»  fjölmiðlar  »  Morgunógleði smásálar
nýlegir pistlar

nýleg komment

a long time ago...
Morgunógleði smásálar
Föstudagur, 01. mars 2002
birt á www.strik.is/pressan

Útvarpsstöðin Radíó hóf útsendingar þann 28. janúar árið 2000. Stöðin hafði verið sett saman utan um skemmtilegustu útvarpsmenn landsins þá Jón Gnarr og Sigurjón Kjartansson sem Jón Ólafsson hafði bjargað undan samningi við ómerkilega Ameríkana sem höfðu ill áform um að vinna land af Norðurljósum. Tvíhöfðinn manns er auðvitað ekki eitthvað sem á að vera hægt að kaupa en þeir félagar sneru þessu öllu upp í grín og áður en fyrsti þátturinn þeirra á Radíó fór í loftið básúnuðu þeir að "myrkrahöfðinginn á Lynghálsinum" ætti þá og að Hreggviður Jónsson hefði keypt þá. Þetta dugði og dyggir hlustendur Tvíhöfða á X-inu fyrirgáfu þeim vændið umhugsunarlaust og fjörið byrjaði. Frá þessum degi hefur útvarpið verið stillt á 103,7 þar sem illskásta tónlistin í íslensku útvarpi hefur hljómað og Tvíhöfðinn manns hefur stytt manni stundir á morgnana og Ding Dong séð um eftirmiðdaginn með úreltum símahrekkjum og endalausu blaðri um brjóst og píkur. Þessu lauk hins vegar endanlega föstudaginn 1. mars 2002 þegar Tvíhöfði tilkynnti það glaðbeittur að þetta væri síðasti þátturinn hans. Radíó-X er því formlega orðið ex-Radíó og íslenskt útvarp stendur eftir fátækara fyrir vikið og mátti síður en svo við slíkri blóðtöku.

Tvíhöfði er auðvitað alveg stórmerkilegt fyrirbæri í íslensku útvarpi og það er til marks um ótvíræða hæfileika þeirra Sigurjóns og Jóns að þeir hafa haldið ferskleikanum öll þessi ár. Það voru engin þreytumerki á þeim og þeir voru langt því frá að brenna út. Mig minnir að útvarpspáfinn og mannlífsrannsóknarblaðaður DV, Eiríkur Jónsson, hafi spáð því fyrir nokkrum mánuðum að þeir ættu a.m.k. fimm góð ár eftir enn. En nú skal sem sagt hætt á toppnum og eftir sitjum við hlustendur, yfirgefnir af Tvíhöfðanum okkar.

Ég er sár og reiður og verð að kenna einhverjum um og miðað við fréttir ofan af Lynghálsi undanfarið fæ ég ekki betur séð en að fingarför eins jafnleiðinlegasta útvarpstrúðs íslenskrar fjölmiðlasögu, Jóns Axels Óalfssonar, séu út um allt á dánarvottorði útvarpsstöðvarinnar Radíó-X. Það hefur auðvitað alltaf verið mér ráðgáta af hverju Jón Ólafsson valdi útbrunninn brandarakall, sem tókst aldrei að gera gott útvarp, til að halda utan um allt útvarpssvið Norðurljósa, ekki síst í ljósi þess að hann virðist hafa þá yfirlýstu stefnu að gera allar stövar fyrirtæksins eins, væntanlega "með tilliti til" og "hliðsjón af" einhverjum geldum markaðsrannsóknum og viðskiptafræðilegum úttektum sem öllu heilvita fólki er skítsama um. Getur þessi sauðheimski meirihluti hlustenda ekki bara haldið sig á Bylgjunni og leyft lifandi jaðarfyrirbærum að blómstra í friði? Jón kaus einhverra hluta vegna að setja einhverja léttpoppspíu yfir "eina Radíóið sem rokkar", rak hrokagikkinn og rokkhausinn Þossa, setti Ding Dong út á kaldan klaka (er hægt að hugsa sér grimmari örlög en að daga uppi á FM?) og nú þetta. Svo sagði hann bara við Fréttablaðið að þetta væri "no big deal"! Það er "no big deal" að reka Valdísi Gunnarsdóttur en meiriháttar mál þegar maður eyðileggur góða útvarpsstöð. Ding Dong Radio-X is dead!.

Tvíhöfði bauð fjölmiðlum í egg og beikon janúarmorguninn sem Radíó fór í loftið og ég þáði auðvitað boðið og eftir að hafa hesthúsað enska morgunverðinn og hlustað á snillinginn Gissur Sigurðsson lesa fréttir horfði maður andaktugur á feður þeirra Jóns og Sigurjóns opna Radíóið. Þessi dagur byrjaði jafn vel og dagurinn í dag byrjar illa. Það snjóar, mér er kalt og á ekkert nema áprentaðan Radíó stuttermabol og góðar minningar til að ylja mér með. En svona gengur lífið. Menn koma og fara og það þykir sjálfsagt ekkert tiltökumál að Tvíhöfðinn manns þagni þegar sjálfur "myrkrahöfðinginn á Lynghálsi" sætir skattrannsókn og Hreggviður er flúinn...


| 11:28 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff