Miðvikudagur, 07. nóvember 2001
birt á www.strik.is/pressan
Hin ágæta fréttastofa Stöðvar 2 lét ekki deigan síga þrátt fyrir
að hafa verið flutt á vonlausan útsendingartíma klukkan 18.30.
Ég hef áður haldið því fram hér að fréttatímar Stöðvar 2 séu að
mörgu leiti betri en fréttatímar ríkisrekna samkeppnisaðilans
og því væri eðlilegast að láta fréttatímana mætast á sama tíma
enda virtist þjófstart Stöðvar 2 klukkan 18.30 ekki virka neitt
sérstaklega vel. Eitthvað virðist þó vera að rofa til á Lynghálsinum
og fréttagengi Stöðvar 2 hefur staðið vígreift á heilsíðum í Morgunblaðinu
undanfarið, yfir þeirri fullyrðingu að ný Gallup könnun staðfesti
að nýji fréttatíminn hafi staðist tímans tönn og hafi fest sig
í sessi hjá þjóðinni og 37% Íslendinga á aldrinum18-80 ára horfi
á fréttir stöðvarinnar.
Þetta er gott mál og full ástæða til að fagna með genginu sem
hefur rígahldið í þá sannfæringu að "góðar fréttir breytist ekki
með tímanum". Hið vaska fréttalið Stöðvar 2 hefur fleiri ástæður
til að brosa, þar sem sýningum á Pókémon er lokið
hjá Sjónvarpinu og fréttatími stöðvarinnar hefur sjálfsagt grætt
heilmikið áhorf á barnaheimilum á því. Ég er a.m.k. aftur farinn
að sjá fréttir Stöðvar 2 á þriðjudögum og síðast en alls ekki
síst er svo "Ísland í dag" aftur orðið samkeppnisfært við "Kastljósið",
en ég tel að gæði þessara dægurmálakjaftaþátta ráði miklu um hvaða
stöð verður fyrir valinu á hinum sígilda fréttatíma á milli klukkan
19 og 20.
Krakkar í sandkassaleik toppuðu sálfræðinginn og rónana
"Kastljósið" hefur að vísu fest sig rækilega í sessi eftir að
"pelabörnin" tóku ofsafenginn þroskakipp og ég leyfi mér að blása
á reglulegar upphrópanir kverúlanta, í geðshræringu, um að Gísli
Marteinn, Kristján og Eva kunni ekki til verka,
það er líka ekki hægt að ætlast til þess að skemmtilegum íhaldsboltum
eins og Kjartani Gunnarssyni, Davíð Oddssyni og
Birni Bjarnasyni sé úthýst úr sjónvarpi bara af því Gísli
nam fræði sín við fóstkör meistara Hólmsteins. Krakkarnir hafa
sannað sig og "Ísland í dag" var þannig stemmt þegar kveikt var
á Kastljósinu að það féll fljótt í skuggann. Jón Ársæll hafði brunnið út og fór í verðskuldað frí, en Þorsteinn Joð hélt merkjum hans þó vasklega á lofti þangað til hann sneri sér
að þeirri vafasömu iðju að nota peninga til að gera meðalgreint
fólk, sem kann ekki að skammast sín, að fíflum í "Villtu vinna
milljón". Eftir það var Íslandi í dag ekki viðbjargandi og fréttatsofa
Sjónvarps og Kastljósið stútuðu kvöldfréttatíma Stöðvar 2 endanlega.
Morgunhanar brýna gogginn
Lífgunartilraunirnar á "Íslandi í dag" hafa hingað til verið
æði krampakenndar. Rykið var dustað af Jóni Ársæli, sem var enn
útbrunninn og mistókst algerlega að lífga upp á þáttinn með því
að gera dópista og róna að hvunndagshetjum. Gamla formúlan hans
virkaði bara ekki lengur og hann hefur því snúið baki við alkóhólistum,
kleppurum og glæpamönnum og gerir nú innihaldsríku lífi íslenskra
góðborgara ágætis skil á öðrum vetvangi. Fallega fólkinu var telft
fram með Jóni; frægasta og elskaðasta þula landsins (Ragnheiður
Elín Clausen, ekki Bó) fann því miður aldrei taktinn
og var bolað út með skepnuskap og útblásin egó Teits Þorkelssonar og Andreu Róberts gerðu svo endnalega útslagið og "Ísland
í dag" hætti að taka á málefnum líðandi stundar og tók að snúast
um persónur umsjónarfólksins. Það var auðvitað bara hægt að gera
eitt í stöðunni; moka öllu genginu út, leyfa því að egóflippa
í eigin þáttum og fá traust fjölmiðlafólk til að taka við Íslandi
í dag.
Snilldarleikur stöðvarinnar í þröngri stöðunni var einfaldlega
að hafa endaskipti á fréttadeginum. Eldklárir og líflegir morgunhanarnir
úr "'Íslandi í bítið" voru settir yfir "Ísland í dag" og fulltrúar
fallega fólksins sjá nú um að brosa sig í gegnum andfúla vetrarmorgnana.
Þetta er að ganga upp og hinir nýju umsjónarmenn "Íslands í dag",
þau Snorri Már Skúlason og Guðrún Gunnarsdóttir eru á ótrúlega skömmum tíma að ná að gera "Ísland í dag" að raunverulegum
valkosti og allt útlit er fyrir að þátturinn verði aftur þess
eðlis að illmögulegt sé að missa af honum.
"Ísland í dag" hefur hrist af sér glyðruorðið og er til alls
líklegt. Snorri og Guðrún kunna vel til verka og með skemmtilegri
framkomu og pældu vali á viðfangsefnum eiga þau vafalaust eftir
að ógna veldi Gísla Marteins og co., enda eru prósentustigin
strax farin að tínast inn. Fréttastofan hans Karls Garðarsonar er því ekki einungis sloppin úr skugga Pókémonanna, heldur líka
búin að setja upp sólgleraugu gegn Kastljósinu og á meðan fréttirnar
hennar standast tímans tönn verða 37 prósentin örugglega fleiri.