badabing.is

98 oktan af stöðinni: Klámvísa um stóra Jón
Leigubílastöðinn Hreyfill rak á sínum tíma bensínstöð við Fellsmúla. Þar sem leigubílstjórar eru upp til hópa leiðinlegustu, nöldurgjörnustu og geðvondustu kúnnar sem venja komur sínar á bensínstöðvar þá þótti engum bensínafgreiðslumanni Essó eftirsóknarvert að taka vaktir á þeirri stöð sem við kölluðum jafnan Síberíu.

98 oktan af stöðinni: Maðurinn sem drap þjónustuna
Sem hópur eru Íslendingar aumingjar. Sérhlífin og frek hjörð sem veður áfram með vindi í hvaða átt sem er. Allt eftir því hvernig vindar blása og hvað hentar hverju og einu fíflinu best (Hagsmunasamtök heimilanna, Sjálfstæðiflokkurinn, hlustendur Útvarps Sögu og svo framvegis).

98 oktan af stöðinni: Brátt sáðlát á brúðkaupsnótt
Það var sannkallaður hvalreki fyrir okkur á vondu vaktinni þegar guðsmaðurinn ungi fór að vinna á góðu vaktinni. Best var auðvitað þegar hann tók aukavaktir hjá okkur og mætti með vatnsheldu Biblíuna sína sem hann las í á milli þess sem hann stökk út og dældi á bíla. Við þremmenningarnir gátum endalaust hlegið að þessum unga ofsatrúarmanni enda var einlægnin og trúarhitinn auðvitað alger brandari.

98 oktan af stöðinni: Barnaníðingur horfir í tvö banvæn augu Mavericks
Þegar fyrsta barnið mitt var rétt rúmlega eins árs og litla stelpan (barnið sem var tekið í pant) hans Óla var nýfædd lagði Steingrímur Njálsson undir sig fréttatímana. Var eitthvað að perrast af gömlum vana. Óli, eins og flest almennilegt fólk, hefur enga þolinmæði gagnvart þeim sem eru vondir við börn og þegar um kynferðislega misnotkun er að ræða rennur á hann morðæði.

98 oktan af stöðinni: Gulur Bragi (eða Kaffibylting öreiganna)
Þegar ég vann hjá Essó gamla þá var hann rótgróið Framsóknarflokks- og SÍS fyrirtæki. Þótt ég sé rétt fertugur þá var þetta samt í þá daga sem kaffimenningin hafði ekki rutt sér til rúms á okkar ógeðslega landi og fólk drakk yfirleittt bara Braga-kaffi eða Kaaber. Væntanlega háð stjórnmálaskoðunum. (Vá! Hvað við höfum náð langt á tímum alþjóðavæðingar. NOT!).

98 oktan af stöðinni: Grillaða DV-konan
Konan sem keyrði DV út á bensínstöðina var helvíti hress. Alltaf í kraftgallanum með bílinn fullan af börnum og blaðabunkum. Hlýtur að hafa verið utan af landi. Var í það minnst löðrandi í þessum hressleika sem oft fylgir fólki úr hinum dreifðu byggðum og stendur í þeirri kolbrjáluðu meiningu að maður sé manns gaman og maður megi varla rekast á nokkra hræðu án þess að kasta á hana kveðju og brydda upp á innihaldslitlum og tilgangslausum samræðum.

98 oktan af stöðinni: Vöfflur tregans
Ég man ekki hvað hún hét litla, hressa konan á fáránlega stóra jeppanum sem var nánast daglegur gestur hjá okkur á stöðinni. Maður komst einhvern veginn ósjálfrátt í gott skap þegar hún hoppaði út úr skriðdrekanum og skoppaði inn til okkar, ekkert endilega til að kaupa neitt. Bara meira svona að spjalla og djóka.

98 oktan af stöðinni: Ungabarn tekið upp í skuld
Litla stelpan hans Óla varð held ég örugglega nítján ára um daginn þannig að þá eru rúm átján ár síðan þetta gerðist. Eins og ég hef áður vikið að þá var vaktin mín kölluð „vonda vaktin“ og þar sem merking þrífst á andstæðu sinni má ætla að hin vaktin hafi verið „góða vaktin“.

