»  fjölmiðlar  »  Alvöru endurvinnsla og þreyttar endursýningar
nýlegir pistlar

nýleg komment

a long time ago...
Alvöru endurvinnsla og þreyttar endursýningar
Laugardagur, 25. maí 2002
Endursýningar geta verið af hinu góða. Ekki endursýningar af því tagi sem SkjárEinn og Stöð 2 gera út á og virðast hafa þann tilgang einan að tryggja það að maður sjái sömu þættina ekki sjaldnar en þrisvar í viku. Réttlætingin á þessu uppátæki er sú að þetta sé þjónusta við þá sem missa af tilteknum dagskráliðum í frumsýningu. Það er auðvitað látið liggja milli hluta að megintilgangurinn er að hámarka verðmæti efnisins fyrir sjónvarpsstöðvarnar. Hagsmunir bestu og traustustu viðskiptavinanna, þeirra sem eyða ævinni fyrir framan tækið eru svo kinnroðalaust virtir að vettugi.
Það skýtur óneitanlega skökku við að risaeðlan á markaðnum sem allir vilja feiga virðist ein skilja hugmyndafræðina að baki endursýningum. Sjónvarpið býður ekki upp á sama þáttinn af E.R. og Vesturálmuni þrisvar í viku, heldur er eldra hágæðaefni látið njóta sannmælis og borið á borð áhorfenda eftir langt hlé. Bestu dæmin um þetta núna eru endursýningar á Sex and the city og drepfyndna mannlífsrýninum Ali G. RÚV á að gera meira af þessu og hinir ættu að sýna sóma sinn í að fylgja fordæminu, ekki síst á sumrin þegar dagskráin stendur alla jafna saman af rusli. Nú er lag og rétti tíminn til að endurvinna alvöru gæðaefni. Af nógu er að taka og nægir að nefna Simpsons, Friends, Frasier, gamalt og gott X-Files, Taggart og jafnvel Soap og eitthvað enn eldra.


| 20:19 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff