Mánudagur, 03. október 2005
Sin City: A Dame to Kill for
Vinsældir glæpamyndarinnar Sin City sem byggði á þremur myndasögubókum Franks Miller úr samnefndum bókaflokki urðu til þess að allar bækurnar sjö voru endurútgefnar. Þetta var tímabært þjóðþrifaverk enda fyrirfinnast ekki betri reyfarar en þessar bækur Millers.
Miller og meðleikstjóri hans Robert Rodriguez eru þegar byrjaðir að leggja drögin að framhaldsmynd og hafa látið þau boð út ganga að hryggjarstykkið í henni verði bókin A Dame to Kill for sem er tálkvendisreyfari af bestu gerð.
Sagan The Big Fat Kill var einn aðalkaflinn í Sin City-bíómyndinni en þar fór töffarinn Dwight McCarthy mikinn og sallaði niður heilu herskarana af skúrkum sem ógnuðu vinkonum hans, hórunum í gamla hverfi Sin City.
A Dame to Kill for er forleikurinn að The Big Fat Kill og þar kynnumst við allt öðruvísi Dwight en í þeirri bók. Hann vinnur fyrir sér sem einkaspæjari og er þjakaður af minningum um Övu, fyrrverandi kærustu sem fór frá honum vegna þess að hann skaffaði frekar illa. Dwight lagðist í kjölfarið í drykkju og volæði en er allur að koma til. Þá birtist Ava auðvitað aftur og vélar Dwight til þess að drepa vonda ríka eiginmanninn sem hún hafði krækt sér í.
Blessaður manngarmurinn var vitaskuld besta skinn en fegurð Övu og inspírerandi kynlíf sló ryki í augu Dwights, sem stendur uppi sem dæmigert fórnarlamb köngulóarkonu. Miller sækir mjög markvisst í smiðju gömlu meistara harðsoðnu reyfarahefðarinnar í Bandaríkjunum sem áttu sitt blómaskeið í kringum 1940. Höfuðpáfar þessarar bylgju sem lagði grunninn að noir-myndunum voru rithöfundarnir Raymond Chandler, Dashiell Hammett og James M. Cain. Karlpersónur þessara höfunda skiptast í tvo flokka; þá sem standast töfra tálkvennanna og þá sem ráða ekki við sig og tortímast fyrir vikið. Frægustu hetjur Hammetts og Chandlers, þeir Sam Spade og Philip Marlowe, tilheyra fyrrnefnda hópnum og þannig hikar Spade ekki við að senda tálkvendið sitt í gálgann frekar en axla ábyrgð á glæpum hennar. Sá Dwight sem mundar frethólkana í The Big Fat Kill er náskyldur Spade og Marlowe en í A Dame to Kill for er hann jafn veikur fyrir og hetjur Cains í The Postman Always Rings Twice og Double Indemnity. Ava vefur honum um fingur sér, hefur hann ítrekað að fífli, lætur hann fremja morð og skilur svo við hann nær dauða en lífi.
Miller spinnur þetta allt af mikilli list og þetta tvöfalda film noir-eðli Dwights gerir hann að afskaplega heillandi persónu. Þá er Ava ekki síður vel skrifuð, að maður tali ekki um teiknuð, en undir löðrandi kynþokkanum leynsist magnaður kvendjöfull sem svífst einskis til þess að ná markmiðum sínum og þeir eru ófáir karlpungarnir sem liggja í valnum áður en mellugengið úr gamla hverfinu rífur Dwight upp úr öskustónni og hjálpar honum að leita hefnda.