»  fjölmiðlar  »  Úldinn Sherlock Holmes á 21. öld
nýlegir pistlar

nýleg komment

a long time ago...
Úldinn Sherlock Holmes á 21. öld
Föstudagur, 26. apríl 2002
Bitur reynsla sögunnar hefur kennt okkur ađ ţađ eru engin ofurmenni til. Hitler skaut sig út af ţessu vandamáli, Nietzsche gekk af göflunum og frístundabókmenntafrćđingurinn Hannes Hólmsteinn Gissurarson hefur slegiđ sig til riddara međ kenningum sínum um ađ Halldór Laxness hafi haft slćmar skođanir og ţví sennilega bara veriđ mannlegur ţrátt fyrir augljósa snilligáfuna. Ţetta eru ţó engin tíđindi fyrir okkur sem ţorum ađ horfast í augu viđ ţađ ađ öll ţurfum viđ stundum á klósettiđ.
Snillingar eru sem sagt úr tísku og eru best geymdir í skáldskap liđinna alda. Sherlock Holmes er einn af ţessum skálduđu snillingum sem virkađi á sínum tíma og hann virkar svo sem enn í sínu rétta samhengi, en sem sérfrćđingur í rannsóknum á vettvangi glćps á 21. öld er hann alveg eins og ţorskur á ţurru landi. Ţorskurinn sem er ađ pirra mig ţessa mánudagana heitir Gil Grissom og fer fyrir vösku gengi rannsóknarfólks í C.S.I. á SkjáEinum. Persóna hans er orđin svo útblásinn og fullkomin ađ hún veldur manni alvöru velgju. Grissom var einhvern tíma í lagi en er ađ verđa e.k. kynlaust gúrú sem á yfirveguđ svör viđ öllum lífsins gátum, kann táknmál, er sérfrćđingur í međhöndlun einhverfra og veit allt um bókbindingar og forn handrit. Ţú kemur aldrei ađ tómum kofanum hjá Grissom sem er fyrir vikiđ orđinn óţolandi besserwesser sem dregur ţessa annars ágćtu ţćtti niđur á ótrúlega lágt plan.


| 16:19 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóđbönd

Taxi

Bloggar

Stöff