98 oktan af stöðinni: Gunni Rambó
Hann Gunnar var einn af skrautlegustu fastakúnnunum á Stórahjallanum. Annar slíkur varð síðar þekktur sem Trönuhjallarúnkarinn en það er önnur saga. Gunnar var yfirleitt ósköp rólegur og einhvern veginn hafði ég ákveðið með sjálfum mér að hann væri mátulega þunglyndur jarðfræðikennari í framhaldsskóla. Það passaði einhvern veginn svo vel við Lödu Samöruna, ítölsku aríurnar sem hann var alltaf með í botni þegar hann renndi upp að dælunni og pípuna sem var iðulega logandi uppi í honum.

98 oktan af stöðinni: Brún spor
Löngu áður en Tríó-dúddanum datt í hug að skrifa bensínstöðvar sögur af leiðinlegum vinnufélögum á Essó á Brúarlandi hafði ég lagt að baki landablautan og smurolíuborinn bensínferil þar sem ég vann með mörgum goðsagnarkenndustu bensínköllum fortíðarinnar. Konanmín þáverandi var alltaf að segja mér að skrifa þessi ævintýri niður. Eðlilega þar sem þetta var flest svo vírað að það væri ekki hægt að dikta það upp. En mér fannst nú mikilvægara að vera fullur á frívöktum frekar en að vera að dokúmentera það sem hefur komist næst því að ýta mér út í sjálfsmorð.

Ég biðst afsökunar
Þar sem Eyjan hefur vakið athygli á ljótumog ömurlegum  orðum sem ég lét falla í garð Ölmu Jennýar Guðmundsdóttur á Facebook-síðu í gær vil ég biðja hana opinberlega afsökunar á þessum vettvangi. Enda blasir við að ég fór út yfir öll mörk, og lét orð falla sem ekki nokkur manneskja á að þurfa að sitja undir.

Orðljótur blaðamaður stuðar grátgjarnan bloggara
Nú er það ekkert leyndarmál að ég er með orðljótari mönnum og get varla komið út úr mér heilli setningu án þess að hún sé skreytt blótsyrðum eða einhverju þaðan af verra. Get lítið að þessu gert. Finnst bara svo gaman að taka harkalega til orða. Þessa sést vel stað hér á Badabing! og nú er það orðið að heimsfrétt að ég hafi stuðað viðkvæman bloggara og byltingarhetju.

Fallið hans Þráins og föllin mín
Í bókinni Fallið segir félagi Þráinn Bertelsson frá því þegar hann dattíða í Færeyjum í sumar og þurfti að fara aftur á byrjunarreit (Vog) eftir áralanga edrúmennsku. Texti Þráins er eins og við var að búast sprellfjörugur, bráðskemmtilegur og fallegur enda er Þráin ekkert af fíflast með skrifum sínum um þetta leiðinda bögg sem alkóhólisminn er.

Síðasti skúrkur æsku minnar fallinn
Muammar, eða Múmmi eins og ég kallaði hann iðulega vegna þess að hann hefur verið við völd alla mína ævi, er dauður. Ég vil alls ekki gera lítið úr því hvursu frábært er að þetta illmenni hafi verið sent til heljar með byssukúlur í báðum fótum og haus en ég á samt eftir að sakna hans. Með honum er enda genginn síðasti alvöru skúrkur æsku minnar og það er því ekki laust við að ég finni fyrir tómleika, aldri mínum og jafnvel fyrir feigð.

Leppalúði fer á bar
Barir geta verið hættulegir staðir, sérstaklega þeim sem kunna ekki að vera fyllibyttur eða eru alveg lausir við það sem kallast í útlöndum að vera street smart. Ég held að samanlagt hafi mér verið hent út af Ölstofu Kormáks og Skjaldar fjórum sinnum. Á sama kvöldinu, en það er önnur, lengri og skemmtilegri saga. Mér var samt ekki hent út fyrir að vera með stæla við barþjón heldur fyrir almennan dólg og að umbreytast í James Douglas Morrison uppi á borðum staðarins.