Fimmtudagur, 14. febrúar 2002
birt á www.strik.is/pressan
Ég byrjaði árið hérna á því að
barma
mér yfir því hversu illa væri komið fyrir sjónvarpsglápi mínu
á mánudögum eftir að þriðja serían um "The Sopranos" rann sitt
skeið á enda og Sjónvarpið leysti feitu mafíósanna af með hinum
yfirmmáta hallærislegu þáttum "The District". Huggunin gegn harmi
mínum var helst sú að Stöð 2 á enn eftir slatta af "X-Files" þáttum
til að lyfta manni upp í byrjun nýrrar viku. Mánudagskvöldin hafa
svo snarbatnað heilmikið eftir að SkjárEinn gat leyst til sín
nýja þætti af "CSI" og "The Practice" og nú er þetta þannig að
maður byrjar klukkan 21.00 á Skjánum og horfir á "CSI" og auglýsingar,
skiptir svo yfir á "X-Files" klukkan 22.00 og tekur upp lögfræðingagegnið
á meðan og horfir svo á það klukkan ellefu og hraðspólar í gegnum
auglýsingarnar. Magnað!
"CSI" fór helvíti vel af stað í fyrra og hafa verið á rosa siglingu
í Bandaríkjunum, enda kemur þetta dót úr smiðju kvikmyndaframleiðandans
Jerry Bruckheimer en fáir standa honum framar í að niðursjóða
merkingarlausa stundarafþreyingu. Þetta er svo sem allt í góðu
enn þá og CSI gengið fæst við nógu mörg og áhugaverð sakamál í
hverjum þætti til að halda áhuganum vakandi (bara verst hvað það
þarf alltaf að vera að drepa börn - viðkvæmt fólk á mínum aldri
þolir illa svoleiðis sóðaskap). Persónurnar eru flestar þolanlegar,
áberandi best eru fyrrum nektardansmærin, verndari barna og málleysingja,
og svertinginn með úfna hárið. Alltaf gaman að fylgjast með þeim.
Þá erum við barasta komin að veikasta hlekknum í CSI keðjunni,
sjálfum höfuðpaurnum Gil Grissom. Grissom er e.k. "modern"
Sherlock Holmes, geðveikislega klár og dulur. Hann kann
svör við öllu og er undirmönnum sínum stöðug ráðgáta. Svo er hann
auðvitað niðursuðudósaheimspekingur á heimsmælikvarða og getur
gefið fórnarlömbum og vinum sínum góð ráð, þess á milli sem hann
fordæmir morðingja, geðsjúklinga og nauðgara. Svona týpur eru
auðvitað stórhættulegar og Grissom er að verða skuggalega líkur
strandvarðargúrúinu Mitch sem hin ofurleiðinlegi David
Hasselhoff gerði ódauðleg skil í "Strandvörðum". Þessi hraða
breyting Grissoms í baðvörð var átakanlega áberandi í nýlegum
þætti þar sem hann kenndi sínu fólki að umgangast heyrnarlausa
og afvopnaði reiða, unga heyrnarlausa konu með því að slá um sig
með táknmáli. Hann hafði svo fullkomin tök á aðstæðunum að Haselhoff
hefði orðið stolltur af honum.
Það dapurlegasta við þetta er sú staðreynd að William Petersen sem leikur Grissom er ágætis leikari, sem sýndi m.a. stórgóð tilþrif
í "Manhunter", fyrstu bíómyndinni um Hannibal Lecter og
kom skemmtilega á óvart sem spilltur þingmaður í "The Contender"
í fyrra. Hann hefur þó greinilega ofmetnast eins og margir minni
spámenn sem bíða áratugum saman eftir að verða næsti De Niro og virðist alveg vera að flippa á velgengni "CSI".
Hann er meðframleiðandi þáttanna en það getur verið stórvarasamt
þegar leikarar á egótrippum komast með puttana í framleiðsluna,
enda hættir þá allt að skipta máli nema að þeir komi vel út í
samanburði við aðra (dæmi: Kevin Costner og Sylvester
Stallone). Þetta veit sem sagt ekki á gott og persóna Gils
Grissoms er líkleg til að drepa niður allt fútt í "CSI" ef Bruckheimer
kemur ekki böndum á hann fyrr en síðar, þannig að stripplan og
svarti maðurinn fái áfram notið sín í botn, annars verður maður
að setja allt sitt traust á Bobby í "The Practice" þegar
Scully og Dogget kveðja...