»  comix  »  mars 2006
comix
mars 2006

a long time ago...
Fermingarbarn í vítislogum Hugleiks
Miðvikudagur, 15. mars 2006

Fjöllistamađurinn Hugleikur hefur slegiđ verđskuldađ í gegn međ örmyndasögum sínum sem hann kynnti fyrst til sögunnar áriđ 2002 í bókinni Elskiđ okkur. Hver saga er yfirleitt ekki nema ein mynd, dregin einföldum, dálítiđ barnalegum dráttum en
kolsvartur húmorinn og groddaskapurinn ber hins vegar vitni ţroskuđu og nćmu auga höfundar á nánast allt sem er brenglađ, bogiđ og brjálađ í mannlegri tilveru.

Hugleikur fer oftast nćr langt yfir öll hefđbundin velsćmismörk (sem er gott) í örsögum sínum, sem eru fyrir vikiđ skarpar og hugvekjandi ádeilur. Hugleikur heldur sig viđ ţetta ágćta heygarđshorn í nýjustu bókinni sinni, Fermiđ okkur, en segir ţó í fyrsta sinn eina eina langa sögu. Ţađ vefst ekkert fyrir honum
og ég er ekki frá ţví ađ hann toppi sín fyrri verk međ Fermiđ okkur sem er einfaldlega frábćr lesning, drepfyndin og baneitruđ.

Sagan hefst á falli Lúsífers, sem er kastađ úr himnaríki fyrir ađ éta flatbökur, drekka bjór og glápa á sjónvarp. Tónninn hefur veriđ gefinn og svo er hvergi slegiđ af á međan fylgst er međ honum Pétri sem er uppálagt af foreldrum sínum ađ fermast "eins og önnur börn".

Pétur er hikandi og kynnir sér alla möguleika, rćđir viđ prest (en eins og í öllum alvöru bókmenntum er ekki ađ finna ćrlega prestsskepnu í ţessu verki) og kynnir sér borgaralega fermingu. Pétur glímir í leit sinni viđ flóknar guđfrćđilegar spurningar um fyrirgefningu Guđs og fleira í ţeim dúr. Allar ţessar flćkjur matreiđir Hugleikur á sinn einstaka og sýrđa hátt og kryddar frásögnina dásamlegum aukapersónum eins og besta vininum Bergi, sem er međ sjö augu og sér inn í framtíđina, lífsdagasöddum afa Bergs og draumadísinni Láru.

Ţessar persónur öskra beinlínis "lesiđ okkur!" og ţeir sem hlýđa ekki ţví kalli eru á villigötum og munu fara á mis viđ magnađa skemmtun.


Blóđbönd

Taxi

Bloggar

Stöff