaust í Batman-búninginn, bjargar Robin úr klóm spilltra lögreglumanna og tilkynnir drengnum að hann honum beri að gegna herþjónustu í stríði sínu gegn glæpum. Robin fær því varla tíma til að þerra tárin og syrgja foreldra sína áður en nýr ævintýraheimur opnast honum.
Miller hefur enn ekki ákveðið hversu mikinn tíma hann ætlar sér til að segja þessa nýju sköpunarsögu Robins en gert er ráð fyrir að serían verði einhvers staðar á bilinu 12 til 24 blöð, sem munu koma út á sex vikna fresti á næstu mánuðum.


Ránið á týnda eistanu
Mánudagur, 18. júlí 2005

Adventures in the Rifle Brigade


Garth Ennis er býsna hress og skemmtilegur myndasöguhöfundur sem kallar ekki allt ömmu sína þegar kemur að blóðsúthellingum og ofbeldi. Hann vakti fyrst athygli með margrómuðum sögum um The Preacher og kom svo hinum refsiglaða Punisher til bjargar með hinni mögnuðu og hrottalegu sögu Born. Sögur Ennis af The Punisher, sem koma svo í framhaldinu, eru það hressilegasta sem sést hefur af þessu hauskúpuskreytta bófabana og kærkomin vítamínsprauta fyrir blóðþyrsta aðdáendur kappans.

Ennis er á Punisher-nótum í sögum sínum um The Rifle Brigade, harðsnúnustu sérsveit sem sögur fara af. Sögurnar gerast í seinni heimsstyrjöldinni og fjalla um ævintýri sex manna hersveitar undir stjórn hins eitilharða Hugo Darcy kafteins. Þessir kónar taka að sér, með bros á vör, vonlaus verkefni sem eru ávísun á skelfilegan dauðdaga og eru oftast handan við víglínu óvinanna. Þetta gengi minnir mest á 12 rudda úr samnefndri bíómynd nema hér eru ruddarnir aðeins sex og helmingi bilaðari en hópurinn sem Lee Marvin leiddi á hvíta tjaldinu.
Persónusköpunin er ekki upp á marga fiska en hver hermaður sérhæfir sig í ákveðnum drápsaðferðum en leggja ekki mikið til málanna að öðru leyti. Tröllið Sergeant Crumb segir til dæmis aldrei annað en "EY-OOP!" á milli þess sem hann drepur þýska hermenn með berum höndum, Geezer liðþjálfi gargar ekkert nema "YER AHT OF ORDAH!" og eini Ameríkaninn í hópnum, Hank the Yank, er sérfræðingur í meðferð sprengiefna og heyrist aldrei segja annað en "GAWD DAMMIT". Skoski sekkjapípuleikarinn The Piper lætur sér svo nægja að drepa menn með skelfilegum hljóðfæraleik sínum en er þögull sem gröfin þess á milli.
Það er því Darcy sem er óumdeild aðalpersóna sagnanna og aðaltöffarinn en undirmaður hans, Cecil "Doubtful" Milk, gerir honum stundum lífið leitt með því að tjá honum ást sína á viðkvæmum augnablikum.
Þessir skrattakollar gera Hitler og hans hyski margar skráveifur og skemmta lesendum um leið með frábærum fantaskap. Þetta verður þó óneitanlega svolítið einhæft til lengdar en þegar maður er um það bil að fá nóg af blóðslettum og fjúkandi útlimum nær Ennis góðu flugi í sögunni Operation Bollock en þar þurfa Darcy og félagar að komast yfir annað eista Adolfs Hitler sem er þeirri náttúru gætt að sá sem ber það í formalínkrukku er ósigrandi. Sagan minnir um margt á Raiders of the Lost Ark en sjúkur húmorinn gerir það af verkum að hún verður ógleymanlegur uppásnúningur á ævintýri Indiana Jones.


Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff