»  fjölmiðlar  »  apríl 2002
efnisflokkar

fjölmiðlar
apríl 2002

a long time ago...
Úldinn Sherlock Holmes á 21. öld
Föstudagur, 26. apríl 2002
Bitur reynsla sögunnar hefur kennt okkur að það eru engin ofurmenni til. Hitler skaut sig út af þessu vandamáli, Nietzsche gekk af göflunum og frístundabókmenntafræðingurinn Hannes Hólmsteinn Gissurarson hefur slegið sig til riddara með kenningum sínum um að Halldór Laxness hafi haft slæmar skoðanir og því sennilega bara verið mannlegur þrátt fyrir augljósa snilligáfuna. Þetta eru þó engin tíðindi fyrir okkur sem þorum að horfast í augu við það að öll þurfum við stundum á klósettið.Snillingar eru sem sagt úr tísku og eru best geymdir í skáldskap liðinna alda. Sherlock Holmes er einn af þessum skálduðu snillingum sem virkaði á sínum tíma og hann virkar svo sem enn í sínu rétta samhengi, en sem sérfræðingur í rannsóknum á vettvangi glæps á 21. öld er hann alveg eins og þorskur á þurru landi. Þorskurinn sem er að pirra mig þessa mánudagana heitir Gil Grissom og fer fyrir vösku gengi rannsóknarfólks í C.S.I. á SkjáEinum. Persóna hans er orðin svo útblásinn og fullkomin að hún veldur manni alvöru velgju. Grissom var einhvern tíma í lagi en er að verða e.k. kynlaust gúrú sem á yfirveguð svör við öllum lífsins gátum, kann táknmál, er sérfræðingur í meðhöndlun einhverfra og veit allt um bókbindingar og forn handrit. Þú kemur aldrei að tómum kofanum hjá Grissom sem er fyrir vikið orðinn óþolandi besserwesser sem dregur þessa annars ágætu þætti niður á ótrúlega lágt plan.


Hvar er tehettan?
Föstudagur, 19. apríl 2002

:: birt: 19. 04. 2002 :: Fréttablaðið ::

Fréttamenn hugsuðu sér gott til glóðarinnar eftir Birni Bjarnasyni, annáluðum blóðþyrstum vígamanni, var att úti í borgarstjórnarslaginn við Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur. Spáð var fjörugu vori og einni mest spennandi kosningabaráttu í sögu lýðveldisins. Fjörið er þó ekki meira en í kringum kjör hússtjórnar í fjölbýlishúsi, enda eru stjórnmálamenn þreytt sjónvarpsefni þegar enginn er hasarinn og spennan í kringum þá. Þeir hafa þó einn veikleika sem sjónvarpsstöðvarnar geta notfært sér á næstu vikum; þeir eru alltaf tilbúnir til að gera sig að fíflum fyrir framan alþjóð rétt fyrir kosningar.Minnisstæðasta dæmið um þetta er, væntanlega, þegar Jón Ársæll á Stöð 2 tók hús á Ólafi Ragnari Grímssyni, þáverandi formanni Alþýðubandalagsins, fyrir allmörgum árum og fékk hann til að setja forláta rússneska tehettu á höfuðið. Allt fyrir atkvæðin. Í ljósi aðstæðna hlýtur að vera tími til kominn að Ingibjörg og Björn setji upp sínar "tehettur" og skemmti skrattanum í okkur. Silfurrefurinn Egill, Kastljósið og Ísland í dag ættu því að fara að kokka upp fíflalegar uppákomur sem frambjóðendur geta tekið þátt í. Það má t.d. láta Ingibjörgu og Björn taka sundsprett í keppnislaug og banna Ingibjörgu að þjófstarta á meðan Björn klæðir sig í sundskýluna á laugarbakkanum. Þá er heldur ekki útilokað að fá þau í alvöru leðjuslag, eða jafnvel keppni í pönnukökuáti. Hvað sem er geriði þetta bara skemmtilegt.


Erfðabreytt ofurgella missir sjarmann
Föstudagur, 12. apríl 2002
Stöð 2 hefur verið dugleg við að halda flaggi sterkra og sjálfstæðra kvenna á lofti, sem er auðvitað ekki galið á tímum fléttuflokka og kynjakvóta. Hörðustu gellurnar sem hafa komið þar við sögu eru blóðsugubaninn Buffy og erfðabreytta slagsmálastelpan hún Max Guevara (ekki skyld Che eftir því sem ég kemst næst). Max fór vel af stað í Dark Angel þáttunum sem James Cameron framleiðir, þannig að þeir voru töff og tóku sig mátulega hátíðlega. Fyrsta serían var hin besta skemmtun og aðalleikkonan Jessica Alba var með álíka aðdráttarafl og Bryndís Schram í Stundinni í den og maður beið því í ofvæni eftir að Stöð 2 hefði efni á framhaldinu. Og nú er Max loksins komin og vonbrigðin eru mikil.Þættirnir eru spennusnauðir, í besta falli hallærislegir og stökkbreytt mistök frá Eyju Dr. Moreau hafa ýtt kúnstugum aukapersónum til hliðar. Max orðin komplexuð, ástsjúk stelpa með slegið hár. Hún var hins vegar með létta liði, eiturhörð og óháð karlmönnum. Og hér erum við komin að vandanum í hnotskurn; sterku, sjálfstæðu stelpurnar eru auðvitað ekkert sterkar enda skrifaðar til þess eins að höfða til tölvunörda með nýfengið hvolpavit. Hvers vegna í ósköpunum ættu vísindamen annars að búa til ofurhermenn í skálastærð C? Brjóstin hljóta að vera fyrir þegar í harðbakkann slær. Það væri rökrétt ef Max myndi skipta á brjóstum við Ally McBeal. Það er a.m.k. ekki spurning að bak við öruggt fasið er hún sama væluskjóðan.


Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff