»  fjölmiðlar  »  Hvar er tehettan?
nýlegir pistlar

nýleg komment

a long time ago...
Hvar er tehettan?
Föstudagur, 19. apríl 2002

:: birt: 19. 04. 2002 :: Fréttablaðið ::

Fréttamenn hugsuðu sér gott til glóðarinnar eftir Birni Bjarnasyni, annáluðum blóðþyrstum vígamanni, var att úti í borgarstjórnarslaginn við Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur. Spáð var fjörugu vori og einni mest spennandi kosningabaráttu í sögu lýðveldisins. Fjörið er þó ekki meira en í kringum kjör hússtjórnar í fjölbýlishúsi, enda eru stjórnmálamenn þreytt sjónvarpsefni þegar enginn er hasarinn og spennan í kringum þá. Þeir hafa þó einn veikleika sem sjónvarpsstöðvarnar geta notfært sér á næstu vikum; þeir eru alltaf tilbúnir til að gera sig að fíflum fyrir framan alþjóð rétt fyrir kosningar.
Minnisstæðasta dæmið um þetta er, væntanlega, þegar Jón Ársæll á Stöð 2 tók hús á Ólafi Ragnari Grímssyni, þáverandi formanni Alþýðubandalagsins, fyrir allmörgum árum og fékk hann til að setja forláta rússneska tehettu á höfuðið. Allt fyrir atkvæðin. Í ljósi aðstæðna hlýtur að vera tími til kominn að Ingibjörg og Björn setji upp sínar "tehettur" og skemmti skrattanum í okkur. Silfurrefurinn Egill, Kastljósið og Ísland í dag ættu því að fara að kokka upp fíflalegar uppákomur sem frambjóðendur geta tekið þátt í. Það má t.d. láta Ingibjörgu og Björn taka sundsprett í keppnislaug og banna Ingibjörgu að þjófstarta á meðan Björn klæðir sig í sundskýluna á laugarbakkanum. Þá er heldur ekki útilokað að fá þau í alvöru leðjuslag, eða jafnvel keppni í pönnukökuáti. Hvað sem er geriði þetta bara skemmtilegt.


| 16:19 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff